Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Síða 32

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Síða 32
Langreyðar 56 Steypireyður 1 Búrhvalir 21 Hnúfubakur 1. Fimmtíu og fjórir af hvölunum voru kardýr, en tuttugu og fimm kvendýr. Sjö af kvendýr- unum voru með kálfa, og var sá stærsti þeirra 12 fet. Lengsti hvalurinn, sem veiddist, var 7,1 fet. Úr aflanum fengust 2862 föt af lýsi, 313 lest- ir af hvalkjötsmjöli, 12 lestir af beinamjöli og 383 lestir af hvalkjöti. Útfluttar voru hvalafurðir á árinu fyrir 250 þús. kr,. er skiptist þannig: Hvallýsi 139 þús. kr., hvalkjöt 79 þús. kr. og hvalmjöl 32 þús, kr. Hvalkjöt var flutt jafnóðum til Þingeyrar og fryst þar. Var það selt frosið til Noregs og notað til refafóðurs. Vélum til að vinna hval- mjöl hafði verið komið upp á þessu ári. Árið 1938 voru hvalveiðarnar stundaðar af þrem norskum hvalveiðiskipum, sem félagið hafði tekið á leigu. Veiðarnar hófust um miðj- an maí og stóðu til miðs septembers. Afli var góður, samtals 147 hvalir. Skiptust þeir þannig: Langreyðar 113 Steypireyðar 9 Sandreyðar 5 Búrhvalir 20. Síðasta árið, sem hvalveiðistöðin í Tálknafirði var rekin, 1939, var aflinn einnig góður. Skipin voru þrjú eins og áður, og öfluðu 130 hvali. Veiðitíminn var nákvæmlega þrír mánuðir, ein- um mánuði skemmri en 1938, og var þetta því raunverulega bezta aflaárið. Fyrsti hvalurinn veiddist 11. júní, en sá síðasti 11. sept. Veiðin skiptist þannig eftir tegundum: Langreyðar 109 Steypireyðar 13 Sandreyðar 3 Búrhvalir 4 Hnúfubakur 1. Að þessu sinni voru veidd 56 kvendýr, eða 43% (41% árið áður). Níu af kvendýrunum voru með kálfa. Stærsti kálfurinn var 10 fet á lengd. Var hann í 67 feta langri lang- reyði. Lengsti hvalurinn, sem veiddist, var 81 feta löng steypireýður. Hvalkjötið var flutt til Þingeyrar og Bíldu- dals og fryst þar. Voru alls frystar 450 smál. af hvalkjöti. Um 80 smálestir seldust til refafóð- urs innanlands, en hinn hluti kjötsins var seld- ur til Noregs. Alls voru fluttar út á árinu hval- afurðir fyrir 674 þús. kr. Þegar styrjöldin skall á, varð félagið að iiætta. Munu það eingöngu hafa verið hinar breyttu aðstæður, sem ófriðurinn olli, er komu í veg fyrir áframhald veiðanna. Að lokum. Grein þessi er nú orðin allmiklu lengri en í upphafi var ætlað. Sú var hugmyndin, að gefa nokkurt yfirlit um sögu hvalveiða hér við land. Þegar til kastanna kom, reyndist viðfangsefnið stórum viðameira en mátt hefði ætla. Af því leiddi tvennt: Grein þessi varð helzt til löng fyrir blaðið, en margt þó látið ósagt, sem ástæða hefði verið að fjalla um. Væntanlega gefst þess kostur síðar, að rita ýtarlegar um þetta efni (Heimildir: Norges gamle Love. — Grágás. — Jónsbók. — Konungsskuggsjá. — Bjarni Sæmundsson: Spendýrin. — Sigurd Risting: Av hvalfangstens hist- oria. — íslenzkir annálar. — Þorv. Thoroddsen: Lýsing Islands II. Sami: Landfræðissaga Islands IV. — Island- ica XV. bindi. — Fornbréfasafn. — Alþingisbækur. — Fjallkonan IX. árg. — Tímarit hins ísl. Bókmenntafé- lags XVI. árg. — Johan Hjort: Fiskeri og hvalfangst i det nordlige Norge..— Arnold Ræstad: Hvalfangsten paa det frie hav. — H. Bogen: Linjer i den norske hval- fangsts historie. — Det norske folks liv og historie. — G. Sörensen: Hvalfangsten, dens historie og mænd. — J. T. Jenkins: A history of the whale fisheries. — Elmo P. Hohmans: The Amerikan Whalemen. — Fiski- skýrslur. — Frásagnir aldraðra Vestfirðinga.) 320 VÍKINGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.