Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Síða 33

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Síða 33
ÞORLEIFUR BJARIMASOINI UPPRISA SMÁSAGA Þórleifur Bjarnason, höfundur þessarar snjöllu sögu, er Hornstrendingur aö ætt. Um ættbyggö sína hefur h ann samið ágætt rit HORNSTREND- ÍNGABÓK. Nú er hann tekinn að fást við skáld- skap, ot7 fer vel af stað. Er nýkomin út eftir hann stutt skáldsaga, en önnur lengri og viðameiri mun í smíðum. Þórleifur er námsstjóri á Vestfjörðum. Á fjórða dag' páska sigldi Halldór Andrésson sexæring sínum, Trausta, í verið. Þótt undar- legt megi virðast, var þetta í fyrsta skipti í mörg ár, sem hann reri úr Keflavík, og var það þó ein næsta verstöðin við hann. Reyndar hafði hann ekki verið mörg ár formaður. Þetta var þriðja vorið, en hin tvö hafði hann róið úr Vog- um, inni í Fjörðum. En hann hafði róið mörg vor úr Keflavík, meðan hann var stráklingur og háseti hjá öðrum, og það hafði hann lengst af verið. Hann var kominn um fertugt og hafði lengi borið þá löngun í brjósti að verða formað- ur; svo hafði hann látið smíða Trausta upp úr minni bát, sem hann átti, og auðvitað fór hann ekki að fá annan formann á hann. Halldór hafði fiskað vel þessi tvö vor, sem hann var búinn að vera formaður. og sögðu flestir, að hann væri heppinn að fiska og kapp- samur, en ekki að sama skapi mikill sjómaður, ef í hart fór. Hversdagslega var Halldór ljúfur í viðmóti og kallaði hvern mann elskuna sína. Annars gat hann svifið milli hinna fjarstæðustu geðbrigða, verið auðmjúkur og undirgefinn I tali, jafnvel grátklökkur yfir íífsins armæðu og böli, en skyndilega orðið ofsareiður og úthellt sér yfir þann, sem vakið hafði reiði hans. Nú þegar hann sigldi Trausta sínum inn á Keflavík, var skap hans milt og undirgefið til þakklætis við forsjónina. Honum byrjaði vel og hann taldi sig hafa fengið góða háseta. Þrír af þeim voru að minnsta kosti traustir menn: Há- varður á Kambi, Jónas í Seli og Bencdikt á Barði, allt rosknir menn og vanir sjó. Svo voru liinir t'veir — Árni Grímsson og Hermann Þórð- arson, báðir ungir og miklir fyrir sér. en ógætn- ir í tali og spottsamii'. En þetta var nú svo títt um unga menn. Hann felldi segl skammt undan landi og lét róa síðasta spölinn upp í vöiina, Nei, það voru engir bátar komnir enn; liann var sá fyrsti. Allt byrjaði þetta eins og hann óskaði. Það voru reyndar ekki nema þrír bátar, sem æthiðu að róa úr Víkinni þetta vor, og hinir tveir mundu sjálfsagt koma með’ kvöldinu. Þeir Hannes á Eyri og Jónatan í Ingjaldsfirði voru sjaldan vanir að láta standa á sér. í fjöru stóðu maður og beið komu þeirra Hall- dórs. Það var auðvitað Gísli Fertramsson, bónd- inn í Keflavík. Það var sagt, að hann gætti þess vel að taka á móti útróðrarmönnum, þegar þeir komu á vorin. Ilalldór þekkti Gísla lítið nema af afspurn. IJann hafði fyrir nokkrumárumkom- ið einhvers staðar austan af Ströndum — og keypt kotið, að sumir sögðu, — hann var ekki að flíka slíku — og leigði nú útróðrarmönnum uppsátur eins og fyrirrennarar hans höfðu gert. Gísli var kominn á sextugsaldur, var tvíkvæntur og átti tvo sonu af fyrra hjónabandi. Þeir voru báðir uppkomnir, annar þeirra farinn að beim- an, en hinn reri þetta vor fyrir vestan. Skömmu áður en Gísli kom í Keflavík, hafði hann misst fyrri konu sína, en kvænzt strax aftur ungri konu. Með henni átti hann þrjú börn, sem enn voru í æsku. Gísli var hættur róðrum, en ann- aðist um skepnur sínar, Hann sagðist enga heilsu hafa til þess að róa. Eiginlega var hann alveg heilsulaus maður, að hann sjálfur sagði, og mesti aumingi, átti ekkert og barðist við sultinn. Það sögðu ýmsir, að á vngri árum sín- um hefði hann mjög stundað sjó og róið marg- ar vertíðir fyrir vestan. Sumir efuðust um, að fátækt hans væri eins mikil og hann lét af, og dýr var hann talinn á uppsátur. Gísli var hár maður vexti, beinvaxinn og hold- skarpur. Venjulega klæddist hann tötrum, og oft dróst hann áfram, þegar aðrir sáu til, en svo sögðu ýmsir, að stundum sæist liann hlaupa við fót, þegar enginn virtist nærri. Hann saug ótt og títt upp í nefið. Þá var það svo um málróm hans, að hann var oft aumingjalegur ,eins og maður- inn væri langkvalinn af armóði og vesöld. Gár- ungar hermdu því eftir Gísla og' höfðu hann að háði. Þegar Ilalldór lenti báti sínum, stóð Gísli á fremstu steinum flæðarmálsins og beið komu V í K I N G U R 321
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.