Morgunblaðið - 08.02.2008, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
FÁANLEGUR
MEÐ TDI®
DÍSELVÉLINNI
EINSTAKUR
4X4 DRIF-
BÚNAÐUR
Passat Variant 4MOTION® kostar aðeins frá
3.475.000 kr.
Eða 39.900 kr. á mánuði miðað við gengistryggðan bílasamning til
84 mánaða og 20% útborgun. Árleg hlutfallstala kostnaðar er 6,19%.
Passat Variant sameinar kraft, þægindi og magnaða akstursupplifun.
DÚXAÐI Á
EURO NCAP
PRÓFINU
5 SINNUM
GULLNA
STÝRIÐ
SVEIGJAN-
LEGIR
SÖLUMENN
KOLEFNIS-
JAFNAÐUR
Í EITT ÁR
EYÐIR
AÐEINS FRÁ
6,7 l/100 KM
Í fjórhjóladrifinni útfærslu færir Passat Variant þér kraftinn sem gerir allan akstur skemmtilegri og
gerir gæfumuninn í erfiðri færð. Innra rýmið í Passat er í algjörum sérflokki, vel búið farþegarýmið
setur ný viðmið fyrir þig og þína. Komdu og láttu lúxusinn drífa þig áfram.
Fjarlægðarsk
ynjarar að fr
aman og
aftan, 16" álf
elgur, hiti í sæ
tum, dökkar
afturrúður, kr
ómbogar á þ
aki, leður
á stýri og gírs
tangarhnúð.
Aukahlutapa
kki fylgir
Das Auto.
ákváðu að hætta útgerð eftir
kvótaskerðinguna, en þeir höfðu
landað hjá okkur. Við áttum því
þann kost að tapa hráefninu eða
leigja bátana með heimildum. Við
tókum síðari kostinn, en nú höfum
við keypt annan bátinn með heim-
ildum. Við setjum þann bát upp í
hinn nýja og færum aflaheimild-
irnar yfir á hann. Hinn leigjum við
áfram út fiskveiðiárið. Það kemur
svo í ljós hvað verður þá.
Þetta er svona varnarbarátta í
krappri stöðu. Þetta snýst um
vörnina nú. Fólkinu fækkar og
þeim sem eru eitthvað að gera og
það þarf að bregðast við því,“ seg-
ir Guðjón Indriðason
Indriði Kristins BA
Nýi báturinn hefur hlotið nafnið
Indriði Kristins BA 751. Báturinn
er 15 brúttótonn og er í krókaafla-
markskerfinu.
Aðalvél bátsins er af gerðinni
Doosan L126 400 hestöfl, 2100
snúningar, tengd ZF gír. Ljósavél
er af gerðinni Kohler. Í bátnum er
ískrapavél frá Kælingu.
Báturinn er útbúinn siglinga-
tækjum af gerðinni Furuno frá
Brimrún. Báturinn er einnig útbú-
inn hliðarskrúfu sem tengd er
sjálfstýringu hans. Öryggisbúnað-
ur bátsins kemur frá Viking.
Útbúinn til veiða með
línubeitningarkerfi
Báturinn er útbúinn til línu-
veiða. Línubeitningarkerfi af gerð-
inni Mustad er á millidekki fyrir
17.000 króka. Línuspil og færaspil
er frá Beiti. Rými er fyrir 12 660
lítra kör í lest. Í bátnum er inn-
angeng upphituð stakkageymsla.
Borðsalur er í brúnni auk stóla
fyrir skipstjóra og háseta. Svefn-
pláss er fyrir fjóra í lúkar auk eld-
unaraðstöðu með eldavél, ör-
bylgjuofni og ísskáp.
MIKLAR hafnarframkvæmdir
verða í Snæfellsbæ á þessu ári.
Björn Arnaldsson hafnarstjóri seg-
ir í samtali við Morgunblaðið að
framkvæmt verði fyrir 232 miljónir
á þessu ári. Fyrirtækið Ísar ehf er
nú að reka niður stálbita við Norð-
urtanga en þar er um að ræða leng-
ingu upp á 25 metra. Þegar er búið
að reka niður 82 metra stálþil á
austurbryggju í Rifi.
Björn segir að stærstu fram-
kvæmdinar verði á Rifi. „Um er að
ræða lagningu norðurgarðs út að
Tösku, auk þess sem nýr sandfang-
ari verður byggður en hann er
byggður samkvæmt niðurstöðum
úr tilraunalíkani af innsiglingunni
til Rifshafnar.“
Björn segir ennfremur að byggð
verði ný trébryggja við núverandi
löndunarkrana við Norðurtanga.
Verður sú bryggja byggð til þess að
bæta löndunaraðstöðu smábáta.
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Framkvæmdir Unnið við að reka niður stálþil í Ólafsvíkurhöfn
Unnið við
höfnina
ÖSSUR hf. hlaut í gær Þekkingar-
verðlaun Félags viðskiptafræðinga
og hagfræðinga, FVH, sem afhent
voru í tilefni Íslenska þekkingar-
dagsins 2008. Auk Össurar voru fyr-
irtækin Norðurál og Kaffitár tilefnd
til verðlaunanna, sem afhent voru af
Jóni Þór Sturlusyni, aðstoðarmanni
viðskiptaráðherra, í fjarveru Björg-
vins Sigurðssonar, sem var veður-
tepptur.
Þá var Karl Wernersson, eigandi
Milestone, valinn viðskiptafræð-
ingur ársins af sérstakri dómnefnd
FVH, en um árlegar viðurkenningar
er að ræða. Þema verðlaunanna að
þessu sinni var drifkraftur árangurs.
Í niðurstöðu dómnefndar segir
m.a. að Össur hafi náð frábærum ár-
angri í gegnum tíðina. Fyrirtækið
hafi vaxið hratt síðustu árin og sam-
einast eða sinnt uppkaupum á 13
fyrirtækjum frá árinu 2000. Frá
1999 hafi starfsmönnum fjölgað úr
120 í 1.600 manns í þremur heims-
álfum. Um Karl Wernersson segir
dómnefnd að hann hafi náð frábær-
um árangri með fyrirtækin sín und-
anfarin ár. Efnahagur þeirra nemi
nú um 380 milljörðum króna.
Karl Wernersson og
Össur fá verðlaun
Þekkingarverðlaun Á myndinni t.v. afhendir Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður ráðherra, Jóni Sigurðssyni, for-
stjóra Össurar, verðlaun FVH og á þeirri t.h. fær Karl Wernersson, viðskiptafræðingur ársins, verðlaunin afhent.
Árvakur/Frikki