Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Síða 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Síða 46
Guftmundur Gíslason Hagalín aownrm sem enginn vildi dæma SMÁSAGA Dag nokkurn í sumar kom ég inn í rakara- stofu hérna í bænum og hugðist láta klippa hár mitt og skegg. Þetta var ein af þessum litlu rakarastofum, þar sem aðeins tveir menn vinna, og nú var annar í 'fríi. Um það var ég fræddur strax, og svo hugðist ég fara út aftur. Rakarinn, sem þarna var, var mér málkunnugur — þótt ég þekkti raunar þann betur, sem var fjarverandi, og þó að í stólnum sæti stór maður og mikil- úðlegur, þá vék rakarinn sér að mér og hvíslaði: — Ein klipping, og einn rakstur, og svo eruð það þá þér. Hann þarna er ekki í svoleiðis e'r- indum. Hann fær bara að sitja þarna. Ég leit á manninn, sem fékk bara að sitja. Þetta var lítill maður, aldraður, klippt yfirskegg, bleikt hörund, grátt hár niður undan kastskeyt- isræflinum, þvæld föt, en ekki ýkja slitin, voru úr grófu gráleitu efni. Ég sá ekki almennilega framan í manninn, en mér virtist hann góðlát- legur, hallaðist þarna rólega fram á hendur sér, virtust ekki mikil vandræði að því, þó að hann fengi að híma á bekknum. Ég fór úr frakkanum og hengdi hann og hatt- inn á snaga. Sá álúti var á bekkjarenda, og ég settist á hinn, svo á milli okkar varð þriðji maðurinn, sem þarna sat. Hann var hár vexti og grannur, dökkur á brún og brá og með dökka þétta skeggrót. Hann var lítið eitt tekinn að gi-ána í vöngum, var á að gizka um fimmtugt. Hann var vel búinn og snyrtilegur, en ekki fannst mér hann þó þesslegur, að hann hefði alla æfi gengið uppstrokinn. En skrambi var hann vel vaxinn, spengiiegur hreint og beint. Mér datt í hug, að þetta væri vélstjóri, sem kom- inn væri út í einhverns konar bissness. Humm — já, einhvern tíma mundu þær nú hafa litið við honum, þessum, og mundu enn gera — ef hann kærði sig — og máski kærði hann sig? Við sátum báðir og lásum blöð, en ég hafði fengið blöðin á hverj um einasta morgni í langan tíma, og mér þótti ekkert sælgæti að lesa þau svona 1 annað sinn. Ég varð þess vegna feginn, þegar sessunautur minn fleygði frá sér blaðinu, kveikti í hasti í sígarettu, fleygði frá sér eld- spýtunni og mælti við rakarann: Gnömundur Gíslason Hagalín. — Það er meira helvítið með síldina, lags- maður. Rakarinn átti ekki nein orð yfir slík ósköp. Hann hristi því höfuðið mjög kröftuglega. Hinn hélt áfram: — Það verður sjálfsagt enginn hægðarleik- ur í haust, að fá borgaðar allar viðgerðirnar. Sko mig! Grunaði mig ekki! Eigandi í vél- smiðju! Hann hélt áfram sínu: — Að hún bregðist svona gersamlega tvö ár í rykk! Ég veit ekki hver stýrir slíku, en mér sýnist það horfa allt til andskotans. Skyndilega lyfti hann höfði, sá, sem hafði hallazt fram á hendur sínar. Jú, hann var mik- ið drukkinn. Hann ætlaði auðsýnilega að segja eitthvað. Og nú hristi hann höfuðið og sagði: 334 V I K I N G U R
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.