Morgunblaðið - 15.12.2007, Blaðsíða 39
vín
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 39
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
Franska héraðið Roussillonhefur sótt í sig veðrið í vín-gerð á undanförnum árum
þó ekki sé það stórt yfir að líta úr
hlíðum Canigou-fjalls rétt norðan
við landamæri Frakklands og Spán-
ar. Einn þeirra vínbænda sem átt
hafa sinn þátt í að auka veg og virð-
ingu vína þaðan er Jean Luc Pujol
sem heldur því fram að hvergi sé
betra að rækta vín. Vín hans bera
heiti fjölskyldunnar, Pujol, enda hef-
ur vínrækt gengið mann fram af
manni allt frá 1785, en í dag ræktar
Pujol vín á 65 hekturum.
Pujol segir líklegt að sú hefð eigi
eftir að lifa lengi enn, í það minnsta
hafa börn hans sýnt áhuga á víngerð.
„Það skiptir þó öllu að ástríða sé
fyrir víngerðinni, að farið sé út í
hana af lífi og sál, og ég sé ekki betur
en að þau vilji feta í fótspor okkar.“
Gestamóttaka Pujol víngerðar-
innar er í gömlu húsi í Fourques.
Vínkjallari fyrirtækisins er baka til,
en einnig er fyrirtækið með annan
vínkjallara inni í þorpinu. Á síðustu
árum hefur Pujol unnið að endur-
bótum í víngerðinni og meðal annars
tekið upp lífræna ræktun eingöngu,
sem hann segist gera til að tryggja
mestu bragðgæði.
Uppskera hvers árs er einstök
Eins og getið er í upphafi velur
fólk títt sama vínið þegar gera á sér
dagamun og vill þá helst að það
bragðist alveg eins, sama hvernig ár-
ferði var á ræktunarstað. Margir
framleiðendur hafa líka gert út á
slíkt, tryggja það að hver árgangur
bragðist nákvæmlega eins og fyrri
árgangar, og náð góðum árangri á
markaði fyrir vikið.
Pujol gefur ekki mikið fyrir slíka
vínrækt og segir að þau vín sem séu
þannig unnin séu í raun Coca-Cola
vínheimsins. „Vín er lifandi vara og
uppskera hvers árs er í raun einstök.
Fyrir vikið verða árgangarnir sem
bruggaðir eru úr uppskerunni líka
einstakir og það er að mínu viti eitt
það sem hellar mest við vínfram-
leiðslu.
Hver víntegund hefur sín sér-
kenni sem víngerðarmaðurinn hefur
mótað, ýmist með því hvaða þrúgur
eru notaðar, hve lengi vínið er látið
standa og í hvernig ílátum og svo má
lengi telja. Fyrir vikið getur fólk
treyst því að viðkomandi vín sé af
sömu gæðum ár eftir ár, en það stór-
kostlega við þetta allt saman er að
það er aldrei nákvæmlega eins, hver
árgangur er upplifun útaf fyrir sig.“
Hér á landi fást þrjár rauðvíns-
gerðir frá Pujol og tvær hvítvíns-
gerðir, allt lífrænt ræktað vín. Einn-
ig eru fáanleg styrkt vín frá Pujol,
Muscat de Rivesaltes, Rivesaltes
Ambre og Rivesaltes Grenat, auk-
inheldur sem fáanlegt er sannkallað
jólavín, jóla-muscat sem svo er kall-
að, en það er styrkt, sætt og gullið
desertvín sem kemur á markað rétt
fyrir jólin ár hvert.
Ástríða í víngerð
Ljósmynd/ Björg Sveinsdóttir
Ástríða Jean Luc Pujol, vínbóndi í Roussillon.
Pujol í Roussillon Vínræktin er
fjölskyldufyrirtæki og hefur gengið
mann fram af manni allt frá 1785.
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
mbl.is
smáauglýsingar
Myndaðu
eins og
fagmaður.
Borgaðu
eins og
leikmaður.
Taktu hágæða ljósmyndir heima
í stofu, leiktu þér að ljósmyndun.
Tilvalið fyrir eigendur SLR véla.
www.hanspetersen.is
INTERF
IT EX15
0
HEIMA
STÚDÍÓ
39.990kr
Til sölu Golf GTI
Árg. 2005, ekinn 36 þús. Sjálfskiptur (DSG),
Xenon, lúga, aðgerðarstýri og hiti í sætum.
Er á góðum vetrardekkjum.
Fallegur og vel með farinn bíll.
Upplýsingar í síma 899 2991.