Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1937, Page 38

Skinfaxi - 01.10.1937, Page 38
134 SKINFAXI erfitt að sjá börnum sínum fyrir menntun. Fái æsku- maðurinn ekki atvinnu að loknu námi sínu, verður hann þjóðfélagi sínu til litillar menningar og jafnvel til tjóns. í rauninni snertir þvi stefna U. M. F. í. kjarna þessa máls, er 4. gr. stefnnuskrárinnar segir, að U. M. F. í. vinni „að því, að næg og lifvænleg atvinna biði allra unglinga, er vaxa upp i landinu, þegar þeir hafa náð starfsaldri eða lokið námi.“ Má benda á ýmsar athygli- verðar greinar, er birzt hafa um atvinnumál æskunn- ar i riti okkar, Skinfaxa. Sambandsstjóri U. M. F. í. samdi og frumvarp, er lagt var fyrir siðasta Alþingi,_ og fjallaði það um aðgerðir til þess að ráða bót á atvinnuleysi ungra manna. U. M. F. í. hefir og tekið upp samvinnu við alþjóðlegan æskulýðsfélagsskap, sem liefir aðalstöðvar sinar í Genf. Er þar safnað skýrslum víðsvegar að um hag æskunnar í atvinnu- og menn- ingarmálum, og re>mt að finna ráð til bóta. Þetta er pólitík, segja menn. Y'ið ungmennafélagar lítum á þessa baráttu sem menningarbaráttu, uppeld- isatriði. Kennarar, sem fylgjast nokkuð með nemönd- um sínum, er námi þeirra lýkur, og fá daglega svöng börn og illa útlítandi i skólana, vita bezt, að það er ekki nóg að semja lög, sem fyrirskipa, að öll börn skuli vera orðin læs og skrifandi á ákveðnum aldri. Þegar við ungmennafélagar tölum um menningu, yppta menn öxlum og liafa orð á, að íslenzk sveita- menning sé nú ekki orðin margra fiska virði. Satt er það, að ungmennafélagar hafa mjög rætt og ritað um íslenzka sveitamenningu. En ástæðan er ein- föld. Bæir og kauptún hafa til skamms tima verið svo lítil, að skilyrði hefir vantað fyrir bæjamenningu. Heimsstyrjöldin leiddi til margvíslegs hruns, og leiddi það m. a. til þess, að fólkið streymdi á mölina. En sveitamenning sú, er ríkti hér á íslandi fram undir striðið, var jafnlítið við hæfi bóndans, er flosnaður var

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.