Morgunblaðið - 08.02.2008, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Kópavogur | Framkvæmdir á og
við Nýbýlaveg í Kópavogi eru vel á
veg komnar og eru verklok áætluð
í sumar.
Kópavogsbær hefur séð um
framkvæmdir í tengslum við teng-
ingu við Skeljabrekku en þar sem
Nýbýlavegur og Hafnarfjarð-
arvegur (Kringlumýrarbraut) eru
þjóðvegir hefur Vegagerðin haft
framkvæmdir þar með höndum.
Hlutur Kópavogsbæjar er langt
kominn, en þar undir fellur m.a.
gerð göngustíga og holræsa. Ístak
hefur séð um framkvæmdirnar.
Í verkinu felst að Nýbýlavegur
er færður til og breikkaður á um
650 m löngum kafla milli Hafn-
arfjarðarvegar og Birkigrundar,
tvö hringtorg verða gerð á Nýbýla-
vegi; við Auðbrekku og Skelja-
brekku. Ný afrein kemur af Hafn-
arfjarðarvegi inn á Nýbýlaveg og
neðsti hluti Skeljabrekku verður
færður til og endurgerður. Aðrein
frá Nýbýlavegi að Hafnarfjarð-
arvegi (Kringlumýrarbraut) verður
færð til og endurgerð. Gerð verða
þrenn ný undirgöng fyrir gangandi
umferð; tvenn undir Nýbýlaveg og
ein undir aðrein að Hafnarfjarð-
arvegi og þau verða tengd við að-
liggjandi stígakerfi. Samkvæmt
áætlun á verkinu að vera lokið 15.
júlí 2008.
Breytingar einnig
vegna Lundarhverfis
„Þetta [Nýbýlavegur] verður
fjögurra akreina vegur og þarna
verða tvö hringtorg,“ segir Hafliði
Richard Jónsson hjá Vegagerðinni.
„Mesta búbótin, fyrir utan gott
umferðarflæði, er að Hafnarfjarð-
arvegur tengist Nýbýlavegi sunn-
an frá, þannig að hægt verður að
keyra beint inn á Nýbýlaveg frá
Hafnarfjarðarvegi, sem ekki er
hægt í dag,“ segir Hafliði. Hann
segir hringtorgin munu verða þar
sem nú eru umferðarljós rétt neð-
an brúarinnar og annað aðeins
austar.
Ástæðuna fyrir hringtorgi á
þessum stað segir hann að umferð-
arfræðilega séð sé það miklu betra.
„Umferðin frá Hafnarfjarðarvegi
mun líka tengjast þessu hring-
torgi,“ segir Hafliði og bætir við að
breytingarnar sem nú sé verið að
gera séu líka til komnar vegna
skipulags í Lundarhverfi. „Þar er
verið að búa til tengingu og það er
hitt hringtorgið, neðan Auðbrekku.
Þau gatnamót hafa verið erfið en
hringtorgið mun leysa þá erfiðleika
og miklu betri tengingar verða við
hverfið.“
Hafliði segir að í vetur hafi verið
unnið utan vegar svo að umferðin
yrði fyrir sem minnstri truflun.
„Ég held að það hafi gengið mjög
vel,“ segir hann, „og síðan þegar
fer að vora fer umferðin smám
saman inn á þessa nýju vegi svo
hægt verði að fara í framkvæmd-
irnar þar sem núverandi vegur er.“
Breytingum á Nýbýlavegi lýkur í sumar
Árvakur/RAX
Þröngt Á Nýbýlavegi hafa í vetur verið þrengingar. Framkvæmdir hafa fram að þessu verið utan vegar.
Framfarir Breytingarnar og hringtorgin hafa hér verið teiknuð inn á loftmynd af Kópavogi.
BÆJARRÁÐ Akureyrar lýsir yfir
eindregnum stuðningi við áform um
uppbyggingu álvers á Bakka við
Húsavík, skv. bókun sem gerð var á
fundi ráðsins í gærmorgun. Fjórir
ráðsmenn samþykktu bókunina en
fulltrúi VG sat hjá við afgreiðsluna.
„Á undanförnum árum hefur al-
varlegur samdráttur í fiskvinnslu og
landbúnaði haft veruleg áhrif á af-
komu fólks, atvinnuöryggi og búsetu
á svæðinu. Á síðustu 10 árum hefur
íbúum á svæðinu frá Húsavík til
Raufarhafnar, sem nú heitir Norð-
urþing, fækkað um 15%. Mest hefur
fækkunin verið í aldurshópnum 40
ára og yngri, en í þeim aldursflokki
hefur íbúum fækkað um 25%. Kjöl-
festa í atvinnumálum er nauðsynleg
til þess að snúa vörn í sókn og við-
halda gróskumikilli byggð á Norð-
austurlandi,“ segir í bókun bæj-
arráðs. „Fyrirhugað álver á Bakka
getur skapað þessa kjölfestu. Álver-
ið mun skapa um 300 ný framtíð-
arstörf og afleidd störf verða mun
fleiri og áhrifa þeirra mun gæta
langt út fyrir Norðurþing, ekki síst á
Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu.
Bæjarráð skorar því á stjórnvöld að
beita sér fyrir því að af þessum
framkvæmdum geti orðið sem
fyrst.“
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Álver? Séð yfir Bakka við Húsavík.
