Morgunblaðið - 21.01.2007, Page 6
6 SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Við höldum með þér!
... ef þú kemur við á næstu Olís-stöð og lætur
fylla bílinn af eldsneyti. Þannig færðu fría
áfyllingu á rúðupissið í kaupbæti.
Meðan við fyllum á geturðu svo fengið
þér pylsu og kók á tilboði.Þorratilboð
á þjóðarrétti Íslendinga
pylsa og kók
199kr.
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
FJALLALEIÐSÖGUMAÐURINN Jökull
Bergmann hefur nýlega gert tvo tímamóta-
samninga sem atvinnufjallamaður á Ís-
landi, annars vegar 2 ára samning við
ítalska skóframleiðandann Scarpa og hins
vegar endurnýjaði hann samning við ís-
lenska fataframleiðandann Cintamani.
Þessir samningar hafa nokkra sérstöðu þar
sem í þeim felst að íslenskur fjallamaður og
klifrari í fremstu röð er styrktur á árs-
grundvelli en ekki til sérstakra ferða eða
leiðangra eins og áður hefur tíðkast. „Þetta
er merki um að fjallamennska og útivist
hvers konar séu orðin mikilvægur þáttur í
vitund þjóðarinnar og virkar vonandi hvetj-
andi fyrir unga og upprennandi fjallamenn
og -konur,“ segir Jökull.
Heiður að fá að vinna með Scarpa
Um samninginn við Scarpa segir Jökull
það mikinn heiður að fá að starfa með hinu
heimsþekkta fyrirtæki en það var fyrir
milligöngu Halldórs Hreinssonar, eiganda
og verslunarstjóra Fjallakofans, umboðs-
aðila Scarpa á Íslandi, að samningurinn
varð að veruleika. „Samningurinn felur í
sér að Scarpa útvegar mér allan skóbúnað,
hvort sem er til göngu, klifurs eða skíða-
mennsku. Í staðinn tek ég að mér að vera
sérstakur talsmaður Scarpa og veita þeim
ráðgjöf ásamt því að taka þátt í þróun nýj-
unga hjá þeim,“ segir Jökull.
Cintamani hefur frá upphafi verið dygg-
asti stuðningsaðili Jökuls í fjallamennsk-
unni. Fyrirtækið hefur séð honum fyrir öll-
um klæðnaði til klifurs og fjallamennsku
ásamt beinum fjárstuðningi, m.a. á meðan
Jökull var við nám í Kanada til að afla sér
alþjóðlegra réttinda sem fjallaleið-
sögumaður. Lauk hann sveinsprófi á síð-
asta ári og varð fyrstur Íslendinga til að ná
þeim áfanga.
Ljósmynd/Jia Condon
Jökull Bergmann klifrari sem-
ur við Scarpa og Cintamani
Fjallamennska
er mikilvæg
í vitund
þjóðarinnar
LAUN starfsfólks í umönnunar-
störfum hækkuðu að meðaltali um
24% á síðasta ári samkvæmt nið-
urstöðum Gallup-könnunar sem
gerð var fyrir Eflingu stéttar-
félag.
Könnunin leiðir í ljós að með-
aldagvinnulaun fyrir fullt starf í
umönnun voru 156 þúsund krónur
á mánuði þegar könnunin var gerð
en í Gallup-könnun frá því í mars
árið 2005 voru meðaldagvinnu-
launin 126 þúsund krónur á mán-
uði.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust á skrifstofu Eflingar eru
þessar niðurstöður hluti af könnun
sem gerð var í september sl.
Niðurstöðurnar eru birtar í ný-
útkomnu fréttablaði Eflingar. Í
umfjöllun um könnunina segir að
launahækkun hjá þessum hópi
hafi því verið að meðaltali þrjátíu
þúsund á liðlega einu ári eða 24%.
Er þá átt við bæði þá sem starfa
við umönnun barna sem og aldr-
aðra og fatlaðra.
Engin ofrausn
fyrir erfið störf
„156 þúsund krónur á mánuði í
meðaldagvinnulaun fyrir jafnerfið
störf og umönnun er engin of-
rausn enda segjast ennþá í nýj-
ustu Gallup-könnun um 56% þessa
hóps vera mjög eða frekar ósátt
með sín laun á meðan þetta hlut-
fall var 31% fyrir félagsmenn í
heild sinni.
Í Gallup-könnun 2005 svöruðu
hins vegar 74% þeirra sem starfa
við umönnun því til að þau væru
mjög eða frekar ósátt með sín
laun, sem staðfestir þann árangur
sem náðst hefur við að bæta kjör
þessa hóps, en ljóst er að gera má
enn betur,“ segir í umfjöllun stétt-
arfélagsins um niðurstöðurnar.
