Réttur


Réttur - 01.10.1980, Side 35

Réttur - 01.10.1980, Side 35
Bucharin. Togliatti. Dimitroff. 1928-38, að skapa stóriðju í þessu frum- stæða bændalandi, sem 1928 var á sama framleiðslustigi og 1913 eftir 7 ára heims- stríð og borgarastríð. Það var beitt bæði stórkostlegum eldmóði og grimmilegri hörku til að vinna þetta stórvirki, en með því var lagður tæknilegi grundvöllurinn að því að sigrast á nasismanum síðar. En hins vegar hefst 1928 sú hættulega þróun í heimshreyfingunni, sem Stalin og fylgifiskar hans beita sér fyrir: hin öfgafulla „vinstri“ einangrunarstefna. Hér var um pólitískt ranga stefnu að ræða, sérstaklega hvað framkvæmd snerti, því sjálfar ályktanir 6. heimsþingsins 1928 voru ekki eins slæmar og útfærslan á þeim. Bucharin varaði við þessari stefnu, eins og ég hef áður skýrt frá í Rétti,22 og bestu menn hreyfingarinnar, eins og t. d. Dimitroff, Togliatti o. fl. beygðu sig fyrir meirihlutanum frekar en að sundra röðunum og einangrast ef til vill. Það veitti þeim möguleikann á að beina hreyfingunni inn á réttar brautir síðar, er afleiðingar rangrar stefnu sýndu sig. Og það gerðu þeir dyggilega strax frá ársbyrjun 1934 og samlylkingarstefnan gegn fasismanum sigrar síðan algerlega á þinginu 1935. En það helst á þessu skeiði annað fyrir- brigði, sem verður sósíalismanum slík raun að við liggur að hjarta hreyfingar- innar bresti og hugsjón kommúnismans sé dregin niður í svaðið. Þetta stalar af þeirri stórhættulegu eðlislægu mótsetn- ingu, sem er milli ríkisvalds og kommútr isma. Það má aldrei gleymast sósíalistum að ríkisvaldið sem kúgunarvald (her, lög- regla, leynilögregla, dómstólar, fangelsi, embættismannastétt o. s. frv.) er skapað af yfirstéttunum sem vopn í hrammi þeirra til að kúga alþýðuna. - Það er ó- hjákvæmilegt fyrir alþýðuna, ef hún á að verða frjáls, að ná þessu vopni úr greip- um yfirstéttarinnar. Það er forsenda bylt- ingarinnar, valdatöku alþýðu. En þetta ríkisvald er tvíeggjað sverð 227

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.