Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1937, Page 37

Skinfaxi - 01.10.1937, Page 37
SKINFAXÍ 133 menn hreinsa og bera umhyggju fyrir gróðrinum i garði sínum, án þess að gefa næringarskilyrðum jarð- vegsins gaum. Þannig vanrækja menn menningarskil- yrðin. Fögrum fræjum er sáð í sálir barnanna, án þess að tryggt sé, að þjóðfélagið skapi þeim þau skil- yrði, að vorgróðurinn visni ekki. heldur beri ávexti. Menn reisa skóla, án þess að gæta þess sem skyldi, hvort til þeirra veljast nemendur af handahófi, vegna dutlunga hinna efnalegu kjara. Menningarbarátta er hagsmunabarátta, fólgin í því, að afla mönnum efnalegra skilyrða, að þeir fái notið menntunar, gáfna sinna og atgjörfis. En þótt skólanámi sé loldð, er þrautin ekki unnin. „Bókvitið verður ekki látið í askana“. Talsverl er til í þvi. Hugvitsmenn verða hungurmorða, vegna þess, að þá skortir fjármagn til þess að hagnýta uppgötv- anir sínar. Oft farnast búfræðingum illa í búskapn- um. Það er af því, að þeir ætla sér að búa að nokkru í hæð við hugsjónir sínar, þekkingu og framtak. Lífs- skilyrðin hafa, a. m. k. lil skamms tíma, ekki leyft það. Reyndin varð, að þeir lifðu um efni fram. Þannig getur bókvitið orðið manninum til ógagns, ef hann skortir efnaleg skilyrði til þess að framkvæma hug- sjónir skólaáranna. Hverfum frá sveitunum til sjávarins. Hver eru yf- irleitt skilyrði atvinnulausra æskumanna til menning- arlífs að loknu námi? Ef til vill liefir tekizt svo vel til um skólagöngu þeirra, að hún forði þeim frá al- gjöru skipbroti. En víst er, að til uppbyggingar sjálfum sér og þjóðfélaginu verða þeir fyrst, er þeir fá verkefni, er auka á efnalegt öryggi þeirra. Menntun er að eins mennigarverðmæti i höndum þess manns, sem á heil- brigða skapgerð. En hið andlega jafnvægi, sem henni er samfara, byggist á efnalegu sjálfstæði, viðunandi atvinnuskilyrðum. Allt her í raun réttri að þeim brunni. Ef hinir fullorðnu hafa ekki atvinnu, reynist þeim

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.