Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1937, Page 32

Skinfaxi - 01.10.1937, Page 32
128 SKINFAXI reyna til af fremsta megni að leita sannleikans. Við skulum þess vegna eins kostgæfilega forðast að halla sannleikanum, mót betri vitund, til að styðja nokkurt mál, eins og okkur þykir ótilhlýðilegt, að þegja yfir lionum, þó það kynni að baka okkur mótlæti og óvin- á/ftu sumra manna.“ Hér tala menn auðugir að siðferðislegum þroska og drengskap. Svo mæla þeir einir höfðingjar andans, sem langt eru yfir það hafnir, að láta sannfæring sína, eða öllu heldur sannfæringarleysi, ganga kaupum og sölum á markaðstorgi stjórnmálanna. Enda byltu „Fjölnismenn“ hjörgum í viðreisnarsögu íslands, og greiddu veg honum, „sem koma átti“, sjálf- um Jóni Sigurðssyni forseta. Einnig má rekja þræð- ina frá þeim til íslenzkra þjóðvina og framfaramanna á siðustu árum. Upp af starfi þeirra hefir sprottið vor- gróður sá, sem nú lilær okkur við augum í islenzku þjóðlífi. ísland er nú, eins og eg lagði áherzlu á i ræðu fyrir minni þess vestur á Kyrrahafsströnd í fyrra sum- ar (1934), „vonanna og vorleysinganna land“. Stór- stígar framfarirnar þar í landi grundvallast á þjóðnýtu brautryðjendastarfi „Fjölnismanna“, Jóns Sigurðsson- ar forseta, og þeirra annarra, sem fylgt liafa þeim í spor. í ])ví sambandi vil eg leyfa mér að taka upp nokkur orð úr grein, sem eg ritaði í tilefni af sextiu ára afmæli stjórnarskrár íslands: Vissulega leikur bjartur Ijómi um hátindana i fornaldarsögu íslands, og mikill orkugjafi hafa minningarnar um afrek forfeðranna, um forna frelsis og frægðaröld — hin sögulega arfleið oklcar — verið þjóð okkar á liðnum öldum, og fram til þessa dags. Ennþá fegri er samt morgunroðinn á fjöllum þeirra vonalanda hinnar íslenzku þjóðar, sem rísa í hillingum af djúpi framtíðarinnar. Er það trúa mín, að þar bíði ættþjóðar okkar liin eiginlega gullöld, bregð- ist hún eigi liinu bezta í eðli sínu og reynist trygg göf- ugum hugsjónum. En íslenzk þjóð á það ekki sízt

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.