Réttur


Réttur - 01.10.1980, Side 68

Réttur - 01.10.1980, Side 68
Sænsk áskorun um að styðja verkamenn í Guate- mala. manna voru tveir forystumenn verka- fólksins við kókverksmiðjuna. Rétt er að geta þess hér, áður en lengra er haldið, að enn þann dag í dag, 22. október 1980, hefur ekkert til þessara 27 manna spurst. Af fenginni reynslu er hins vegar talið öruggt að þeir hafi verið myrt- ir með köldu blóði. Verkamenn við kókverksmiðjuna lögðu niður vinnu 23. júní til að mót- mæta þessum atburði. Og það sem eftir- tektarvert var við þetta verkfall var það, að þátt í því tóku einnig félagsmenn ,,gula“ félagsins. Þeir höfðu til þessa ekki tekið þátt í neinum aðgerðum gegn fyrir- tækinu, enda ekki átt yfir höfði sér nein- ar helndaraðgerðir af hálfu þess. 28. júní gerði lögreglan skotárás á verkfallsmennina og særði tvo þeirra, báða félagsmenn í „gula“ félaginu. 1. júlí réðust svo 80 vopnaðir menn úr öryggis- sveitum lögreglunnar inn á verksmiðju- lóðina, og neyddu verkfallsmenn til að hverfa aftur til vinnu. Þótt ekki liafi mikið heyrst um þessa atburði í fjölmiðlum hér á landi, vöktu þeir gífurlega athylgi erlendis og væri ekki fráleitt að halda því fram að þar hafi síðasti naglinn verið rekinn í kistu Johns Trotter. Samningar Ekki leið nema mánuður frá þessum atburðum þangað til Coca Cola Com- pany hafði útvegað mexíkanskan kaup- anda að Embotelladora Guatemalteca SA og hafði, ásamt honum, samþykkt eftir- farandi samningsdrög, sem einnig ber að líta á sem hreina uppgjöf jressa aljrjóð- lega hrings fyrir verkalýðshreyfingunni: 1. Coca Cola Company fjármagnar sam- eignarfélag, jrar sem það verður minni- hlutaaðili (35%), en félagið mun festa kaup á Embotelladora Guatemalteca SA. 2. Coca Cola Company mun skipa nýja stjórnendur EGSA og hafa yfirumsjón með rekstri verksmiðjunnar um 5 ára skeið. .3. Coca Cola Company mun ábyrgjast fullan rétt verkalýðsfélags við EGSA. Til undirstrikunar samkomulaginu samjrykkti Coca Cola Company að af- 260

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.