Morgunblaðið - 15.12.2007, Side 74
74 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
ÞAÐ verður heldur óvenjuleg jóla-
uppákoma sem fer fram í Listasafni
Árnesinga í Hveragerði í dag.
Þar munu Kira Kira úr Tilrauna-
eldhúsinu, Kippi Kaninus og útgáfu-
félagið Apaflasa standa fyrir jóla-
messi.
„Ég rambaði inn í Listasafnið á
ferð minni fyrir austan og áður en ég
vissi af var Inga Jónsdóttir safn-
stjóri búin að bjóða Tilraunaeldhús-
inu að vera með jóladagskrá. Ég hó-
aði þá í Kippa Kaninus, öðru nafni
Guðmund Vigni Karlsson, guðfræð-
ing, raftónlistarmann og jarðarfar-
arsöngvara og Oddnýju Eir Ævars-
dóttur safnheimspeking, annan
tveggja ritstjóra útgáfufélagsins
Apaflösu,“ segir Kira Kira eða
Kristín Björk Kristjánsdóttir eins
og hún heitir.
Fótstignir reimleikar
„Oddný Eir mun lesa upp úr
nokkrum óútgefnum hugvekjum,
svo sem; Bólfestublæðing jólaljóss,
Útbrot, Jólaskraut og Farandkap-
ella I, Óvæntur gestur. Guðmundur
Vignir spilar jólasyrpu á kjálka-
hörpu og setur upp innsetningu úr
pípum gamals kirkjuorgels sem við
tengjum við reykvél,“ segir Kira
sposk og bætir við; „Ég ætla m.a. að
frumflytja lítið jólalag á forláta
ferðapumpuorgel sem ég fékk lánað
hjá kirkjukór Hveragerðis og hefur
gælunafnið Trippið. Kippi hefur sett
upp hljóðinnsetningu úr kirkju-
orgelpípunum og síðan umlykja
myndbandsinnsetningar gesti á
meðan þeir fóðra sig á piparkökum í
laginu eins og rafmagnsbassar. Svo
frumsýni ég súper 8 myndband sem
heitir Fótstignir reimleikar og vísar
örlítið til þess heilagleika sem við
leitum að á jólunum, á býsna
draugalegan hátt þó. Það er eitthvað
við rödd fótstigna orgelsins sem mér
finnst mjög hátíðlegt og sjarm-
erandi.“
Jólamessið hefst í Listasafninu kl.
17 og stendur yfir í klukkutíma.
Tilraunaeldhúsið með þeim Kiru,
Jóhanni Jóhannssyni og Hilmari
Jenssyni er nýkomið úr tónleikaferð
frá Kína sem Kira segist hafa tekist
mjög vel. „Við tókum þátt í raf-
listahátíðinni NOTCH. Héldum
ferna tónleika í Sjanghæ, Gu-
ongzhou og Peking þar sem við vor-
um einnig með í myndlistarsýningu.
Framsækið tónlistarfólk er lítið á
ferðinni í Kína en okkur var tekið vel
og það myndaðist oft hvínandi fín
stemning. Mér leið eins og ógurlegri
rokkstjörnu í Guongzhou með 700
skríkjandi dúllur hoppandi við tón-
list sem sennilega engin þeirra hafði
heyrt áður,“ segir Kira en þetta er
síðasta ferð Jóhanns með Tilrauna-
eldhúsinu í bili svo eftir standa hún
og Hilmar.
Auk þess að koma fram á Lista-
safni Árnesinga seinnipartinn verð-
ur Kira einnig með tónleika í Jóla-
dagatali Norræna hússins í
hádeginu í dag. Þess má geta að í
Listasafni Árnesinga stendur nú yfir
áhugaverð sýning úr safneign sem
gestum á Jólamessi gefst kostur á að
skoða.
