Morgunblaðið - 15.12.2007, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Björn Björnsson og
Gunnhildi Finnsdóttur
SKAGFIRSKIR nemendur náðu
áberandi góðum árangri í PISA-
könnuninni þar sem lesskilningur
fimmtán ára barna var mældur og
sömuleiðis kunnátta þeirra í nátt-
úrufræði og stærðfræði. Rannsóknin
var gerð í fyrra, en niðurstöður birt-
ust ekki fyrr en nýlega. Skagfirðing-
arnir komu best út á landinu í öllum
greinunum. Fræðsluumdæminu til-
heyra þrír skólar sem bjóða upp á
kennslu á síðari stigum grunnskóla,
Árskóli á Sauðárkróki, Varmahlíð-
arskóli og Grunnskólinn á Hofsósi.
Alls stunda rúmlega sex hundruð
börn nám í skólunum þremur, flest í
Árskóla.
Ekkert stress í skólanum
Þegar fréttaritari Morgunblaðs-
ins heimsótti skólann í gærmorgun
voru krakkarnir í 9. og 10. bekk í
ljúfum gír, enda langt frí framundan
og annarpróf ekki fyrr en í febrúar.
Þó viðurkenndu þau að margt væri
ógert fyrir jólin og sumum stelp-
unum sýndist að eitthvað myndi
verða útundan. Þær sögðu þó ekkert
stress í skólanum, þar væri
skemmtilegt og kennararnir líka
komnir í jólaskap.
Óskar Björnsson skólastjóri sagð-
ist að sjálfsögðu stoltur af krökk-
unum, en ekki síður af starfsfólki
skólans og samfélaginu í firðinum.
„Þetta kemur okkur satt best að
segja ekki neitt sérstaklega á
óvart,“ sagði Óskar. „Við teljum
okkur vera að vinna gott starf hérna
og þetta er ein vísbending um það.“
Fyrirmyndir í Finnlandi
Hann segir enga einfalda skýr-
ingu á góðum árangri krakkanna en
þó hafi stöðugleiki í starfsmanna-
haldi sitt að segja. „Endurmenntun
hefur verið mjög virk hjá starfsfólki
og við höfum verið afar dugleg að
heimsækja skóla, bæði hér og er-
lendis til þess að afla okkur þekk-
ingar. Við höfum meðal annars farið
til Finnlands og skoðað skóla, því
þeir hafa verið að koma vel útúr
PISA-könnuninni. Það er mikill
metnaður hérna til þess að gera bet-
ur.“
Óskar nefnir sem dæmi um vinnu-
brögð í skólunum í Skagafirði, að í
þeim öllum sé stundað kerfisbundið
sjálfsmat. „Við vinnum þar eftir
skosku kerfi í samráði við vinaskóla
í Skotlandi sem hefur leiðbeint okk-
ur. Þar eru allir þættir skólastarfs-
ins metnir og það koma allir að því.
Það gengur út á það að finna bæði
veikar og sterkar hliðar og hvernig
við getum viðhaldið þeim sterku og
styrkt þær veiku. Það hefur hjálpað
mikið. Við teljum okkur vera lifandi
skóla þar sem við erum alltaf að
reyna að gera betur.“
Júlíus Björnsson hjá Námsmats-
stofnun segir fulla ástæðu til þess að
samgleðjast Skagfirðingum, en ann-
ars sé rétt að gera ákveðinn fyrir-
vara við niðurstöðurnar. Það standi
ekki til að birta upplýsingar um
frammistöðu nemenda í einstökum
fræðsluumdæmum opinberlega þó
að fræðsluskrifstofurnar fái þær
hver um sig til eigin nota. „Það verð-
ur að hafa í huga að þegar búið er að
brjóta þetta svona langt niður þá er
tölfræðilega meiri óvissa í nið-
urstöðunni.“
Skagfirskir skólar bestir
Klárir krakkar Stelpurnar í 10. bekk Árskóla voru í góðu skapi í gær
Komu best út í PISA-könnuninni af íslenskum skólum í öllum greinum Sérstaða skagfirsku
skólanna liggur í góðu starfsmannahaldi, endurmenntun og kerfisbundnu sjálfsmati
Í HNOTSKURN
»Allar 30 OECD-þjóðirnartóku þátt í rannsókninni,
ásamt 27 öðrum löndum.
»Um það bil 400.000 nem-endur í öllum þátttökulönd-
unum tóku þátt í PISA árið 2006.
Á Íslandi tóku um 80% af öllum
15 ára nemendum þátt í könn-
uninni.
»Áherslan í rannsókninni árið2006 var á náttúrufræði í
víðri merkingu, með minni
prófhlutum í lestri og stærð-
fræði.
EKKI má gleyma að gefa fuglunum
á Tjörninni brauðmola að bíta í á
aðventunni enda fleiri en mann-
fólkið sem þá vilja fá gott í gogginn.
Gaman er að skoða fuglalífið við
Tjörnina á fallegum vetrardegi.
Það þarf að gefa öndum brauð...
Morgunblaðið/Valdís Thor
BJÖRN Bjarnason dóms- og kirkju-
málaráðherra hefur skipað Pál E.
Winkel aðstoðarríkislögreglustjóra í
embætti forstjóra
Fangelsismála-
stofnunar ríkis-
ins. Páll E. Win-
kel er 34 ára að
aldri.
