Morgunblaðið - 21.01.2007, Síða 41

Morgunblaðið - 21.01.2007, Síða 41
Atvinnuhúsnæði til leigu/sölu Borgartún/Skúlagata - Reykjavík - Útsýni Vel staðsett húsnæði rétt við Sjávarsíðuna, neðst við Borgartún. Húsið er 3 hæðir og kjallari, í dag samtals 2.660 fm og hefur það allt verið endurnýjað, gler, lagnir, gólfefni o.s.frv. 50 bílastæði. Hentar sérlega vel undir ýmis konar skrifstofu- og þjónustustarfsemi. Búið er að samþykkja u.þ.b. 1.500 fm stækkun á eigninni (sjá mynd) og er húsið þá orðið u.þ.b. 4.200 fm. Viðbygging upp með Skúlagötu ásamt inndreginni hæð (sbr. teikning) tilbúin 1. ágúst 2007. Einnig gæti eignin hentað sérlega vel sem hótel, rétt við miðbæinn og sjávarsíðuna. Húsið hefur mikið auglýsingagildi. Hægt er að fá 2.000 fm fullbúið skrifstofuhúsnæði til afhendingar srax og alla eignina 1. ágúst nk. Suðurhraun - Garðabæ Glæsilegt og stórt atvinnuhúsnæði á besta stað í Hraunum í Garðabæ. 3.000 fm, þar af 1.000 fm skrifstofu- og starfsmannaaðstaða. Samþykkt stækkun í vestur upp á 1.000 fm þannig að þessi hluti gæti verið u.þ.b. 4.000 fm. Viðbygging verður tilbúin 1. júní 2007. Húsið er fjölnotahús, þ.e. með fjölmörgum innkeyrsludyrum, góðum skrifstofum, starfsmannaaðstöðu, kaffistofu og fl. Mikil lofthæð í sölum. Lóðin er 12.700 fm og er malbikuð og mjög vel staðsett. Einnig má geta þess að hinn nýi Álftanesvegur mun liggja með húsinu að sunnanverðu og er auglýsingagildi þess því mikið. Heildarstærð hússins með nýbyggingu verður samtals 6.000 fm. 2.000 fm í austur eru í leigu til BYKO og Vídd. Grensásvegur - Reykjavík Heilt hús á horni Grensásvegar og Fellsmúla Vandað og vel staðsett 1.440 fm skrifstofuhúsnæði. Um er að ræða heila húseign á 4 hæðum með lyftu. Eignin skiptist í fjölmörg skrifstofuherbergi, opin vinnurými, kaffistofur, snyrtingar og skjalageymslur. 1. hæðin gæti hentað vel fyrir verslun eða veitingarekstur. Tilbúið til afhendingar strax. Næg bílastæði; 8 í bílageymslu og 26 á steyptum palli við húsið. Samtals 33 bílastæði fylgja þessari eign. Húsið hefur mikið auglýsingagildi. Upplýsingar veitir Karl í síma 892 0160 eða á karl@kirkjuhvoll.com • Fasteignafélagið Kirkjuhvoll ehf. • www.kirkjuhvoll.com þú finnur draumaeignina hjá okkur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.