Vilja álver
á Bakka
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
GAMANLEIKURINN Fló á skinni
verður frumsýndur hjá Leikfélagi
Akureyrar í kvöld. Aðsókn að sýn-
ingum félagsins hefur verið með ein-
dæmum góð síðustu misseri og svo
virðist sem ekki verði breyting þar á
nú; strax er uppselt á fyrstu 24 sýn-
ingar þessa kunna, 100 ára gamla
franska farsa eftir George Feydeau.
Fló á skinni er ekta formúlufarsi,
segir Randver Þorláksson, einn leik-
aranna í sýningunni, í samtali við
Morgunblaðið. „Farsar eru eins og
stærðfræðiformúla, þeir verða að
ganga upp,“ segir Randver.
Þessi farsi, eins og svo margir aðr-
ir, fjallar um framhjáhald og mis-
skilning af ýmsu tagi – menn drífa
sig inn og út úr herbergjum, hurðum
er skellt … Þetta eru kunnugleg at-
riði. Þegar Fló á skinni var á fjöl-
unum hjá Leikfélagi Reykjavíkur á
sínum tíma gekk verkið árum sam-
an, þá var leikið „á franska mátann“
eins og Randver orðar það, en nú eru
það hins vegar akureyrskir brodd-
borgarar sem eru í sviðsljósinu.
Verkið hefur verið þýtt á nýjan leik
af Gísla Rúnari Jónssyni, og hann
hefur staðfært verkið, sem nú gerist
í Eyjafirði. Telur Randver að mjög
vel hafi tekist til.
Vert er að geta þess að leikarinn
gamalkunni, Árni Tryggvason, stíg-
ur aftur á svið í þessari uppfærslu
LA. Þeir Þráinn Karlsson skipta
með sér hlutverki, Árni frumsýnir er
Þráinn mætir fljótlega til leiks. Aðrir
leikarar eru Guðjón Davíð Karlsson,
Jóhannes Haukur Jóhannesson,
Hallgrímur Ólafsson, Kristín Þóra
Haraldsdóttir, Viktor Már Bjarna-
son, Atli Þór Albertsson, Linda Ás-
geirsdóttir, Margrét Helga Jóhanns-
dóttir, Tinna Lind Gunnarsdóttir,
Randver Þorláksson, Valdimar Örn
Flygenring og Aðalsteinn Bergdal.
María Sigurðardóttir leikstýrir
verkinu, Snorri Freyr Hilmarsson
gerir leikmynd og búninga og Björn
Bergsteinn Guðmundsson sér um
lýsingu. Gervahönnun er í höndum
Sunnu Bjarkar Hreiðarsdóttur,
Gunnar Sigurbjörnsson hannar
hljóð og Sprengjuhöllin gerir tónlist-
ina.
„Farsar eru eins og
stærðfræðiformúla“
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Smá misskilningur! Guðjón Davíð Karlsson í Fló á skinni en farsinn snýst,
eins og svo oft, um framhjáhald og misskilning af ýmsu tagi.
Í HNOTSKURN
»LA hefur gengið mjög velsíðustu ár. Fyrir fjórum ár-
um, þegar Magnús Geir Þórð-
arson var ráðinn leikhússtjóri,
var staða eigin fjár neikvæð um
30 milljónir en í haust var hún já-
kvæð um 55 milljónir króna.
Staðan er þá sem sagt 85 milljón
krónum betri en þá og er enn
betri nú.
BÆJARRÁÐ Akureyrar tekur
heilshugar undir þingsályktunartil-
lögu um staðsetningu björgunar-
þyrlu Landhelgisgæslunnar á Ak-
ureyri. „Með staðsetningu þyrlu á
Akureyri er öryggi sjófarenda á
hafsvæðinu fyrir norðan og austan
land aukið til muna. Auk þess
gegna þyrlur Landhelgisgæslunnar
nú mikilvægu hlutverki við björgun
á landi og þar getur fjarlægð frá
slysstað ráðið úrslitum um það
hvernig til tekst. Á Akureyri er góð
reynsla af sjúkraflutningum og
FSA er varasjúkrahús landsins.
Það er því ljóst að hér er gott bak-
land til að styðja við þessa starf-
semi. Bæjarráð skorar því á alþing-
ismenn að styðja
þingsályktunartillöguna og ríkis-
stjórnina að koma henni til fram-
kvæmda,“ segir í bókun frá fundi
bæjarráðs í gær. Fulltrúar allra
flokka samþykktu bókunina.
Þyrla verði
á Akureyri
AKUREYRI
MÁLSTOFA með tveimur erindum
verður á vegum viðskipta- og raun-
vísindadeildar Háskólans á Ak-
ureyri í dag. Sigþór Pétursson, pró-
fessor í efnafræði við deildina,
fjallar um penisillín og penisill-
ínasa; um uppgötvun penisillíns og
þróun þess sem lækningalyfs. Þá
fjallar Arnheiður Eyþórsdóttir, að-
júnkt við HA, um meistaraverkefni
sitt í líftækni við skólann sem ber
titilinn: Heitur reitur á hafsbotni –
Lífefnaleit á hverastrýtusvæðinu í
Eyjafirði. Málstofan hefst kl. 11.45 í
stofu K202 á Sólborg.
Penisillín
og lífefnaleit
♦♦♦
Fló á skinni frumsýnd hjá LA
mbl.is | Sjónvarp