Umsóknar-
frestur rann út
10. desember sl.
og voru umsækj-
endur auk Páls
þau Erla Kristín
Árnadóttir, lögfræðingur hjá Fang-
elsismálastofnun, og Halldór Frí-
mannsson, lögmaður á fjármálasviði
Reykjavíkurborgar.
Valtýr Sigurðsson, sem nýlega var
skipaður ríkissaksóknari af dóms-
málaráðherra, hefur verið forstjóri
Fangelsismálastofnunar undanfarin
ár.
Nýr
forstjóri
Tekur við Fangels-
ismálastofnun
Páll E. Winkel
FÆSTIR forystumenn á vinnu-
markaðinum gera nú ráð fyrir að
samningum verði lokið fyrir áramót
en skv. viðræðuáætlunum ætti und-
irritun nýrra kjarasamninga að fara
fram í dag. „Það hefur ósköp lítið
gerst,“ segir Kristján Gunnarsson,
formaður Starfsgreinasambandsins.
Unnið er að því í einstökum hópum
starfsgreinasviðanna að reyna að
fækka afmörkuðum atriðum sem
standa út af. Gert er ráð fyrir að
næsti fundur SGS og SA um launa-
liði verði 20. desember. Fram að því
verður fundað um sameiginlegar
áherslur á borði landssambanda ASÍ
gagnvart SA. Kristján segir það
e.t.v. skýrast í næstu viku hvort við-
ræðurnar komist á fulla ferð strax
upp úr áramótum.
Gunnar Páll Pálsson, formaður
VR, tekur í sama streng og segir að
menn bíði nú eftir svörum við sam-
eiginlegum kröfum verkalýðshreyf-
ingarinnar gagnvart stjórnvöldum,
sem vonast sé til að liggi fyrir í
næstu viku. Viðræður á næstunni
snúist að mestu um sérmál á vegum
einstakra félaga. Á hann ekki von á
stórum tíðindum af kjaraviðræðun-
um fyrr en í janúar.
Almenn kurteisi
ASÍ gagnrýnir harðlega viðbrögð
SA við sameiginlegum kröfum ASÍ-
félaganna um að samþykkt ILO um
rökstuddar uppsagnir verði innleidd
hér á landi. Túlkun SA á kröfunum
séu útúrsnúningar. „ASÍ hefur ekki
lagt til neinar breytingar á núver-
andi löggjöf um hvað teljast vera
ólögmætar uppsagnir. ASÍ hefur
ekki lagt til neinar breytingar á rétti
atvinnurekanda til að segja launa-
fólki upp störfum. ASÍ hefur heldur
ekki lagt til neinar breytingar á sam-
skiptum atvinnurekenda og launa-
fólks í aðdraganda hugsanlegra upp-
sagna. Að halda öðru fram er
ókurteisi,“ segir í yfirlýsingu ASÍ.
Viðræður á fulla ferð
upp úr áramótum?
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað Sel-
tjarnarneskaupstað af skaðabóta-
kröfu konu sem vikið var úr skóla í
sveitarfélaginu og síðan neitað um
skólavist vegna fötlunar og sjúk-
dóma. Segir Hæstiréttur m.a., að
foreldrar konunnar hafi ekki átt for-
takslausan rétt á að konan nyti að-
gangs að almennum grunnskóla í
heimabyggð.
Konan er fædd 1985 og hóf nám í
skóla á Seltjarnarnesi árið 1991 og
stundaði grunnskólanám í sveitarfé-
laginu til ársins 2000.
Konan höfðaði skaðabótamál gegn
Seltjarnarneskaupstað og taldi sig
hafa sætt alvarlegu og viðvarandi
einelti af hálfu skólayfirvalda í bæn-
um. Einkum vísaði hún til tímabund-
innar brottvísunar úr Valhúsaskóla
snemma árs 2000, synjunar skólans
um að veita henni skólavist í ágúst
sama ár og tilkynningar skólaskrif-
stofu Seltjarnarnesbæjar í október
það ár um að skólinn gæti ekki veitt
henni viðtöku.
Hæstiréttur segir að gögn málsins
sýni að um langt skeið hafi ríkt
grundvallarágreiningur milli stjórn-
enda grunnskóla Seltjarnarness og
sérfræðinga á þeirra vegum annars
vegar og foreldra konunnar hins
vegar um tilhögun kennslu hennar.
Skólayfirvöld töldu ekki unnt að
veita konunni kennslu við hæfi í
heimaskóla sökum mikillar fötlunar
og að hag hennar væri betur borgið í
sérskóla. Foreldrarnir töldu samt að
dóttir þeirra ætti ótvíræðan rétt á að
stunda nám í almennum grunnskóla
og þau gætu ein sem forráðamenn
hennar tekið ákvörðun um hvort sótt
yrði um vist í sérskóla.
Hæstiréttur segir að þrátt fyrir
meginregluna í lögum um grunn-
skóla um að nám fatlaðra nemanda
fari fram í heimaskóla sé ljóst af at-
hugasemdum með frumvarpi til
grunnskólalaga að fötlun nemanda
kunni að vera slík að hann geti ekki
stundað nám í almennum grunn-
skóla.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Árni Kolbeinsson, Markús Sig-
urbjörnsson og Ólafur Börkur Þor-
valdsson.
Átti ekki
rétt á
skólavist
Fötluð kona tapar
bótamáli í Hæstarétti
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Björgum
mannslífum!
• Ávallt tilbúið til notkunar
• Einfalt og öruggt
• Einn aðgerðarhnappur
• Lithium rafhlaða
• Íslenskt tal
PRIMEDIC hjartastuðtæki