Skinfaxi - 01.10.1937, Page 24
120
SKINFAXI
þess að varðveita verðuglega verðmæti íslenzkrar bók-
menningar og máls.
Sannarlega þöfnumst vér afburðamanna í búnaði og
fiskveiðum. Á Atvinnudeild Háskólans að koma þar
til lijálpar. j
En nú er líða tekur að 700 ára dánarafmæli Snorra
Sturlusonar ber oss að efla sem mest vér megum ís-
lenzkudeild háskóla vors.
Stefán Hannesson:
Hver á að drekka?
Karlar og konur drekka
áfengi, og láta sér fátt um
finnast, þegar amazt er við
drykkjuskap. En þau eru
málinu kunnug, því að sá
veit gerst, sem reynir. Til
þeirra leita eg um svör. Nauð-
ug viljug hljóta þau að svara,
því að málið tekur ekki síð-
ur til þeirra en mín. Þau
hljóta því einnig að gera at-
hugasemdir, ef hleruð svör
fara fjarri.
Viltu að faðir þinn drekki? — Nei, nei.
Viltu að hún mamma þín drekki? — Óar við því.
Viltu að bróðir þinn drckki? — Vilt það ekki.
Viltu að systir þín drekki? — Þú ber kinnroða fyrir því.
Viltu að unnusti þinn drekki? — Æ, nei.
Viltu að unnustan drekki? — Sei, sei, nei.