Réttur - 01.10.1980, Blaðsíða 70
Bandaríkin
Ronald Reagan var kosinn forseti
Bandaríkjanan með 51% greiddra atkv.
Carter fékk 41% og John Anderson 7%.
Það er táknrænt fyrir ástandið í þessn
voldugasta ríki heims, sem telur sig for-
usturíki lýðræðisins, að það er aðeins
helmingur þeirra, er kosningarétt hafa,
sem kýs. Helmingur kjósendanna telur
það ekki ómaksins vert að ganga að kjör-
borðinu, þorri þeirra í meðvitund þess að
það séu hvort sem er peningavaldið, sem
öllu ráði um kosninguna, stóru flokkarn-
ir tveir séu aðeins tæki mismunandi auð-
mannahópa og hvaða forseti sem kosinn
yrði væri hvort sem er aðeins leikbrúða
peningavaldsins í landinu.
Auðheyrt er á hinum gamla kúreka-
kvikmyndaleikara, sem fyrst og fremst
liefur í ræðum sínum skírskotað til hroka
þeixra ríku, að hann ætlar sér með taum-
lausum yfirgangi og frekju, ekki síst við
Nato-ríki, að rétta hlut Bandaríkjaauð-
valdsins við eftir öll þau áföll, sem það
hefur hlotið í augum heims, við tapað
níðingsstríð í Víetnam, Watergate-
hneyksið allt saman o. fl.
Vægðarlaus aukning herbúnaðar, ekki
síst kjarnorkuhervæðingar, á að verða
vopn hans til að fá hinar ýmsu þjóðir
heims til að beygja sig fyrir ofurveldinu
ameríska af ótta við miskunnarlausar og
gersamlega óábyrgar aðgerðir þess.
Hættan á stórstyrjöld, sem orðið gæti
kjarnorku-tortíming stórs hluta mann-
kyns, hefur því vaxið gífurlega við það að
harðskeyttasta peningavald í Bandaríkj-
unum hefur blekkt um fjórðung þeirra
íbúa, er kosningarétt hafa til þess að kjósa
þennan ævintýramann fyrir forseta.
Er luirmulegt til þess að vita hvernig
komið er fyrir þjóð Georgs Washingtons
og Benjamíns Franklins, Jeffersons og
Abrahams Lincolns - þjóð þeirri, er kaus
Rossevelt til að stjórna sér bæði í heims-
kreppu og heimsstríði - að hún skuli nú
sokkin niður á þetta stig sakir alræðis
hrokafulls peningavalds í landi sínu.
Það mun nú reyna á stjórnmálaleið-
toga Vestur-Evrópu, hvort þeir hafa dug
og kjark til þess að standa upp í hárinu á
þessum manni — eða hvort þeir láta einn
lítilsigldan amerískan krtreka reka þjóð-
ir þeirra sem naut til slátrunar.
Jack Woddis látinn
Nýlega er látinn Jack Woddis er var sá
félagi, sem stjórn liafði á alþjóðadeild
brezka kommúnistaflokksins. En sá flokk-
ur hefur flestum flokkum betur rækt þá
skyldu hvers góðs sósíalista að styðja
hverja þá í öðrum löndum, sem berjast
fyrir frelsi landsins, ef það er nýlenda, og
frelsi alþýðu, ef um sjálfstætt ríki er að
ræða. Hefur sá flokkur ætíð tekið mál-
262