Skinfaxi - 01.10.1937, Page 64
160
SKINFAXI
semi og íþróttaafrek, áður en hann stofnaði skóla sinn; gjald-
keri í sambandsstjórn U.M.F.Í., formaður Héraðssambands-
ins Skarphéðins og glimukóngur íslands. Hann fæddist að
Haukadal 22. ágúst 1897, og stundaði ungur nám í gagnfræða-
skólanum í Flensborg og búfræðinám í Hólaskóla; dvaldi síð-
an í Noregi um hrið, m. a. í lýðháskólanum að Voss. Vet-
urinn 1926—’27 stundaði hann íþróttanám í hinum fræga
skóia Niels Buck í Ollerup, og bjó sig þannig undir skóla-
stofnun sína.
Húsakynni Haukadalsskólans voru af vanefnum framan af,
svo sem vænta má, þar sem
efnalítill maður kom þeim upp
á eigin spýtur, jafnhliða því,
sem hann var að hefja búskap
á stórri og erfiðri jörð. Fyrsta
skólahúsið var fimleikasalur og
heimavistarherbergi út frá hon-
um til annarar hliðar, og var
þröngt setið. Næst var reist gott
fimleikahús, og gamla salnum
hreytt í borðsal og íbúð. Við
fimleikahúsið kom stór útisund-
laug úr steinsteypu. í fyrra var
bætt við nýju húsi, með rúm-
góðri kennslustofu og nokkrum
ágætum heimavistarherbergjum.
. Skólinn er raflýstur og hitaður
° með hveravatm. Hefir liann nu
orðið hin prýðilegustu ytri skilyrði. En allar þessar fram-
kvæmdir hafa kostað Sigurð Greipsson átök og fórnir, sem
ekki eru á færi annarra en óvenju viljasterlcra hugsjónamanna.
Þessi tíu ár hafa 195 nemendur sótt skólann, og hefir jafn-
an verið fullskipað. Hafa þeir verið úr 17 sýslum landsins
og Reykjavik að auki. Flestir hafa þeir verið úr Árnes- og
Rangárvallasýslum. Meginþorri þessara nemenda hefir verið
ungmennafélagar, enda hefir S. Gr. tileinkað ungmennafélög-
unum skóla sinn og starfar i anda þeirra. Hefir og U.M.F.Í.
veitt skólanum dálítinn sluðning og styrkt nokkra menn til
náms þar. Margir nemendanna hafa unnið að íþróttamálum
og kennt íþróttir heima fyrir að loknu náminu; nokkrir hafa
stundað framhaldsnám og lokið íþróttakennaraprófi, og sum-
ir hafa vakið athygli fyrir afrek i sundi og glímu á kapp-
mótum. Auk líkamsþjálfunar og íþróttanáms hafa piltarnir