Morgunblaðið - 08.02.2008, Blaðsíða 28
Eftir Sigurbjörgu Arnarsdóttur
sibba@mbl.is
Einbeitingin skein úr augum keppenda sem tókuþátt í förðunarkeppni sem haldin var í Kringlunnií fyrrakvöld. Þar kepptu förðunarfræðingar fráMAC í Kringlunni og Smáralindinni sín á milli og
var einn sigurvegari úr hvoru liði. Í verðlaun var ferð til
Kaupmannahafnar og þátttaka í dönsku tískuvikunni með
þeim förðunarfræðingum MAC sem sjá um förðun fyrir
þekktustu tískuhúsin í París, Mílanó, London og New York.
Þema keppninnar var í anda frönsku listakonunnar Fafi
og japönsku Harajuku-stelpnanna. Harajuku-tískan er jap-
önsk götutíska sem einkennist af barnslegu og skrautlegu
útliti. Margir kannast við þetta sérkennilega tískufyrirbæri
úr myndböndum poppsöngkonunnar Gwen Stefani sem hef-
ur greinilega verið aðdáandi þessarar tísku frá Japan og má
sjá áhrif hennar í þekktustu myndböndum hennar eins og
Hollaback Girl, Rich Girl, What You Waiting For.
Franska listakonan Fafi er þekktust fyrir teikningar sínar
af stelpulegum kvenfígúrum sem svipar mjög til hinna jap-
önsku Harajuku-stelpna. Hún hefur notið mikilla vinsælda
um allan heim og hafa stórfyrirtæki eins og
Sony og Adidas notað verk hennar í hönnun
sína.
Keppendur höfðu nákvæmlega eina
klukkstund til að farða fyrirsætur sínar í
anda Fafi og Harajuku. Það vantaði ekki
frumleikann og fagmennskuna hjá kepp-
endum sem voru fram á síðustu mínútu að
ljúka við verk sín. Útkoman var skemmti-
lega litrík og frumleg og verk keppenda
voru eins ólík og þau voru mörg.
Dómarar í keppninni voru þau Svavar Örn
hárgreiðslumeistari, Ragna Fossberg,
sminka hjá RUV, og Anna Clausen stílisti. Sig-
urvegarar voru þau Haffi Haff úr Smáralind-
inni og Marta Dröfn Björnsdóttir frá Kringl-
unni. Frumleg og framandi förðun ásamt
litríkri stílíseringu á fatnaði gerði að verkum að
þau náðu fram heildarútliti sem var mjög í
anda Fafi og Harajuku.
Árvakur/Árni Sæberg
Glaðbeitt Sigurvegararnir Haffi Haff og Marta Dröfn Björnsdóttir með fyrirsætur sínar þegar úrslitn voru ljós.
Framandi
og frumleg
Frumlegt Fyrirsætur voru allar stíliseraðar frá toppi til táar í anda listakonunnar Fafi og Harajuku.
Keppendur voru
einbeittir, nákvæm-
ir og frumlegir í
förðun sinni
Litríkar
Fígúrur
frönsku
listakon-
unnar Fafi.
!"
" !
!
!
#
$
%
%
&
&&
"
& #
'
(
"
&&
( " ! ) !
*
!
!
! "
!
!
+,%-
./ " !
! "
0
"
12
-3456784-,97: ;<= >?@@
11
1@ 1A
- kemur þér við
Sérblað um tísku
fylgir blaðinu í dag
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
Feðgin eru einka-
þjálfarar stjórnenda
Missti trygginguna
eftir fimm innbrot
Hildigunnur breytir
úreltu plasti í list
Þóra Þórarinsdóttir
vill láta fjármagnið
hjálpa fátækum
Rukkaðir fyrir aðgang
að klósettinu
tíska
28 FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