Skinfaxi - 01.10.1937, Qupperneq 60
156
SKINFAXi
kaffidrykkja getur, sérstaklega í uppvextinum, haft
skaðvænleg áhrif á hjartað.
Ef maður veikist meðan á þjálfun stendur, á hann
ekki að byrja aftur að æfa, fyr en hann hefir verið
viku heilbrigður. Undantekningar frá þessu veitir
íþróttalæknir.
Allir, sem íþróttir stunda, ættu að njóta stöðugrar
læknisskoðunar, og sérstaklega er nauðsynlegt, að
byrjendur séu gaumgæfilega skoðaðir. Oft mun lækn-
irinn líka geta gefið þeim góðar bendingar um það,
hvaða íþrótt eða íþróttir þeim henti bezt.
Á því, sem nú hefir sagt verið, ætti það að vera ljóst,
að liagkvæm áhrif íþróttanna á líkamann grundvall-
ast á því, að líffærin þroskist í hlutfalli við þær auknu
kröfur, sem þjálfunin gerir til þeirra. Ef þetta hlutfall
raskast (t. d. kröfurnar verða meiri en líffærin þola),
þá vinna íþróttirnar gegn þvi hlutverki, sem þeim er
ætlað að leysa af hendi.
Magnús Jónsson, Skógi:
Tileinkað U. M. F. „V0N“ á Rauðasanði.
Vér komum hér saman á félagsfund,
þó faðmvítt sé skammdegið svarta.
Hann verði oss öllum yndisstund,
sem ylji oss bezt í hjarta.
Tengjum í anda mund í mund
og myndum oss framtíð bjarta.
Vér komum hér saman í trausti og trú
á tilveru innri gæða.
Vér skulum í einingu efla brú
til allífsins frelsishæða.
— Aldrei var þörfin eins og nú
hinn andlega vöxt að glæða.