Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1937, Page 55

Skinfaxi - 01.10.1937, Page 55
SKINFAXI 151 að meltingin truflast, vegna þess, að vöðvarnir heimta aukinn blóðstraum, og minnka þannig blóðstrauminn til meltingarfæranna, og verður þá árangur æfingar- innar auðvitað minni. íþróttaæfingar liafa það takmark, að styrkja vöðv- ana, auka getu þeirra.Þessi getuaukning verður á þrenn- an liátt: Hraði eykst, kraftar og þol. En þessir eigin- leikar eru mjög háðir hver öðrum, þannig, að enginn þeirra nær fullum þroska, án þess að jafnvægi haldisí nokkurnveginn milli þeirra allra. Hinsvegar ná ein- stakir þeirra hámarki á mismunandi aldursskeiðum. Hraðinn er mestur frá 17 til 22 ára, og minnkar venjulega eftir 27 ára aldur. Kraftarnir ná mestum þroska milli 20—26 ára, og haldast óhreyttir, eða svo að segja, til 35 ára, en þolið er mest milli 30—40 áifa. Þýzkur íþróttalæknir, Kohlrausch, hefir gert rann- sóknir þessu viðvikjandi. Ilann hefir einnig sannað, að t. d. liraðinn eykst meira við alhliða æfingar, þjálfun, heldur en við einhliða hraðaæfingar. Sama gildir auð- vitað um krafta og þol. Af þessu leiðir, að mjög er þýðingarmikið, að þjálfa líkamann alliliða, alla vöðva, en ekki eingöngu ein- staka vöðva eða vöðvahópa. Við alla áreynslu myndast þrytuefni, t. d. mjólkursýra, eða úrgangsefni í vöðv- unum, sem valda þreytu og draga úr getunni. Við þjálfun vinnst það m. a., að vöðvarnir verða færari til þess að losa sig við þessi úrgangsefni, og einnig sjálfsagt að einliverju leyti ónæmari fyrir hinum skað- legu áhrifum þeirra. Eins og þegar er sagt, þreytast vöðvarnir við áreynsluna, vegna úrgangsefna, er í þá safnast. En þeir vöðvar, sem engan þátt taka í áreynsl- unni, starfinu, þreytast einnig. Þessi óbeina þreyta kem- ur i ljós eða gerir vart við sig, þegar um ónóga eða einhliða þjálfun er að ræða, áður en hinir starfandi vöðvar hafa náð hámraks-afköstum, og það er efa-

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.