Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Qupperneq 83

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Qupperneq 83
reyndist honum, hefðu Passíusálmarnir sennilega aldrei orðið til. Þessa hefir verið getið Brynjólfi biskupi til verðugs hróss. Hitt finnst mér að hafi of lengi verið látið liggja í þagnargildi, hversu prófasturinn í Selár- dal, séra Páil Björnsson hefir lagt ómetanlegan skerf kristindóminum í landinu til eflingar, með því að stuðla að menntun þeirra feðganna séra Þorkels Arngríms- sonar og Jóns biskups Vídalíns, sonar hans. Hannes Þorsteinsson segir í æfisögu séra Páls, að þeir bræð- urnir Jón Vídalín og Arngrímur bróðir hans hafi verið til náms hjá séra Páli í Selárdal áður en Jón sigldi til háskólans í Kaupmannahöfn, og kemur það heim við það, sem forfeður mínir hafa eftir mönnum, sem talað höfðu við sóknarbörn séra Páls. Má geta nærri um það, hvort þessi sterkríki, andríki og flug- gáfaði lærdómsmaður, hafi ekki haft unun af að veita þessum bláfátæka en stórgáfaða frænda sínum ókeypis kennslu. Ef séra Páll hefði ekki stutt þennan fátæka frænda sinn á menntabrautinni, hefði hið ódauðlega mælskunnar listaverk — Vídalínspostilla — verk and- ríkasta og mælskasta kennimannaskörungs, sem verið hefir á íslandi, sennilega aldrei orðið til, bókin, sem skáldjöfurinn Einar Benediktsson kveður um: „Á hill- unni er bók, hún boðar trú, sem blessar og reisir þjóðir". Og um Jón biskup Vídalín segir skáldið: „Hans meistaraorð á þann eld og það vald, sem eilíft varir í gildi“. Þessa verks finnst mér að eigi að geta, séra Páli til verðugs lofs. Séra Páll prófastur var búsýslumaður mikill og út- sjónarsamur fjáraflamaður. Búnaðist honum ágætlega í Selárdal. Lagði hann sérstaklega mikla stund á sjávar- útveginn. Fann hann upp betra bátalag, en áður hafði þekkst. Varð hann stórríkur maður, án þess þó að þess sé getið, að hann hafi haft ranglega fé af öðrum. En talið var að hann hafi ekki farið nákvæmlega eftir bókstaf einokunarverzlunarlaganna, sem lágu sem mara eða plága á þjóðinni og mergsugu hana um daga séra Páls. Munu fáir telja prófasti það til mikils ámælis. Nokkuð af auð sínum mun hann hafa fengið að erfð- um eftir föður sinn, en mestan hlutann hefir hann áreiðanlega fengið vegna framúrskarandi dugnaðar og ráðdeildar og framtakssemi. Skipti hann milli 5 barna sinna árið 1688, 4 hundruðum hundraða í jörðum og lausafé. Svo erfði hann Halldór eldra, son sinn, og 1703, eða 3 árum fyrir dauða sinn, átti hann 3 hundruð hundraða í fasteignum. Er hann talinn hafa verið einhver auðugasti prestur á landi hér á þeim tímum. Þegar séra Páll hafði verið fimm ár prestur í Selár- dal, eða árið 1650, lét hann smíða litla skútu eftir hollenzku lagi, sama lagi og Hollendingar höfðu á skipum þeim, sem þeir fiskuðu á hér við land. Var hann sjálfur skipstjóri á skútu þessari framúndir 20 ár, eða þar til að veikindavandræði konu hans steðjuðu að heimili hans. Séra Páll var vel að sér í siglinga- fræði, og reiknaði út fyrstur manna hnattstöðu Bjarg- tanga. Er sagt að hann hafi oft aflað ágætlega á skútu þessa, þó að aðrir fiskuðu lítið. Skútu þessari lagði hann á hinum svokallaða Krókspolli. Er það svæði fyrir framan lendinguna á bænum Króki, sem var eitt af hjáleigubýlum staðarins (Selárdals). Er svæði