Morgunblaðið - 08.02.2008, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 08.02.2008, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 9 AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Algjört verðhrun lágmark 60% afsláttur Opið virka daga 10.00-18.00 Laugard. Bæjarlind 10.00-16.00 og Eddufell 10.00-14.00 M bl .9 45 03 2 Nýjar vörur í Bæjarlind Gerið góð kaup á útsölunni í Eddufelli Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Elica háfarnir eru einstakt sambland af tækni og fagurfræði. Þessir einstöku háfar fást fyrir vegg og yfir eyjur. Elica háfarnir eru frábær lausn fyrir eldhúsið. Verið velkomin í verslanir Eirvíkur í Reykjavík og á Akureyri og kynnið ykkur Elica háfana. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri | Sími 588 0200 www.eirvik.is Elica háfar glæsileg hönnun og fágað yfirbragð vi lb or ga @ ce nt ru m .is Aðferðirnar er að finna í þessari bók. Febrúartilboð - 1990 kr. Gerðu hugann að öflugum bandamanni! MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá stjórn Spron hf. „Í tilefni af umfjöllun fjölmiðla um viðskipti innherja með stofnfjárhluti í SPRON, sem áttu sér stað fyrir breytingu SPRON í hlutafélag og skráningu í Kauphöll Íslands, vill stjórn SPRON taka eftirfarandi fram: Fjármálaeftirlitið heimilaði ekki birtingu viðskipta innherja í SPRON. Reglur um viðskipti inn- herja með stofnfjárhluti voru settar að frumkvæði SPRON þegar verið var að undirbúa stofnun tilboðs- markaðar með stofnfjárhluti 2004. Eins og lög gera ráð fyrir var óskað eftir umsögn Fjármálaeftirlitsins um stofnun tilboðsmarkaðarins og gerð reglnanna. Í tillögum stjórnar var meðal annars lagt til að upplýs- ingar um viðskipti innherja með stofnfjárbréf yrðu gerð opinber með sama hætti og slíkar upplýsingar eru gerðar opinberar hjá skráðum félögum í kauphöll. Í svari Fjármálaeftirlitsins, dag- settu 30. júní 2004, er tekið fram með vísan í 34. gr. kauphallarlag- anna „að koma þurfi í veg fyrir rugl- ingshættu við skipulegan tilboðs- markað eða kauphöll, en hætta á ruglingi getur skapast svo sem með því að birta skipulega upplýsingar um viðskiptin með sama hætti og kauphöll og skipulegur tilboðsmark- aður gera eða á nokkurn þann hátt að hætta skapist á ruglingi við slíka starfsemi.“ Varðandi birtingu viðskipta inn- herja er síðar sagt í sama bréfi að „það er mat Fjármálaeftirlitsins að verði upplýsingar birtar um við- skipti þeirra stofnfjáreigenda sem jafnframt eru fruminnherjar SPRON, með stofnfjárskírteini, sé með því verið að líkja eftir reglum sem gilda um skráða fjármálagern- inga og er það líklegt til að valda ruglingshættu milli tilboðsmarkað- arins og kauphallar eða skipulegs tilboðsmarkaðar“. Jafnframt er sagt síðar í bréfinu: „Að mati Fjármála- eftirlitsins er fyrirhuguð upplýs- ingagjöf til þess fallin að gefa til kynna að verðbréfamarkaðurinn sé skipulagður og er hún því óheimil skv. 34. gr. kphl.