Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Page 68

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Page 68
Dr. Jón Dúason N or ðurhaf s v eldi Eitt sinn barði tækifærið stór högg á dyr íslenzku þjóðarinnar. íslenzkir sæfarar fundu Grænland og rétt þar á eftir sjálft meginland Vesturheims 986. Og tæki- færið var gripið. Skjótt og röggsamlega var til dyr- anna gengið þá! Það var fyrsta hafsiglingaþjóð ver- aldarsögunnar, fyrsta þjóð í heimi, er sigldi sjálfviljug og óttalaus um opin heimshöf, sem þá réð húsum á Is- landi. Grænland var numið í skyndi og með þeirri röggsemd, er lengi verður minnst. Hver landkönnunar- og landnámsferðin eftir aðra var farin til Vesturheims, og réttur þessara Vesturheimsfara var tryggður í milli- ríkjasáttmála við Noreg ca 1016—1023, er geymst hef- ur í handritum Grágásar og oft síðar var endurtekinn með svardögum, og loks gerður ævarandi með ákvæðum Gamla sáttmála 1262—64. Allar strendur Grænlands að vestan og austan voru numdar. Allar strendur Vesturheims frá Nova Scotia norður eftir, norðurstrendur Vesturheims og vestur1- strönd þeirrar heimsálfu langt suður í Alaska voru numdar af íslendingum, svo sem ritaðar heimildir og rústir þessara ísl. byggða votta enn í dag. Þeir ís- lenzku þegnar, sem námu þessi lönd, fóru með íslenzkt þjóðfélagsvald. Með námi þeirra á þessum ströndum fór fram opinberréttarlegt landnám. Allt þetta vest- ræna svæði var hluti hins ísl. þjóðfélags, var í „vár- um lögum“, svo sem það er kallað á máli Grágásar. Afkomendur fslendinga byggja enn allar þessar vest- rænu strendur. Hin verklega menning þessa fólks er enn svo að kalla öll íslenzk, en það hefur týnt tungu sinni og þar með þeirri menningu að mestu, er geymd- ist á tungunni. Það hefur blandast lítillega við kol- svarta dvergþjóð, 3—4 feta á hæð, er bjó í holum neð- anjarðar á þessum svæðum og hafði enga kunnáttu í því að hlaða eða leggja stein ofan á stein. Að líkams- gerð og gáfnafari mega þessir fjarlægu landar vorir heita norrænir menn og að litarhætti líka. Á Marklandi og Grænlandi kalla þeir sig enn karla, þ. e. íslenzka almúgamenn. — Um þenna merkasta þátt í sögu. ís- lendinga, og raunar allri veraldarsögunni, geta þeir, er vilja, lesið í bókinni Landkönnun og landnám fs- lendinga í Vesturheimi. Fólksstraumurinn frá íslandi til Grænlands og öll han vindrafstöð, sem hann lætur nú snúa vélinni. Kristinn er kvæntur Sesselíu Benediktsdóttur (systur- dóttur sr. Þorleifs frá Skinnastað), og er sú kona í hvívetna manni sínum samboðin. Þau hafa reist nýbýli, Nýhöfn, í landi Leirhafnar. Starfrækir Kristinn þar smiðju sína, og hefur hún orðið mörgum að liði, eigi aðeins innanhéraðsmönnum, heldur einnig sjómönnum víðsvegar að, sem koma þangað með bilaðar vélar eða annað í ólagi, og fá við það gert. Einar Sigfússon. sigling milli íslands og hinna vestrænu landa þess var stöðvuð með konungsboði um miðja 13. öld, er Björg- vinjareinokuninni var skellt á löndin. En frá Grænlandi var bændafólkið stöðugt að tínast vestur í heim. Það verður ekki sannað, að landbúskap hafi verið hætt með öllu í Eystribyggð fyrr en á 17. öld eða í byrjun 18. aldar. Og tréskip Grænlendinga var að hrekja um At- lantshafið og reka hér við land fram á 18. öld. Telja má víst, að þetta séu skip, er lent hafi í hafvillum milli Grænlands og Marklands. Um þetta geta menn lesið í áðurnefndri bók. Meðal allra þessara vestrænu landa hefur eyjan Grænland þá sérstöðu, að henni hefur alla tíma verið stjórnað af konungi íslands, og undir hans yfirráðum er hún enn. Auk hins eðlilega réttar, sem felzt í því, að landar vorir byggja Grænland enn, er hinn lagalegi eignaréttur íslendinga til Grænlands öldungis augljós og órengjanlegur. Og það er sóma vorum ekki samboðið, að draga það lengur að reka þessa réttar vors. Áður stundi þjóð vor undir réttleysinu í kyrkigreipum hinna dönsku kúgara. Nú er þjóð vor frjáls, og nú getur hún beitt þjóðaréttinum. Hví hika forráðamenn landsins þá við að gera það? Eftir hverju er beðið? Hví er öll þessi bið, þar sem það er af öllum viður- kennt, að fiskigrunn vor við Grænland og hafnir þar séu orðnar lífsnauðsyn fyrir íslenzkan sjávarútveg? Þurfa landsstjórnarmenn vorir að lifa fleiri taprekstr- arár á útgerðinni, fá fleiri löðrunga, til þess að vakna til réttra aðgerða? Eða hafa menn ekki enn vaknað til skilnings á því, að öll Norðurhafslöndin, Færeyjar, Is- land og Grænland eru ein hagfræðileg eining, sem af ómótstæðilegum öflum eru knúin til að starfa saman í allranánustu samvinnu, helzt sem eitt, samsett eða ósamsett þjóðfélag. Tækifærið ber nú enn á dyr íslenzku þjóðarinnar! Þörfin kallar nú um brýna nauðsyn þess, að öll Norður- hafslöndin, ísland, Grænland og Færeyjar sameinist í eitt þjóðfélag frjálsra manna og jafnra í öllum rétti. Slík sameining ein getur tryggt atvinnuvegum þessara landa lífvænlega framtíð og íbúum þeirra frelsi. Það er skylda íbúa þesara landa að ræða nú mál þetta af hreinskilni, raunsæi og viti og með góðum hug. Og það er skylda Islendinga að hafa forgöngu í því. Göngum nú jafn skjótt og röggsamlega til dyranna og feður vorir gerðu forðum, er tækifærið knúði á hurðir þeirra. Með undursamlegu seiðandi afli draga fiskigrunnin við Suður- og Vesturland að sér ógrynni fiskjar frá víðáttumiklum hafsvæðum til að hrygna. Þá er vetrar- vertíð við Suður- og Vesturland. Það er Færey- ingum lífsnauðsyn, að fá jafna aðstöðu við íslendinga til þátttöku í þessari veiði. Það er íslendingum lífs- nauðsyn, að Færeyjar, sem eru einar 40 danskar mílur suðaustur af Eystra-Horni, komist ekki undir erlent vald eða verði sem „sjálfstæðar" notað sem ræningja- 356 V í K I N □ U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.