Laun fyrir umönnunarstörf
hækkuðu um 30 þúsund
UMBOÐSMAÐUR Alþingis telur
að ekki sé stoð fyrir því í lögum að
nota greiðslur úr fæðingarorlofs-
sjóði til viðmiðunar þegar „meðal-
tal launa“ síðustu tveggja ára er
fundið en við það miða greiðslur úr
sjóðnum. Sé stutt milli barna fá
foreldrar því 80% af 80% frá sjóðn-
um. Þetta kemur fram í nýlegu áliti
umboðsmanns en í því beinir hann
þeim tilmælum til félagsmálaráð-
herra að endurskoða reglugerðina.
Umboðsmaður, Tryggvi Gunn-
arsson, tók málið upp eftir að kona
kvartaði undan niðurstöðu Trygg-
ingastofnunar ríkisins við útreikn-
ing á greiðslunum. Málavextir eru
þeir að konan eignaðist barn í upp-
hafi árs 2003 og þáði greiðslur úr
fæðingarorlofssjóði í sex mánuði.
Eins og lög um fæðingar- og for-
eldraorlof kveða á um miðuðust
greiðslur við meðaltal launa síðustu
tveggja ára fyrir fæðingu barnsins.
Eignaðist annað barn
Í júlí 2005 eignaðist konan annað
barn og varð það niðurstaða Trygg-
ingastofnunar að telja greiðslur úr
sjóðnum á árinu 2003 til launa þeg-
ar greiðslur vegna seinna barnsins
voru reiknaðar út. Með öðrum orð-
um var niðurstaðan sú að þegar
reiknuð voru út 80% af heildarlaun-
um var tekið mið af fæðingarorlofs-
greiðslunum sem hún naut árið
2003 en þær höfðu numið 80% af
heildarlaunum hennar fyrir þann
tíma.
Konan kvartaði yfir þessum
málalokum til úrskurðarnefndar
fæðingar- og foreldraorlofsmála
sem staðfesti ákvörðun Trygginga-
stofnunar og vísaði til laganna og
reglugerðarinnar. Umboðsmaður
komst á hinn bóginn að þeirri nið-
urstöðu að ákvæði reglugerðarinn-
ar um að taka skyldi tillit til orlofs
þegar meðaltal heildarlauna væri
reiknað út, væri ekki í samræmi við
lög um fæðingar- og foreldraorlof
og benti á að samkvæmt lögum um
tryggingargjald féllu greiðslur úr
fæðingarorlofssjóði ótvírætt ekki
undir launahugtak ákvæðisins.
Beindi hann tilmælum til félags-
málaráðherra og úrskurðarnefnd-
arinnar; að ráðherrann endurskoð-
aði reglugerðina og nefndin tæki
úrskurðinn til endurskoðunar.
Telur að breyta þurfi reglugerð um greiðslur í fæðingarorlofi
Ekki lagastoð fyrir út-
reikningi á greiðslum
Reyðarfjörður | Risastóru þaki súrálsgeymis ál-
vers Alcoa Fjarðaáls hefur verið lyft upp á
geyminn og er nú unnið við að loka skeyt-
unum. Síðasta hluta hólks sem umlykur súr-
álsfæribandið var komið fyrir, en færibandið
liggur neðan af bryggjunni og tengist þaki
súrálsgeymisins.
Nú er unnið við að klæða þennan síðasta
hluta en í framhaldinu verður svo hafist
handa við að koma færibandinu sjálfu fyrir
innan í hólknum. Mikilvægt þykir að þessi
búnaður sé allur tilbúinn til notkunar í lok
febrúar þegar skip kemur til Mjóeyrarhafnar
með fyrsta súrálsfarminn.
Fyrstu prófanir hafa einnig verið gerðar á
raflínum á álverssvæðinu. Straumi var hleypt
á nyrðri línurnar í einn dag í tilraunaskyni
og gekk sú prófun vel. Straumi verður síðan
hleypt á bæði syðri og nyrðri línurnar seinna
í mánuðinum og í framhaldinu fer fram próf-
un á búnaði í spennistöð. Háspennu verður
hleypt á einn hluta búnaðarins í einu og nú
þegar hefur teymið sem vinnur að undirbún-
ingi fyrir gangsetningu hafið prófanir á
tveimur af fimm spennubreytum á svæðinu.
Teymið mun taka við hinum þremur í lok
mánaðarins.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Góður gangur í álversframkvæmdum