Morgunblaðið - 21.01.2007, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2007 51
✝
Elskuleg móðir mín og amma okkar,
KLARA KARLSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli fimmtudaginn
18. janúar.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu miðvikudaginn
24. janúar kl. 13.00.
Sigfús Karl Ísleifsson,
Ingólfur Sigfússon,
Ísleifur Sigfússon, Anna María Jónsdóttir,
Ellen Sigfúsdóttir, Atli Unnsteinsson,
Jóhann Sigfússon, Anna Dís Ólafsdóttir.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför móðursystur
minnar,
LILJU JÓNSDÓTTUR
hárgreiðslumeistara.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu
Holtsbúð, Garðabæ, fyrir frábæra umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Karl Eiríksson.
Ein manneskja í
heiminum er mæliein-
ing, agnarsmá ögn
innan um hina sex
milljarðana. Þegar
manneskjur eru nærri hver annarri
hafa þær áhrif hver á aðra og eitt-
hvað lifnar við. Þannig verður ögnin
mikilvæg, ein af hornsteinum lífs-
ins. Á tímamótum sest maður síðan
niður við skjá og stimplar saman
stafi í orð, sem maður reynir að
spegla tilfinningarnar í, búa til
rými þar sem texti gefur mynd af
manneskju. Þá finn ég að í raun eru
orðin ansi fátækleg andspænis
minningu um manneskju, risastóra
ögn innan um allar hinar.
Ef heimurinn væri bókasafn væri
ein manneskja eins og orð í setn-
ingu, áhersla í ljóði eða tónn í söng.
Sum orðin draga að sér mikla at-
hygli, eru einhvern veginn flókin og
skemmtileg. Það er eins og það sé
skemmtilegra að lesa sumar setn-
ingar ef þessi skrítnu orð koma fyr-
ir í þeim. Sum orð geta gert heilu
kaflana áhugaverða, sumir tónar í
lagi fá mann til að spila það aftur og
aftur. Sumar manneskjur eru svo
þannig gerðar að í kringum þær
glæðist allt lífi og leik, og mann
langar til þess að hitta þær, aftur
og aftur.
Hann Stulli frændi minn var
ótrúlega magnaður maður, og sann-
arlega ein af þessum manneskjum
sem mann langaði alltaf að hitta
aftur og aftur. Það er ekki nóg með
það heldur var röddin hans tónn
sem gaman er að spila aftur, og aft-
ur. Vísurnar hans hafa verið þuld-
ar, aftur og aftur. Stulli var hæfi-
leikaríkur á mörgum sviðum
listarinnar. Það sést augljóslega á
myndverkum hans að tjáningin var
fáguð, en hafði í sér tilfinningu og
sveiflu, sem hann var ríkur af. List-
in er óaðskiljanlegur partur af líf-
inu, ef maður leyfir henni það. Fas
og framkvæmdir Stulla, hvort sem
hann var í fiskinum eða í kór, eða
þar á milli, báru með sér viðhorf og
nærveru hans, sem lífgaði upp hug-
ann og veitti innblástur. Listin var
ekki bara óaðskiljanleg lífi hans,
heldur var hún eðlislæg. Eftir hann
standa verk sem er túlkun hans og
framsetning á því sem hann taldi
mikilvægt, listin endurspeglar
heimsmynd einstaklings. Myndir,
orð og tónar halda áfram að gleðja
og blása í okkur móð, í listinni held-
ur lífið áfram.
Minningarnar um fólkið sem er
manni kærast geymast í hólfi innra
með manni þar sem þær blandast
saman og verða að heild, og eftir
situr tilfinning sem manneskjan gaf
manni. Stulli heldur áfram að
ferðast með okkur, í verkunum sín-
um, lögum og vísum. Minningin er
birta sem mun halda áfram að veita
hlýju og styrk um vetur, og svalt
fjallaloft að sumri.
Elsku fjölskylda, sendi ykkur
mínar innilegustu samúðarkveðjur
á þessum erfiðu tímum.
Bjarki.
Elsku „bestasti“ frændi.
Þú sem ert mér fyrirmynd þess
að vera manneskja.