þetta (Krókspollurinn) að miklu leytrvarið fyrir brimsjóum af um 400 metra löngum en lágum grjóttanga, sem gengur fram í fjörðinn. Tangi þessi er kallaður Króks- höfuð. Hefir reynzlan sýnt að dekkuðum skipum er fært að liggja á pollinum, þótt brim og stórviðri sé, en ekki opnum mótortrillum. Að .vetrinum stóð skútan í hinu svonefnda „Skútuhrófi". Skútuhrófið var á melnum upp af hinu svo nefnda Klettsskeri. Seint í ágúst árið 1898 var ég staddur í Selárdal við jarðarför ömmu minnar sál. Þórunnar Einars- dóttur, ásamt föður mínum, Boga Gíslasyni og bróður hans, Einari Gíslasyni. Var Einar kunnur fyrir áhuga sinn á sjávarútvegsmálum. Smíðaði hann fyrstur manna smokköngla hér á landi og veiddi fyrstur manna smokk- fisk hérlendis á öngul. Sendi hann frá sér smokk- öngla norður að ísafjarðardjúpi og víðar um Vest- firði. Lærðu menn þá að veiða smokkfisk.inn, sem er tálbeita eins og kunnugt er. Ennfremur byrjaði hann fyrstur á því að veiða síld og plægja kúfisk við Arnar- fjörð. Jók þessi framkvæmd hans afarmikið fiskaflann vestra, Vestfirðingum til ómetanlegs gagns. Þeir faðir minn og Einar bróðir hans sýndu mér þá skútuhrófið, leit það út sem aflöng laut með melborgum umhverfis. Nn mun það að mestu leyti horfið vegna sandfoks og uppblásturs. En ég veit hvar það var. Þeir faðir minn og Einar bróðir hans voru báðir fæddir og uppaldir á Selárdal, því Gísli Árnason, faðir þeirra, en bróður- og tengdasonur séra Einars Gísla- sonar prests í Selárdal, var mörg ár ráðsmaður hjá séra Einari tengdaföður sínum. Þeir bræður voru því nákunnugir öllum staðháttum og höfðu heyrt ýmsar sagnir um presta þá, sem voru nokkru á undan séra Gísla langafa þeirra í Selárdal. — Nokkru utar en skútuhrófið er, fellur lækur til sjávar, og nefnist Tein- æringslækur. Við læk þennan stóð til forna hróf, sem kallað var teinæringshróf. Þar er sagt að séra Páll hafi sett upp teinæring þann, sem hann notaði til skreiðarferða og ýmissa aðdrátta, og til hákarlaveiða. Árið 1905, eða árið áður en séra Páll dó, er sagt í annálum að hann hafi misst tvö skreiðarskip og 8 menn í góðu veðri, af ofhleðslu. Voru þeir á heimleið úr Kópavík, því þar hefir gamli maðurinn haft út- gerð, enda var þar bátaútgerð fram á 19. öld, eins og kunnugt er. Það, sem ég hefi hér sagt um séra Pál og ég hefi hvergi áður séð skráð, er: 1. Ár það, 1650, sem hann lét smíða skútuna og byrjaði að gera hana út. 2. Legupláss skútunnar — Krókspollurinn. — 3. Skútuhrófið, þar sem skútan stóð uppi að vetr- inum. 4. Teinæringshrófið. 5. Húsið við Skarfossinn, sem prófastur lét byggja handa Helgu konu sinni, henni til afþreyingar í veikindum hennar. . 6. Um skagfirzku konuna, sem fleytti syni sínum á mjólkurtroginu yfir Selársdalsána. 7. Að einn nábúi séra Páls varð bráðkvaddur undir messunni í Selársdalskirkju. Heimildarmenn mínir fyrir ofanrituðum sögnum í sjö þáttum eru tvær ömmur mínar og afi minn: Þór- unn Einarsdóttir, fædd 4. des. 1817 og Jóhanna Einars- dóttir, systir hennar, fædd 15. des. 1822, dætur séra Einars Gíslasonar prests í Selárdal. Afi minn, sem ég hefi líka sagnirnar eftir er Árni Ámason, fæddur 4. sept. 1822, maður Jóhönnu. Hann var sonarsonur séra Gísla Einarssonar og bróðursonur séra Einars, V I K I N G U R 371
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.