“ Af framansögðu má eftirfarandi vera ljóst: Vilji stjórnar SPRON stóð alltaf til þess að upplýsingar um viðskipti innherja yrðu opinberar en slíkt var ekki heimilt skv. ofan- greindri niðurstöðu Fjármálaeftir- litsins. Það er alls kostar rangt sem komið hefur fram í fjölmiðlum að stjórnin hafi túlkað afstöðu Fjár- málaeftirlitsins. Stjórn SPRON var beinlínis óheimilt að breyta öðruvísi en hún gerði. Varðandi viðskipti stjórnarmanna með stofnfjárhluti í SPRON eftir að greint var opinberlega frá því að fé- lagið hygði á skráningu í kauphöll vill stjórnin taka eftirfarandi fram: Viðskipti innherja SPRON fyrir skráningu í Kauphöll Íslands voru heimil þegar engar innherjaupplýs- ingar (verðmótandi upplýsingar) lágu fyrir líkt og tíðkast í reglum um viðskipti innherja í skráðum fé- lögum. Viðskipti stjórnarmanna eftir að ákvörðun stjórnar um skráningu í kauphöll var gerð opinber voru í full- komnu samræmi við lög og reglur. Engar innherjaupplýsingar lágu fyrir eftir að gerð var grein fyrir ákvörðun stjórnar 17. júlí 2007. Var innherjum því frjálst að eiga við- skipti með stofnfjárhluti fram til 7. ágúst en þá var markaði með stofn- fjárhluti lokað og undirbúningur hafinn að skráningu SPRON í Kaup- höllina. Engin viðskipti áttu sér stað með stofnfjárhluti eftir 7. ágúst. Við- skipti með hlutafé hófust 23. október þegar SPRON var skráð í Kauphöll Íslands. Gerð var ítarlega grein fyrir áformum stjórnar SPRON í allri fjölmiðlaumfjöllun í kjölfar ákvörð- unarinnar 17. júlí og þar á meðal að verðmat Capacent á SPRON væri um 60 milljarðar. Því skal ítrekað að engar innherjaupplýsingar lágu fyr- ir eftir að ákvörðun stjórnar var birt hinn 17. júlí og þau viðskipti sem áttu sér stað eftir að gerð var grein fyrir áformum um skráningu í kaup- höll voru í fullu samræmi við lög og reglur. Stjórn SPRON var ekki heimilt að birta upplýsingar um viðskipti inn- herja eins og fram hefur komið en í ljósi þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað er undirrituðum stjórnar- mönnum SPRON ljúft að upplýsa um viðskipti sín á umræddu tímabili. Tveir stjórnarmenn seldu enga stofnfjárhluti á umræddu tímabili, Ari Bergmann Einarsson sem átti (auk fjárhagslega tengdra aðila) 110.279.318 stofnfjárhluti að nafn- virði og Erlendur Hjaltason (auk fjárhagslega tengdra aðila) sem átti 6.643.332 stofnfjárhluti að nafnvirði. Hildur Petersen, stjórnarformað- ur SPRON, og tengdur aðili seldu á tímabilinu stofnfjárhluti að nafnvirði kr. 7.201.353. Hluti af þeim var seld- ur til tengds aðila eins og áður hefur komið fram. Eftir söluna áttu Hildur og fjárhagslega tengdir aðilar 19.814.865 stofnfjárhluti að nafn- virði. Ásgeir Baldurs seldi stofnfjárhluti að nafnvirði kr. 270.952. Eftir söluna áttu Ásgeir og fjárhagslega tengdir aðilar 476.901.775 stofnfjárhluti að nafnvirði. Fyrirtæki tengt Gunnari Þór Gíslasyni seldi stofnfjárhluti að nafnvirði kr. 188.657.257 á tíma- bilinu. Eftir söluna átti fyrirtækið 286.915.556 stofnfjárhluti að nafn- virði. Stjórn SPRON vill árétta að allir stjórnarmenn eiga enn í dag meiri- hluta þeirra bréfa sem þeir áttu fyr- ir 7. ágúst, þegar markaði með stofnfjárhluti var lokað. Einnig að þeir stjórnarmenn sem seldu stofn- fjárhluti á þessu tímabili seldu að- eins hluta af stofnfjáreign sinni í SPRON. Stjórn SPRON hefur vita- skuld fulla trú á fyrirtækinu og und- irstrikar að ástæður þess að stjórn- armenn seldu hluta af stofnfjáreign sinni á þessu tímabili voru fyrst og fremst persónulegar. Hildur Petersen Ari Bergmann Einarsson Ásgeir Baldurs Erlendur Hjaltason Gunnar Þór Gíslason.