Hugvekja,
kjálkaharpa og
ferðapumpuorgel
Kira Kira, Kippi Kaninus og
Apaflasa í Listasafni Árnesinga
Jólamess Frá vinstri, Kira Kira, Oddný Eir og Kippi Kaninus. Í rýminu í Listasafni Árnesinga.
JÓLAMYNDIN
2007
NÚ VERÐUR ALLT VITLAUST!
ÍKORNARNIR ALVIN, SÍMON OG THEÓDÓR SLÁ Í GEGN
SEM SYNGJANDI TRÍÓ!
STÓRSKEMMTILEG GAMANMYND FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA OG JÓLAMYNDIN Í ÁR.
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Sími 564 0000Sími 462 3500
Sími 551 9000
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Regnboganum
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó
* Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ*
Run fat boy run kl. 3 - 5:50 - 8 - 10:10
Saw IV kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Butterfly on a Wheel kl. 3 - 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 14 ára
Dan in real life kl. 3 - 5:45
La vie en Rose kl. 6 - 9 B.i. 12 ára
Alvin og íkornarnir m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 - 8
Alvin and the Chipmunks m/ensku tali kl. 2 - 4 - 6 - 8 -10
Alvin and the Chipmunks m/ensku tali kl. 2 - 4 - 6 - 8 -10 LÚXUS
Bee Movie m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6
Duggholufólkið kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára
Hitman kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Dan in real life kl. 10
Alvin og íkornarnir ísl. tal kl. 2 - 4 - 6 - 8
Run fatboy run kl. 2 - 4 - 6
Duggholufólkið kl. 8 - 10 B.i. 7 ára
Saw IV kl. 10 B.i. 16 ára
NÝ ÍSLENSK ÆVINTÝRAMYND EFTIR ARA KRISTINSSON SEM GERÐI M.A. STIKKFRÍ. KALLI ER SENDUR
Á AFSKEKKTAN SVEITABÆ TIL AÐ EYÐA JÓLUNUM MEÐ PABBA SÍNUM ÞAR SEM HANN VILLIST, LENDIR Í SNJÓBYL
OG HITTIR FYRIR BÆÐI ÍSBJÖRN OG DULARFULLAR VERUR OFL!
eeee
- B.S., FBL
„...ein besta fjölskyldu-
afþreyingin sem í boði
er á aðventunni”
eee
- S.V., MBL
„Duggholufólkið bætir
úr brýnni þörf fyrir
barnaefni”
eeee
- Ó.H.T., RÁS 2
Þetta er frumleg, úthugsuð,
vönduð og spennandi barna-
og fjölskyldumynd, besta
íslenska myndin af sínu tagi.
eee
- V.J.V., TOPP5.IS
MYND SEM ENGIN
ÆTTI AÐ MISSA AF!
JERRY SEINFELD OG CHRIS ROCK SJÁ TIL ÞESS AÐ
ALLIR ÆTTU AÐ FARA BROSANDI HEIM EN AUK
ÞEIRRA FER OPRAH WINFREY, STING, RAY LIOTTA
OG RENÉE ZELLWEGER MEÐ HLUTVERK Í ÞESSARI
GAMANSÖMU TEIKNIMYND.
ÚR BÝFLUGNABÚINU
Í BULLANDI VANDRÆÐI
eee
- H.J. MBL
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
SÝND Í SMÁRABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI
Magnaður spennutryllir sem gerður er eftir hinum
frábæru tölvuleikjum með Timothy Olyphant úr
Die Hard 4.0 í fantaformi.
Hvað myndir þú gera til að vernda fjölskyldu þína?
Pierce Brosnan heldur hjónunum
Gerard Butler (úr 300)
og Mariu Bello í heljargreipum!
En ekki er allt sem sýnist
í þessari mögnuðu spennumynd!
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíó, Smárabíó og Regnboganum ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
- Kauptu bíómiðann á netinu -
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
SÝND Í REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓISÝND Í REGNBOGANUM OG HÁSKÓLABÍÓI