Skinfaxi - 01.11.1948, Qupperneq 60
124
SKINFAXl
Grip handar um keflið:
Mikilvægt er, að sá boðflytjandi, sem hleypur fyrsta hoð-
sprettinn, liafi öruggt grip um kefliö þegar i viðbragðsstöðu.
Boðhlaup hafa verið unnin og munu verða unnin, án þess að
keppendur gefi gripinu um keflið nægjanlega gaum.
Oft kemur fyrir, að boðhlaupssveit eyðileggur hlaupið fyrir
sér, vegna þess að sá, sem byrjar hlaupið, bregður við til
spretts án keflis, eða það fellur úr hendi lians, sökum óöruggs
grips.
Á 3. mynd eru sýndar tvær mismunandi aðferðir við að
lialda um kefli, meðan kropið er niður til viðbragðs.
Sá, sem hefur hlaupið, heldur keflinu í vinstri hendi.
Hver boðflytjandi verður að gæta þess, að grip hans nái
ekki yfir miðju keflisins, svo að viðtakandi hafi sem stærst
svigrúm fyrir grip sitt.
Þegar boðskiptin fara fram samkv. A á 2. mynd, ætti viðtak-
andi að grípa um keflið sem næst gripi flyljandans, svo að
þegar liann færir keflið í vinstri hönd, sé nóg svigrúm fyrir
grip þeirrar vinstri, þvi að hún grípur um óslcyggða enda
keflisins, til þess að rétta liinn skyggða enda í greip næsta
viðtakanda.
Við þau boðskipti, sem sýnd eru á B. á 2. mynd, verður við-
takandi við færshi keflisins í vinstri hönd að sveifla því út
til hliðar og fram fyrir sig. Við þessa færslu skapast hætta á
að keflið lendi í mótlierja á næstu braut, og þvi mæla margir
gegn þessari aðferð. Auk þessarar áhættu, verður viðtakandi
eins og í aðferð A að grípa um liinn óskyggða hluta keflisins,
bæði með liægri og vinstri liendi.
Við boðskiptin, sem sýnd eru á C, D og E á 2. mynd, má
viðtakandi grípa um framhluta hins framrétta keflis og færa
það í greip vinstri handar, þannig að sú hendi grípur um hinn
Jduta keflisins.
Hvaða aðferð, sem notuð er, á að vera auðsætt, að þýðingar-
mikið er fyrir örugg boðskipti, að viðtakandi fái nóg svig-