Morgunblaðið - 15.12.2007, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 27
LANDIÐ
Eftir Jón Sigurðsson
Blönduós | Viðbygging við leik-
skólann Barnabæ á Blönduósi var
tekin í notkun við athöfn á dög-
unum, að viðstöddu fjölmenni.
Fyrir tæpu ári var skrifað undir
samninga við trésmiðjuna Stíg-
anda á Blönduósi um stækkunina
og hófust framkvæmdir í byrjun
janúar á þessu ári. Nýi bæj-
arstjórinn á Blönduósi, Arnar Þór
Sævarsson, flutt stutt ávarp við
opnunina og fagnaði fram-
kvæmdalokum og hrósaði starfinu
sem fer þarna fram.
Jóhanna Jónasdóttir leikskóla-
stjóri sagði að þegar hún hóf störf
við leikskólann fyrir 15 árum
hefði verið 77 börn í skólanum
sem skiptust fyrir og eftir hádegi
en núna væru börnin 68. Með til-
komu þessar viðbyggingar, sem
er 186 fermetrar og stækkar skól-
ann um 40%, breytist öll aðstaða
til batnaðar. Í nýja hlutanum er
gott eldhús og aðstaða fyrir tvær
deildir sem halda utan um yngstu
börnin, jafnframt því að þar er
aðstaða fyrir starfsfólk. Núna er
rými fyrir um 66 börn til heils-
dagsvistunar þannig að engir bið-
listar eftir leikskólaplássi eru á
Blönduósi.
Eins og fyrr greinir var fjöl-
menni á opnunarhátíðinni, leik-
skólanum bárust gjafir í tilefni
stækkunarinnar, leikskólabörnin
skemmtu viðstöddum með söng og
gestir þáðu veitingar.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Opnað Börnin á leikskólanum sungu þegar viðbótin var tekin í notkun.
Húsnæði leikskólans
stækkar um 40%
Eftir Örn Þórarinsson
Skagafjörður | ,,Þessi bók er búin að
vera þrjú ár í meðgöngu. Þetta
fjórða bindi af Byggðasögu Skaga-
fjarðar er reyndar eins og tvær væn-
ar bækur að stærð,“ sagði Hjalti
Pálsson ritstjóri þegar hann kynnti
fjórða bindið af Byggðasögu Skaga-
fjarðar. Bókin fjallar um Akrahrepp
og í tilefni af útkomu hennar var
haldinn fagnaður í samkomuhúsi
sveitarinnar fyrir skömmu.
Bókin er 576 blaðsíður og í henni
eru yfir 800 ljósmyndir, teikningar
og kort. Bókin er með sama sniði og
fyrri bækur af Byggðasögunni. En
verkið er samið með talsvert öðrum
aðferðum en kannski tíðkast ann-
arsstaðar. „Þessi byggðasaga er
mjög sér á parti. Hér er verið að feta
algerlega nýja braut í ritun byggða-
sögu og mér er til efs að það verði
gert sambærilegt verk aftur. Bæði
vegna þess að þetta er gríðarlega
tímafrekt verk og kostnaðarsamt og
svo er önnur ástæða sem vegur
þyngra að þetta byggist að verulegu
leyti á vettvangsferðum og viðtölum
við fólk. Bæði ábúendur jarða og
einnig burtflutta en við lifum á þeim
tíma að sú kynslóð sem er að taka
við er ekki nándar nærri eins tengd
landinu sínu og sú kynslóð sem nú er
óðum að hverfa,“ sagði Hjalti.
„Fögnum og verum glaðir með
Hjalta“ var fyrirsögn samkomunnar
sem hreppsnefnd Akrahrepps stóð
fyrir. Auk þess að fjalla um bókina
og efni hennar var boðið uppá kór-
söng, ljóðalestur og hljóðfæraleik
auk þess sem formaður útgáfu-
nefndar, Bjarni Maronsson, flutti
ávarp.
Auk Hjalta lásu upp úr bókinni
Sigríður Garðarsdóttir í Miðhúsum
og Agnar H. Gunnarsson oddviti. Á
milli voru svo skemmtiatriði. Jón
Gíslason í Miðhúsum og Kristín
Halla Bergsdóttir á Grænumýri léku
saman á harmónikku og fiðlu og
vakti flutningur þeirra verðskuldaða
hrifningu. Einnig söng Kammerkór
Skagafjarðar nokkur lög undir
stjórn Jóhönnu Marinar Ósk-
arsdóttur. Samkomunni lauk svo
með að Sigurður Hansen, skáld í
Kringlumýri, las upp nokkur ljóð.
Í þessari nýútkomnu bók er alls
fjallað um 96 býli í Akrahreppi. Er
fjallað um hverja einustu jörð sem
hefur einhverntímann verið í ábúð á
árabilinu 1781 til 2007 í texta og
myndmáli. Gefin er lýsing á jörðinni,
getið bygginga og birt tafla yfir fólk,
áhöfn og eignarhald á tímabilinu
1703 til 2000. Þá er lýst öllum forn-
býlum og seljum sem tengjast ein-
stökum jörðum. Einnig er ítarlegur
kafli um forna byggð í Austurdal.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Saga Agnar Gunnarsson oddviti og Hjalti Pálsson ritstjóri fagna.
Sagan skrifuð eftir
vettvangsferðir og viðtöl
! """!
!
Hr
ing
br
ot
8*(
! !,9"
(" :4:98;