Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Page 60

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Page 60
Minningarorð Guðmundur Jónsson frá Reykjum F. 12. júní 1890. I). 6. september 1940. Hinn 1. okt. 1910 sá ég í fyrsta sinn Guð- mund Jónsson. Það var við skólasetningu í stýrimannaskólanum, hann var einn þeirra ný- sveina, sem settust í skólann þann vetur, við vorum í sömu deild um veturinn og urðum við vel kunnugir. Hann stundaði námið af framúr- skarandi dugnaði, svo að hann lauk prófi um vorið 1911, eftir að liafa verið einn vetur í skól- anum, og fékk ágætis próf. Strax að prófi loknu varð laann stýrimaður á togaranum Frev. Var ekki laust við að við öfunduðum hann af þess- ari stöðu, þar sem við hinir urðum að sætta okkur við stýrimannspláss á vélalausum segl- skipum (skútunum). Upp frá þessu fór vegur Guðmundar stöðugt vaxandi, unz hann náði því hámarki að verða skipstjóri á öðrum stærsta togaranum, sem til var hér, „Skallagrími“. Á þessu skipi lék allt í lyndi fyrir honum, í fjölda mörg ár var hann aflahæstur, og var svo stund- um, að manni fannst Skalli vera of lítið skip fyrir Guðmund. Guðmundur var ekki mikið fyr- ir breytingar. Hjá sama útgerðarfélaginu vann liann sem skipstjóri yfir 20 ár (H.f. Kveldúlfi). Fór hann þaðan ekki fyrr en hann gerðist með- eigandi í b.v. Reykjaborg, sem hann var skip- stjóri á, þar til hún fórst 1941, en hún var skot- in niðui’ af Þjóðverjum á leið til Englands. Miss- ir þessa skips og skipshafnarinnar er áreiðan- lega þyngsta áfall sem Guðmundur varð fyrir meðan hann lifði. Guðmundur valdi sér fyrir lífsförunaut Ingi- björgu Pétursdóttur frá Svefneyjum, og giftust þau 1916. Höfðu þau því búið saman í 30 ár þegar Guðmundur lézt. Hjónaband þeirra var eins gott og bezt getm’ verið, enda voi'u þau samvalin að myndarskap og mannkostum. Þau eignuðust 6 börn, og eru 5 þeirra á lífi, öll upp- komin, mjög mannvænleg. Guðmundur var borin og barnfæddur Reyk- víkingur, og bjó hann þar til ársins 1927, að hann fluttist á eignarjörð sína, Reyki, með mági sínum, Bjarna Ásgeirssyni, og hefur hann búið þar síðan, og bætt húsakynni og jörðina eins og bezt er hægt. Guðmundur andaðist í Landspít- alanum 6. sept., eftir langa og þunga legu. Um leið og jarðneskar leifar hans voru fluttar úr fæðingarbæ hans, var hann kvaddur í dómkirkj- unni af afar rniklu fjölmenni. Hinn 14. sept. var hann svo jarðsettur að Lágafelli. Var þar svo mikill mannfjöldi saman kominn, að lítill hluti þess komst í kirkju, má á því sjá, hve vinsæll maður Guðmundur var. Við fráfall Guðmundar Jónssonar skipstjóra er horfinn úr skipstjórahópnum einn hinn glæsi- legasti, vinsælasti og heppnasti skipstjóri, sem við höfum átt í okkar hópi. Er'hans sárt sakn- að af samverkamönnum, félögum og frændum, en sárastur er söknuðurinn hjá eftirlifandi eig- inkonu og börnum. Þau hafa svo mikið misst, að þau fá það aldrei bætt. En það er huggun í harmi, að vita, að orðstírinn, sem hann ávann sér deyr aldrei, og mun verða öldum og óborn- um til fyrirmyndar. Blessuð sé minning hans. Guðbjart u r ó lafsson. Det har været godt aa lese de minneord der er skrevet om Skipsförer Gudmundur Jonsson, Reykjum og jeg forstaar saa godt den sympati der overalt blev vist ved hans altfor tidlige död. 34B V I K I N □ U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.