Morgunblaðið - 21.01.2007, Blaðsíða 28
læknavísindi
28 SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Á
liðnu ári kom á markað
nýtt lyf í Bandaríkj-
unum, sem hægt er að
sprauta inn í glerhlaup
augans til þess að
stemma stigu við blindu af völdum
hrörnunar í augnbotnum, en ekki
hefur fengist markaðsleyfi fyrir því
hér á landi, enn sem komið er. Ár-
angri meðferðar með lyfinu sem
um ræðir hefur verið líkt við bylt-
ingu, en hátt í þúsund manns eru
verulega sjónskertir út af þessum
eina augnsjúkdómi og mörg þúsund
Íslendingar eru með hann á mis-
munandi stigum, segir Einar Stef-
ánsson, prófessor í augnlækningum
við Háskóla Íslands og yfirlæknir á
augndeild Landspítalans.
„Hrörnun í augnbotnum, líka
nefnd kölkun í augnbotnum, er
gríðarlega algengur hrörn-
unarsjúkdómur í hvíta kynstofn-
inum og er þar með algengasta or-
sök blindu á Íslandi og í öllum
okkar nágrannalöndum, Það hallar
í þúsund manns á Íslandi, sem eru
verulega sjónskertir út af þessum
eina sjúkdómi, og mörg þúsund Ís-
lendingar eru með hann á mismun-
andi stigum,“ segir hann.
Beyglusjón
Hrörnun í augnbotnum er sjald-
gæfur sjúkdómur fyrir sextugt, en
upp úr því fer tíðnin vaxandi og
eftir sjötugt er stór hópur fólks
með hann að marki. „Margir fá
þennan sjúkdóm án þess að hafa af
því veruleg einkenni fyrstu árin, en
hann er nægilega algengur til þess
að vera langsamlega algengasta or-
sök þess að fólk tapar sjón, meira
en helmingur þeirra sem eru sjón-
daprir er það vegna hrörnunar í
augnbotnum,“ segir hann.
Einkenni hrörnunar í augnbotn-
um eru versnandi sjón, en aflögun
á sjón, eða svokölluð beyglusjón,
þar sem það sem fyrir augu ber
virðist beyglað eða bogið eins og í
spéspegli, er þýðingarmikill fyr-
irboði. „Sjómaður sem kom til mín
fyrir mörgum árum lýsti þessari af-
lögun sem dæld í sjóndeild-
arhringnum, en þetta einkenni er
merki þess að sjónhimnan sé að
lyftast eða færast til, kannski
vegna æðanýmyndunar, bjúgs eða
blæðingar undir henni og getur
verið aðvörun um að eitthvað alvar-
legt sé að fara að gerast. Fólk sem
finnur fyrir þessum einkennum
ætti því að hitta sinn augnlækni án
tafar.“
Hrörnun í augnbotnum liggur í
ættum og segir Einar að vís-
indamenn hafi nýlega uppgötvað
erfðavísi sem eykur hættuna á
þessum sjúkdómi. „Um er að ræða
arfbundna skemmd eða hrörnun í
miðsvæði sjónhimnunnar og þeim
vefjum sem eru þar undir. Fyrstu
merkin sem maður sér eru litlir
hvítleitir eða gulhvítir blettir undir
sjónhimnunni, nefndir drusen upp á
þýsku, sem eru yfirleitt ein-
kennalausir. Verri form sjúkdóms-
ins eru þurr rýrnun, þar sem sjón-
himnan hverfur á blettum og
orsakar blinda flekki í sjónsviðinu,
og vota formið, þar sem óeðlilegar
nýjar æðar myndast undir sjón-
himnunni og orsaka bjúg og blæð-
ingu. Í alvarlegustu tilfellunum
geta komið blæðingar undir sjón-
himnuna, sem geta valdið miklum
og skyndilegum skaða,“ segir hann.
Úrræði við hrörnun í augnbotn-
um voru til skamms tíma ekki mjög
árangursrík, segir Einar jafnframt.
„Fyrir nokkrum árum var sýnt
fram á gagnsemi þess að nota sink
og tiltekin vítamín til þess að draga
úr hrörnunarhraðanum, sem marg-
ir nýta sér vissulega. Ef óeðlileg
nýmyndun æða varð síðan undir
sjónhimnunni og hætta var á blæð-
ingu var reynt að bregðast við með
bráðri meðferð. Fyrir 15–20 árum
var byrjað að brenna þessi æðanet
með leysigeisla sem vissulega gerði
sitt gagn, en var langt frá því að
vera fullnægjandi. Bæði var veru-
leg áhætta af meðferðinni sem
slíkri, vegna skaða sem hún getur
valdið, og þar að auki héldu æð-
anetin áfram að vaxa hjá mjög
mörgum, svo árangurinn var
kannski viðunandi hjá 5% sjúk-
linga.
Fyrir sjö árum kom svo fram á
sjónarsviðið tækni þar sem lyfi var
sprautað í æð og leysigeislameðferð
beitt á augnbotninn. Hún er hættu-
minni en sú eldri og árangurinn
töluvert betri, með þeim formerkj-
um þó, að um var að ræða varn-
arstríð. Flestir urðu verri með tím-
anum samt sem áður, þótt þeir
yrðu kannski ekki jafn slæmir og
þeir hefðu orðið án meðferðar. Hún
dró vissulega úr skaðanum, en
gerði ekki meira en það í flestum
tilvikum,“ segir hann.