Manstu þegar þú bjóst til fyrsta
tréð sem ég klifraði í, kenndir mér
GCD þegar ég gat ekki einusinni
farið með ABC. Sýndir mér mynd-
irnar sem þú málaðir. Kenndir mér
að elska slor og fiskilykt, flaka, bei-
naplokka lax, vinna í 30° frosti og
borða núðlusúpu með chili. Manstu
þegar þú dróst okkur í girðingar-
vinnu, sem þurfti alltaf að gerast
þegar það var grenjandi rigning, en
náðir samt að fá tvo grautfúla ung-
linga til að hlæja og svo í bónus
Sturla Erlendsson
✝ Sturla Erlends-son fæddist í
Reykjavík 6. desem-
ber 1954. Hann lést
á Landspítalanum,
Hringbraut, 5. jan-
úar síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Hallgrímskirkju
12. janúar.
(ekki búðina heldur
hitt) að læra nokkrar
góðar og gildar vísur
sem enn eru notaðar í
dag. Manstu þegar þú
hleyptir mér á fyrsta
sveitaballið mitt með
Halla og ég endaði í
skurðinum og setn-
ingin varð til? Manstu
þegar ég braut gír-
kassann í jeppanum,
þegar haugdælan fór
loksins í gang og fyllti
vitin, eftir njólanum,
styttingnum, kjúllun-
um og þegar ég bræddi úr Bjöllunni
með Svenna á flötunum. Manstu
eftir grænu plastskíðunum og gula
volkswagen-húddinu niðrá söndun-
um?
Þú fékkst okkur í sveitina sem
mótaði mig úr barni í mann. Kennd-
ir mér að njóta augnabliksins og
berjast fyrir því að finna húmorinn
á öllum stundum.
En núna ertu farinn með hulstrið
góða, en andann tókstu ekki með
því þú skildir svo ofboðslega margt
og dásamlegt eftir hérna handa
okkur hinum. Okkur hinum sem
komum síðar í partíið sem þú nú
stýrir.
Takk, elsku besti frændi minn í
öllum heiminum. Takk fyrir minn-
ingarnar, myndirnar, orðin, ástina,
vinskapinn, húmorinn, hláturinn,
lífsviðhorfin, bjartsýnina, orkuna,
textana, tónlistina, sönginn og þína
dásamlegu fjölskyldu.
Þú ert og munt alltaf vera hjá
mér og okkur öllum sem fengu þau
dásamlegu forréttindi að kynnast
þér.
Þú ert í mér.
Ég elska þig Stulli minn.
Þinn frændi og vinur,
Erlendur (Elli).
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig
hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég
langa ævi.
(23. Davíðssálmur)
Við skyndilegt fráfall elskulegs
frænda okkar Sturlu leitar hugur-
inn til baka. Minningarnar eru full-
ar af gleði, hamingju og þakklæti.
Sturla var stórkostlegur gleðigjafi í
lífi allra er hann þekktu. Hann tók
alltaf á móti fólki með bros á vör og
opinn faðm. Hann bjó yfir einstakri
gáfu að sjá spaugilegar hliðar á
málefnum líðandi stundar og kom
því frá sér í ræðu og riti og vakti
það mikla eftirtekt. Hann var mikill
lífskúnstner og hagleiksmaður.
Eftir hann liggja mörg listaverk,
hvort sem eru málverk, vísur, sög-
ur, frásagnir eða smíðaverk. Hann
byggði einn lítið sumarhús sl. sum-
ar í landi Böðmóðsstaða. Nefndu
þau húsið Birkilæk og þar áttu þau
hjónin Þóra og hann yndislegar
stundir. Hann var mikið glæsi-
menni og hrókur alls fagnaðar hvar
sem hann kom og eigum við honum
mikið að þakka allar gleðistundir
undanfarin ár er við frændsystkinin
og önnur ættmenni og vinir komum
saman um verslunarmannahelgina í
Björkinni á Böðmóðsstöðum hjá
Gunnvöru og Garðari.
Við trúum því að honum hafi ver-
ið ætlað annað og meira hlutverk á
æðra sviði í himnasölum Drottins.
Þar hafa tekið á móti honum með
opinn faðm þeir sem gengnir eru og
voru okkur kærir.
Við sendum Þóru, Söru, Sölva,
Björk, barnabörnum og systkinum
innilegar samúðarkveðjur og biðj-
um algóðan Guð að styrkja þau.
Minningin um elsku frænda okk-
ar lifir ætíð í hjörtum okkar.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson)
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi.
(Vald. Briem)
Gunnvör Kolbeinsdóttir,
Guðjón Kolbeinsson
og fjölskyldur.
