Skinfaxi - 01.10.1937, Qupperneq 67
SKINFAXI
163
af ýmsum stærðum og gerðum og úr ýmiskonar viði, en öll
vömiuð og traust og vel útlítandi. Verður eigi betur séð, en
að skíði Fjölnis jafnist fullkomlega við norsk skíði, enda hef-
ir Sigfús fullkomnazt í iðn sinni í Noregi. Fjölnir auglýsir skiði
sin í þessu hefti, og vita þá ungmennafélagar hvert er að
leita, ef þeir þurfa að fá sér skíði.
Jón Ilelgason húsgagnabólstrari i Reykjavík stundaði ung-
ur skíðaferðir í U.M.F.R. Hefir hann jafnan iðkað iþróttina
síðan, af áhuga og þrautseigju, og kynnt sér hana fræðilega
flestum betur. Hann hefir fundið upp nýja gerð af skiðabönd-
um, og er hún talin taka eldri geðum mjög fram. Hefir Jón
fengið einkaleyfi á uppfyndingu sinni i Noregi og Svíþjóð.
Þyrfli nú að hefjast fjöldaframleiðsla á böndum hans hér
heima, svo að kostur verði á að fá þau við vægu verði. ■—
í ráði er, að Jón skrifi um skíðamál i næsta hefti Skinfaxa.
fslenzk skinn í skó og föt.
Ein ánægjulegasta nýjungin af mörgum góðum i islenzkum
iðnaði er skinnaverksmiðjan Iðunn, er Samband íslenzkra
samvinnufélaga hefir komið á stofn á Akureyri. Verksmiðjan
tekur við gærum, húðum og öðrum skinnum, sútar þau og
gerir úr þeim girnilegar vörur, gagnlegar og fagrar. Hún fram-
leiðir skófatnað, allt l'rá grófum og sterklegum verkamanna-
skóm og ferðahnöllum, að snotrustu spariskóm. Hún gerir káp-
ur, jakka, vesli, hanzka og aðrar flíkur úr mjúku og voð-
felldu sútuðu sauðskinni, brúnu og svörtu, bláu, rauðu og
grænu, — hlýjar flíkur, sterkar og fagrar, fyrir konur og
karla. Og frá henni geta menn fengið veski, skjalatöskur og
aðra góða leðurhluti, fullkomlega jafngóða og þá, sem áður
hefir þurft að kaupa frá útlöndum. Og betri þó, þvi að fyr-
ir íslending eru íslenzkar vörur betri en aðrar — að öðru
jöfnu.
Látinn félagi.
Eg sit við að lesa prófarkirnar af Skinfaxa, og heyri út-
varpið flytja tilkynningu um lát eins hinna mörgu lilédrægu
og hógværu ágætismanna, sem eg hefi kynnst gegn um Umf.
Það var Sigurður Sigurðsson bóndi á Stokkseyri, heill og
trausiur ungmennafélagi og dengur hinn bezti. Hann fæddist
á Stokksyeri 8. maí 1891 og átti þar lengst af heima. Hann
var einn af stofnöndum Umf. Stokkseyrar 1908 og lét störf
þess mjög til sin taka, enda hélt hann tryggð við félag sitt
til æfiloka. Hann lézt 5. október i haust.
11*