Morgunblaðið - 08.02.2008, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 38. TBL. 96. ÁRG. FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
La Traviata >> 53
Komdu í leikhús
Leikhúsin í landinu
KRÁSIR Á KORTERI
TVEIR KOKKAR SÝNA OKKUR HVERNIG UNNT
ER AÐ GERA GÓÐAN RÉTT Á METTÍMA >> 26
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
ENDURSKOÐA þarf lagaumhverfi
Orkuveitu Reykjavíkur, ákvörðun-
artökuferli og starfsreglur stjórnar
og stjórnenda. Eins þarf að fara yfir
verkferla víðar í borgarkerfinu og
skerpa á þeim skilningi að borgar-
stjóri þurfi skýrt umboð meirihluta
borgarstjórnar þegar kemur að
stórum ákvörðunum. Þetta er meðal
þess sem kemur fram í lokaskýrslu
stýrihóps borgarráðs um málefni
Reykjavík Energy Invest og Geysir
Green Energy.
Kaupréttir starfsmanna á hluta-
bréfum í REI eru taldir einn ámæl-
isverðasti þáttur í málinu, og við
vinnu skýrslunnar blasti við að ekki
hefði staðið til að greina frá samn-
ingunum, enda reyndust þeir ekki
hafa verið lagðir fram eða kynntir af
hálfu forsvarsmanna OR á fundum
með meirihluta borgarstjórnar, 2. og
3. október sl. Að endingu voru samn-
ingarnir kynntir formlega þremur
klukkstundum fyrir eigenda- og
stjórnarfund OR 3. október, en þar
var sameining REI og GGE sam-
þykkt.
Víða pottur brotinn
Ljóst er af lestri skýrslunnar að
víða var pottur brotinn þegar kom að
samninga- og ákvarðanatökuferli
um sameiningu félaganna. Kynning-
arferli var verulega ábótavant og
umboð stjórnarmanna, fulltrúa eig-
enda eða stjórnenda í mörgum til-
vikum óskýrt. Þannig er það talið
orka tvímælis að stjórn REI hafi
getað tekið afdrifaríkar ákvarðanir
án þess að leita samþykkis stjórnar
OR.
Eigendafundurinn er svo kafli út
af fyrir sig, og í tveimur álitsgerðum
sem stýrihópurinn óskaði eftir er
t.a.m. komist að mismunandi niður-
stöðu hvað varðar lögmæti hans,
þótt ekki sé þrætt fyrir að til fund-
arins hafi verið boðað á ólögmætan
hátt. Einnig eru skiptar skoðanir á
því hvort Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, þáverandi borgarstjóri, hafi
haft umboð til að taka ákvarðanir á
fundinum.
Á þessu stigi er alls óvíst hvort
einhver þarf að axla ábyrgð vegna
málsins og t.a.m. sagðist Ólafur F.
Magnússon borgarstjóri aðspurður
ekki taka ákvörðun um það sjálfur,
en tók fram að það sem gerast muni
á næstunni verði í samræmi við það
sem kemur fram í skýrslunni. Spurð-
ur að nýju hvort það þýddi að ein-
hver myndi axla ábyrgð sagði Ólaf-
ur: „Ég efast ekki um að einhver
muni gera það.“ Hann fékkst ekki til
að skýra orð sín frekar.
REI og GGE | 2, 8, 9, og miðopna
Fóru leynt með samninga
Skiptar skoðanir eru á því hvort þáverandi borgarstjóri hafði umboð til að taka ákvarðanir um sam-
einingu REI og GGE Fara þarf yfir verkferla í borgarkerfinu og endurskoða lagaumhverfi OR
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
Hjörleifur B.
Kvaran
Guðmundur
Þóroddsson
Haukur
Leósson
Í HNOTSKURN
»Stýrihópurinn komst aðþeirri niðurstöðu, að samn-
ingaferlið um sameiningu REI og
GGE hefði ekki verið í samræmi
við reglur um vandaða stjórn-
sýslu.
»Þó var ekki leitað að söku-dólgum en frekar settar fram
átta hugmyndir eða tillögur um
hvernig hægt væri að læra af
málinu.
»Til að mynda að lýðræðislegtumboð sé skýrt þegar um
meiri háttar ákvarðanir er að
ræða í borgarmálum.
»Að mati stýrihópsins er um-ræðan um REI-málið ákall
um breyttar áherslur og vinnu-
brögð hjá fyrirtækjum í opin-
berri eigu.
ÓFÆRT var víða um land í gær vegna fannfergis. Þjóð-
vegum var lokað, bílar festust og snjóflóð féllu á vegi.
Ekki er útlit fyrir betra veður í bráð en Veðurstofa Ís-
lands spáir vonskuveðri á landinu í dag og á morgun.
Líklega þurfa hrossin sem stóðu í höm í Hvalfirðinum í
gær að halda því áfram í dag.| 6
Árvakur/RAX
Snjóþungt víðast hvar á landinu
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
ENN gætu hausar átt eftir að fjúka
í REI-málinu. Augu flestra beinast
að yfirstjórn Orkuveitu Reykjavík-
ur, en einnig er horft til Vilhjálms
Þ. Vilhjálmssonar. Enn er því hiti í
málinu sem þegar hefur sprengt
einn meirihluta. Það var „þrusuerf-
itt“ að ná þessu saman og borg-
arfulltrúar í stýrihópnum „fóru í
gegnum allan tilfinningaskalann“.
Það var því ekki skrýtið að borg-
arfulltrúar í öllum flokkum fögnuðu
því að sameiginleg niðurstaða hefði
náðst. Og vissulega var það áfangi
út af fyrir sig þegar litið er til þess
hversu ólíka aðkomu þeir höfðu að
málinu. „Það er þroskamerki í póli-
tík, eftir að hafa staðið í átökum í
langan tíma, að ýta væringum til
hliðar og klára málið. Það er ekki
búið að vera auðvelt! En við þurft-
um að sýna að þetta væri ekki víg-
völlur“.
Hamagang-
ur á Hóli
Stendur Vilhjálmur af sér | 2