Fjórða og nýjasta úrræðið við
hrörnun í augnbotnum er að
sprauta lyfjum inn í glerhlaup aug-
ans, annars vegar steralyfi sem
nýtt hefur verið með lyfja- og leysi-
geislameðferðinni sem þegar hefur
verið minnst á. „Hins vegar eru
komin á markað lyf með mótefni
gegn vaxtarþáttum sem framkalla
æðavöxt. Þekktastur þeirra er
VEGF, sem hvetur til myndunar á
æðum, reyndar hvar sem er í lík-
amanum og er yfirleitt til góðs, eins
og til dæmis í vöðvum eða hjarta
þegar líkamann vantar súrefni. En
öðru máli gegnir um augað, vegna
þess hversu viðkvæmt það er. Ein-
angrun þessa vaxtarþáttar er eitt
af stórum afrekum líftækninnar og
nú hefur tekist að mynda mótefni
gegn honum og með því að sprauta
því í augað er hægt að stöðva þessa
æðanýmyndun og stöðva blæðingu
af hennar völdum í flestum til-
fellum. Nýja lyfið er úrræði við al-
varlegasta og bráðasta formi sjúk-
dómsins og getur komið í veg fyrir
þann stórkostlega sjónskaða sem
yrði ella,“ segir Einar.
Bylting
Í þessum flokki eru nokkur lyf,
en það sem virðist öflugast og best
heitir Lucentis og var skráð í
Bandaríkjunum síðastliðið haust.
„Svo eru til skyld lyf, sem þegar
eru komin, annað þeirra er augnlyf,
Macugen, sem er ekki eins kröftugt
en gerir þó gagn, og hitt er krabba-
meinslyfið Avastin. Hið síðarnefnda
hefur verið notað talsvert mikið af
augnlæknum víða um heim á síð-
astliðnum tveimur árum, en hefur
ekki verið rannsakað fyllilega sem
augnlyf, þótt virkni þess á krabba-
mein sé vel þekkt.“
Einar segir að þessi nýjung í
meðferð við hrörnun í augnbotnum
hafi verið kynnt með ítarlegum
hætti í vísindatímaritum á síðasta
ári, og bætir hún sjónina hjá mörg-
um sem þegar hafa byrjað að finna
fyrir breytingum. „Þetta er í sjálfu
sér bylting fyrir þær þúsundir Ís-
lendinga sem eru með ættarsögu
um hrörnun í augnbotnum og eiga
því hugsanlega eftir að fá þann
sjúkdóm síðar á lífsleiðinni. Æða-
nýmyndunin er reyndar alvarleg-
asta form sjúkdómsins og lyfin
verka gegn henni. Hér var gerð at-
hyglisverð rannsókn fyrir nokkrum
árum sem leiddi í ljós, að þeir sem
verða 100 ára og eldri og eru með
ættarsögu um augnbotnahrörnun fá
allir alvarlegasta form þessa hrörn-
unarsjúkdóms, og því er spurningin
einungis sú hvort þeir sem fá hann
á annað borð lifi nógu lengi til þess
að upplifa það.“
En sá galli er á gjöf Njarðar að
hin nýju lyf, ekki síst Lucentis,
skapa meiriháttar úrlausnarefni
fyrir heilbrigðiskerfið. „Annars
vegar er ljóst að þessi meðferð ger-
ir gríðarlegt gagn og á eftir að
bjarga tugum ef ekki hundrað Ís-
lendingum á hverju ári frá því að
tapa sjón. Á því er tæpast vafi.
Lyfið er hins vegar mjög dýrt, það
er gefið einu sinni í mánuði og hver
skammtur kostar yfir hundrað þús-
und krónur. Síðan þarf að sprauta
lyfinu í augað á skurðstofu svo
meðferðin hefur mikið umleikis.
Danskir augnlæknar hafa metið
það sem svo, að þörfin sé 7.500
stunguskammtar á hverja milljón
íbúa, svo hér á landi mætti gera
ráð fyrir 2.000–2.500 skömmtum á
ári. Þeim fylgja kannski tvær skoð-
anir á hverjum einstaklingi, fyrir
og eftir meðferð, þannig að við er-
um að tala um 7.500 heimsóknir að
aðgerðinni sjálfri meðtalinni. Það
er jafnmikið að umfangi og starf-
semin sem er í húsnæði augndeild-
arinnar nú þegar og því erum við
að tala um tvöföldun, sem við höf-
um hvorki húsnæði né mannafla til.
Vísbendingar Litlir gulhvítir eða hvítleitir blettir undir sjónhimnunni eru fyrstu merki hrörnunar í augnbotnum.
Annað verra form hrörnunar í augnbotnum er vota formið svokallaða, þar sem nýmyndun æða undir sjónhimn-
unni orsakar bjúg og blæðingu. Blæðing undir sjónhimnuna getur valdið miklum og skyndilegum sjónskaða.
Nýtt lyf gegn blindu vegna
hrörnunar í augnbotnum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Metnaður Einar Stefánsson prófessor vill meiri stuðning frá stjórnvöldum
í baráttunni gegn blindu og segir að augnlæknar hafi mikinn hug á því að
taka upp nýjungar í tækjabúnaði og lyfjagjöf.
Hrörnun í augnbotnum
er algengasta orsök
blindu á Íslandi. Ekki
hefur fengist leyfi fyrir
nýju lyfi sem hamlar
blindu hér á landi. Helga
Kristín Einarsdóttir tal-
aði við Einar Stefánsson,
prófessor í augnlækn-
ingum, en hann kveðst
ekki bjartsýnn á að leyfi
fáist fyrir umræddu lyfi
vegna aðstöðuleysis og
kostnaðar.
lithimna
sjáaldur
hvíta
hvíta
lithimna
hornhimna
sjáaldur
augasteinn
augnslímhúð
glerhlaup
æðahimna
sjóntaug
makúla (miðja sjónhimnunnar)
sjónhimna
Skýringarmynd af auga