Elsku nafni, guðfaðir, frændi
minn og vinur.
Ég, rétt eins og allir í kringum
mig, á bágt með að trúa því að þú
skulir hafa verið tekinn svona
óvænt og skyndilega frá okkur. Ég
sit löngum stundum og hugsa um
þig kæri vinur og fyllist við það
sorg, söknuði og já, líka reiði. En
það sem eftir situr eru fyrst og
fremst hlýjar minningar um allar
þær skemmtilegu og frábæru
stundir sem við áttum saman.
Ég var skírður í höfuðið á þér af
litlu systur, sem gersamlega dýrk-
aði stóra bróður sinn, og gerir svo
sannarlega enn. Ég hef alltaf verið
afar stoltur af nafngiftinni og oft
hafa komið upp skondin atvik þegar
við höfum báðir kynnt okkur t.d. á
golfvellinum fyrir keppni … Ha!
Báðir? … Líka Sturla!?
Ég rifja líka upp gamlar minn-
ingar frá sumó í Landeyjunum og
man t.d. að þar komu þú og pabbi
mér á bragðið í golfinu, sem litlum
pjakk. Eftir 6 ár saman á Nesinu,
voru þið Þóra orðin mér sem aðrir
foreldrar og Sara sem lítil systir og
samvistir okkar héldu áfram að Ár-
mótum, í Njarðvík og á Grundar-
firði. Stórbóndi eða frystihússeig-
andi, þér fórst allt vel úr hendi. Já,
það er óhætt að segja að þú hafir
verið óhræddur við að prófa nýja
hluti og lifa lífinu til fulls. Eitthvað
sem ég reyni að taka mér til fyr-
irmyndar.
Við vorum svo heppnir að fá að
sinna sameiginlegu áhugamáli okk-
ar í golfinu og þær stundir eru mér
ávallt ofarlega í huga. Ferð okkar
1995 var algjörlega ógleymanleg í
alla staði og koma mörg skemmti-
leg atvik uppí hugann. 10 tíma
lestaferð með stoppum á öllum
krummaskuðum Englands …
„Flúffaðir“ nautapungar í kara-
mellusósu í eftirrétt … búðingur í
líki nautsrassgats í bílnum á hrað-
brautinni … og Max greyið sem
aldrei komst á leiðarenda … Já,
þessa brandara skiljum bara við og
þeir sem hafa fengið að hlýða á alla
ferðasöguna oft og mörgum sinn-
um.
Þú er fyndnasti maður sem ég
hef kynnst og bullið, sem uppúr þér
gat komið, hefur svo sannarlega
skemmt okkur öllum í gegnum tíð-
ina. Löng hlátursköst ykkar
mömmu eru ofarlega í huga mér.
Maður hafði ekki minnstu hugmynd
um af hverju var hlegið en maður
vissi bara að það var fyndið og hlát-
urinn smitandi. Gítarspil, söngur,
gleði og grín á öllum mannamótum,
útilegum, svo ég tali nú ekki um á
„blindfyllismótum“ um verslunar-
mannahelgar. Já, þér var margt til
lista lagt og gast jafnt samið lög,
texta, sungið, spilað á hljóðfæri,
teiknað og málað, allt lék þetta í
höndunum á þér og allt án nokk-
urrar kennslu, algjört náttúrubarn.
Þú hefur sýnt ótrúlegan styrk
eftir að í ljós kom að þú værir veik-
ur og ekki á nokkurn hátt látið það
draga þig niður andlega. Myndlist-
arsýning í desember og alltaf mætt-
ur í öll boð og alltaf hrókur alls
fagnaðar, hreint út sagt ótrúlegur.
Þóra, Sara og Aron, Sölvi, Björk
og dætur, Guð blessi ykkur öll og
gefi ykkur styrk. Ég elska ykkur,
við stöndum öll saman á þessum
erfiðu tímum. Vertu sæll elsku
nafni minn, Guð blessi þig og varð-
veiti. Takk fyrir allt það sem þú
hefur gefið mér. Ég veit að við hitt-
umst aftur einn daginn þarna í upp-
hæðum og þá tökum við hring sam-
an, kæri vinur.
Sturla Höskuldsson.
