Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1937, Síða 44

Skinfaxi - 01.10.1937, Síða 44
140 SKINFAXI Suður-Jótlandi. En það leiðir ekki til þess, að við ósk- um eftir, að Danir séu að skreyta sig með islenzkum menningarverðmætum og leika yfirdrottnendur yfir ís- landi í augum útlendinga. Yið viðurkennum ágæti danskrar listar, vísinda og bókmennta, en þolum ekki, að dönsk bókmenntasaga sé sett til jafns við íslenzka i skólum okkar, né að ísl. börn taki að læra dönsku, áður en tök þeirra á inóð- urmálinu eru orðin forsvaranleg. Við lútum engri er- lendri þjóð, en öll séu viðskipti okkar kurteisleg og vinsamleg við erlend ríki, laus við ruddaskap, sem er öruggt einkenni undirmálstilfinningar. Við viljum viðgang og viðreisn íslands, þó ekki á kostnað annarra þjóða. En við viljum heldur ekki, að nein önnur þjóð blómgist á okkar kostnað, hvort sem um er að ræða heilar stéttir manna, svo sem var á dögum einokunarverzlúhárinnar dönsku, eða erlend auðfélög og peningastofnanir, eins og nú á sér stað. Stefna okkar er: íslandi allt. Við viljum menningu Islands og lýðræði þess. Við viljum andlegl og efnalegt sjálfstæði þjóðar okkar. En ekki þýðir þetta fjandsam- lega einangrun okkar. Við ungmennafélagar erum ekki aðeins formælendur menningar og lýðræðis, við erum ekki aðeins þjóðræknisvinir, við erum einnig friðarvin- ir. Þjóðræknir friðarvinir viljum við vera og heita. — Ungmennafélögin eru nú orðin liðlega 30 ára. Nú um þessi tímamót munum við gefa út vandað minn- ingarrit, sem rekur sögu félagsskapar okkar og áhrif. En ekkert sé fjær okkur nú, en að glápa á gamlar tíðir. Við vitum, að hugsjónir ungmennafélaga liafa orðið þjóðinni til mikillar blessunar. Ungmennafélagar bjóða til þessa fundar hér vegna þess, að metnaður þeirra er, að svo megi einnig verða í nútíð og framtíð. Tilefni þessa fundar eða einkunnarorð hefir orðið til þess, að ég hefi talað um stefnu U. M. F. í. frá

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.