Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Page 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Page 23
fiskimaður. Svend Foyn var sólginn í æfintýri og áhættusamar tilraunir. Honum leiddist fá- breytni sjómannslifsins laeima fyrir. og ákvað að halda til selveiða í Norðurhöf, svo sem Eng- lendingar gerðu. Eftir að Foyn hafði kynnzt Norðurhöfum af eigin sjón og raun, lét hann smíða handa sér selveiðiskip, og sagði sjálfur fvrir um gerð þess og smíð alla. Þetta var briggskip, 230 smálesta stórt, sterkt vel, en þó sérstaklega létt og lipurt í snúningum öllum. Tókst gerð þess svo vel, að það varð fýrirmynd annara selveiðiskipa Norð- manna. Svend Foyn varð því brautryðjandi um þessar veiðar. Margir Norðmenn fylgdu í fót- spor hans, svo sem kunnugt er, einkum frá Töns- berg og Sandefjord. Selveiðarnar gengu Foyn að óskum. Ilann hagnaðist vel á þeim. En nú fór hann að koma auga á hvalina í Norðurhöfum, og hugleiða möguleika til að afla þeirra. Það var verkefni að hans skapi. Norskur maður, Jentoft að nafni, hafði feng- izt lítið eitt við hvalveiðar úti fyrir ströndum Noregs, en með svo lélegum árangri, að hann gafst upp. Foyn frétti um mann þennan, spurði hann spjörunum úr og keypti byssuhólka hans, ryðgaða og fornfálega. Nú sökkti Foyn sér nið- ur í hið nýja verkefni, með frábærri atorku og viljaþrótti. Það var ekki fyrr en árið 1864, sem Foyn þóttist hafa náð árangri og vera til hvalveiðanna búinn. Hann hafði ákveðið að setjast að norður á Finnmörk og veiða lival þaðan. Hvalinn ætl- aði hann að drepa með byssum og „granat“-kúl- VIKINGUR 311

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.