Kveðja frá
karlakórnum Fóstbræðrum
Látinn er Sturla Erlendsson vin-
ur og félagi í karlakórnum Fóst-
bræðrum. Sturla fæddist 6. desem-
ber 1954 og var því rétt 52 ára er
hann andaðist, langt fyrir aldur
fram. Hann gekk til liðs við Fóst-
bræður árið 1992, söng annan bassa
og starfaði óslitið með Fóstbræðr-
um á meðan heilsa hans leyfði.
Hann var góður félagi, kátur og
lífsglaður. Hann átti létt með að tjá
hugsun sína í bundnu máli og kast-
aði fram hnyttnum vísum og gerði
oft góðlátlegt grín að okkur félög-
unum og einnig að sjálfum sér. Þeg-
ar Sturla veiktist fyrir um fjórum
mánuðum voru Fóstbræður önnum
kafnir við undirbúning 90 ára af-
mæli kórsins og verkefni því
tengdu. Við misstum mikið þegar
einn af máttarstólpum annars
bassa gat ekki verið með í þeim fjöl-
breyttu og krefjandi verkefnum
sem í hönd fóru. Hann fylgdist með
og var í nálægð kórsins þótt kraftar
leyfðu ekki fulla þátttöku.
Viðbrögð Sturlu við veikindum
sínum lýstu vel skaphöfn hans og
hvern mann hann hafði að geyma.
Hann opnaði bloggsíðu þar sem
hann skráði athugasemdir og hug-
leiðingar sínar um lífið, tilveruna og
hvernig honum vegnaði. Oftar en
ekki sló hann þar á létta strengi og
lét eina og eina vísu fylgja með. Við
söngfélagarnir í Fóstbræðrum dáð-
umst að dugnaði, baráttuþreki og
æðruleysi hans og hvernig hann
tókst á við lífsbaráttuna með já-
kvæðum huga. Í byrjun desember
hélt Sturla málverkasýningu í stóru
tjaldi sem hann hafði komið upp við
Ægissíðu. Málverkin voru hengd
upp og boðið upp á heitt súkkulaði
fyrir gesti. Margir vinir og kunn-
ingjar hans mættu á sýninguna og
félagar úr Fóstbræðrum sungu
nokkur lög. Staðarvalið var trúlega
ekki tilviljun þar sem ævistarf hans
hafði tengst sjávarútvegi og vinnslu
sjávarafurða. Þetta litla dæmi sýnir
betur en margt annað hvernig hann
var; frumlegur, sjálfstæður í
ákvörðunum, hafði auga fyrir
kjarna máls og framkvæmdi á ein-
faldan hátt það sem þurfti. Mál-
verkasýningin tókst vel og sýndi
okkur enn eina hlið á honum sem
fáir vissu um. Karlakórinn Fóst-
bræður er félagsskapur sem gerir
miklar kröfur til félaga sinna, bæði
félagslega og tónlistarlega. Kórinn
æfir reglulega tvisvar í viku og tek-
ur að sér fjölmarga tónlistarvið-
burði á hverju starfsári. Sturla tók
þátt í öllu þessu starfi og var ávallt
boðinn og búinn að leggja sitt af
mörkum. Á ferðalögum kórsins inn-
anlands sem utan var hann hrókur
alls fagnaðar og mun hans verða
sárt saknað. Í kórstarfinu bindast
félagar sterkum vináttuböndum og
þar myndast sá samhljómur sem
einkennir tónlistarflutning kórsins
og félagsstarf. Starf í Fóstbræðr-
um er ekki síður krefjandi fyrir
maka og fjölskyldur kórmanna.
Góður skilningur og einhugur þarf
að ríkja um þetta áhugamál. Sturla
naut í hvívetna stuðnings Þóru, eig-
inkonu sinnar, sem ávallt birtist
með bros á vör og jákvætt viðmót.
Það er með trega að við kveðjum
kæran Fóstbróður en minningin
um góðan dreng mun lifa. Fyrir
hönd kórsins votta ég eiginkonu
hans og fjölskyldunni allri okkar
dýpstu samúð.
Smári S. Sigurðsson,
formaður Fóstbræðra.
Takk fyrir að við fengum
að kynnast þér.
Hvers vegna, hvers vegna
fórstu burt? Tíminn þinn var
of stuttur hér.
Við syngjum og spilum
hér, eins og þú munt gera
þar.
Hvíldu í friði
Carola og Jarmo, Finnlandi.
HINSTA KVEÐJA