“ Yfirlýsing frá Spron 11. júní: Stofnfundur REI. 7. ágúst: Stjórnarfundur í REI. Áform um kaup á 40% hlut í PNOCEDC á Filippseyjum fyrir 50 milljarða króna ekki borin undir stjórn OR og ekki kynnt í borgarráði. 23. ágúst: Stjórnarfundur í REI: Hugmyndir um formlegt sam- komulag milli OR og REI lagð- ar fram. 11. september: Ákveðið að selja Bjarna Ármannssyni um 7% hlut í REI. 11. september: Stjórnarmaður minnihlutans í stjórn OR óskar eftir upplýsingum um allar for- sendur aðkomu Bjarna Ár- mannssonar. Beiðnin er ítrekuð dagana á eftir. Engin viðbrögð fást. 20. september: Fundur forstjóra og stjórnar REI með fulltrúum GGE og FL-Group. Rætt um hugsanlega sameiningu REI og GGE. 22. september: Stjórnarformenn REI og GGE koma sér saman um „öll aðalatriði“ í vænt- anlegri sameiningu REI og GGE. 23. september: Stjórnarformenn REI og OR kynna niðurstöður REI og GGE frá því deginum áður á fundi á heimili borg- arstjóra, Vilhjálms Þ. Vil- hjálmssonar. 26. september: Forstjóri OR móttekur drög að þjónustu- samningi milli OR og REI, sem skyldi verða til 10 ára. Viku síð- ar hefur samningnum verið breytt svo hann gildi til 20 ára. 29. september – 2. október: Tölvugögn sýna að á þessu tímabili hafði fulltrúi FL-Group beina aðkomu að gerð þjónustu- samningsins milli OR og REI. 1. október: Stjórnarfundur í REI. Drög að þjónustusamn- ingi kynnt. Kaupréttarsamn- ingar starfsmanna og starfs- mannafélags REI ákveðnir. Mismunur á markaðsvirði og samrunagengi var 480 milljónir króna. 2. október: Stjórn OR boðuð til fundar næsta dag kl. 15.15. Um kvöldið eru fulltrúar meirihlut- ans í borgarstjórn boðaðir á kynningarfund í Elliðaárdal. 3. október: Stjórnarfundur í REI. Kaupréttur starfsmanna minnkaður verulega. Fram- kvæmdastjóra REI er falið að undirrita þjónustusamning milli OR og REI, og samning um samruna REI og GGE. 3. október: Stjórnar- og eigenda- fundur í OR, sem stendur í einn og hálfan klukkutíma. Fjórar tillögur koma til afgreiðslu. Formleg tillaga fulltrúa VG um að fresta afgreiðslu tillagnanna felld. 6. október: Stjórnarfundur í REI. Kaupréttur starfsmanna REI felldur alveg niður. Upp- hæðir vegna aukningar á hlutafé REI um 10,3 milljarða króna að nafnvirði færðar inn í hlutaskrá félagsins, þrátt fyrir að það yrði ekki tekið fyrir á stjórnarfundi að nýta heimild til þess fyrr en 8. október. 8. október: Stjórnarfundur í REI. Ákveðið að nýta heimild til aukningar hlutafjár félagsins um 10,3 milljarða króna að nafnverði. 2,6 milljarðar skyldu fara til OR, 2,4 milljarðar til FL-Group, 1,8 milljarðar til Atorku og 361 milljón til Sjáv- arsýnar ehf. 9. október: Umboðsmaður Al- þingis óskar eftir upplýsingum um stofnun REI, sölu hlutafjár og aðdraganda sameiningar REI og GGE. 10. október: Aukafundur í borg- arstjórn um málefni REI. 11. október: Nýr meirihluti mynd- aður í borgarstjórn. Tímaröð atburðanna í REI-málinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.