Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Síða 86

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Síða 86
Bækur Heildarútgáfur. Þegar litið er til baka yfir hinn mikla bókaflaum styrjaldaráranna, mun það ekki dyljast bókavinum, að heildarútgáfur ýmissa eldri öndvegisrita vorra eru ein- hver varanlegastu minnismerki þess tímabils. Fram að styrjöldinni höfðum við ekki haft efni á því að gefa út heildarsöfn af ritverkum margra beztu skálda vorra. Nú hafa þau komið hvert af öðru, og önnur eru í upp- siglingu. Þetta er mikill fengur. Hvað sem að öðru leyti verður sagt um bókaútgáfu síðustu ára, — og mörgum þykir nóg um —, munu fáir á móti því bera, að fremstu skáld vor eigi jafnan að vera til í vönd- uðum heildarútgáfum. Þessa dagana kemur út áttunda og þar með síðasta bindið af ritverkum Jóns Trausta. Útgefandi er Guð- jón Ó. Guðjónsson. Með því bindi er lokið stærstu heild- arútgáfu, sem enn er til af ritum nokkurs skálds á vora tungu. Jón Trausti stendur svo föstum fótum í íslenzk- um jarðvegi að hann nýtur enn fágætra vinsælda sem sagnaskáld, og á þær vinsældir fyllilega skilið. — Pétur Lárusson hefur annast útgáfu þessa, sem er hin veg- legasta í hvívetna. Ljó'ömæli Einars Benediktssonar í þrem bindum komu út á vegum ísafoldarprentsmiðju í sumar. Hinir mörgu aðdáendur skáldsins hafa eflaust fagnað þeirri útgáfu og þá ekki síður hinu, að boðað var úrval rita Einars í óbundnu máli. Ágætur bókmenntafræðingur mun nú starfa að því verki, og er þess að vænta, að vel takizt. Munu menn þar kynnast blaðamennsku Einars Bene- diktssonar, sem var um margt hin merkilegasta. Þá er það einnig í ráði, að ævisaga skáldsins fylgi þeirri útgáfu. Svalt og bjart, rit Jakobs Thorarensen í tveim bind- um eru fyrir nokkru út komin á vegum Helgafells- útgáfunnar. Fyrra bindið hefur að geyma Ijóð skálds- ins, hið síðara smásögur hans, og lausavísur sem bókarauka. Jakob sr sérkennilegt skáld og kjarnmikið. Hefur hann ort ófá vel gerð kvæði, einkum á fyrri árum. Smásögur hans eru flestar skemmtilega sagðar, hnyttnar og fyndnar, sumar prýðisgóðar. Útgáfan er vönduð, þótt ekki hafi tekizt að útrýma svo prentvillum, sem skyldi. Heyrzt hefur að hafinn sé undirbúningur að heildar- útgáfum ýmissa skálda vorra, Matthíasar, Gröndals, Guðmundar Friðjónssonar, Guttorms J. Guttormssonar o. fl. Er gott til þess að vita, og ólíkt skyldara að eyða til þess nokkru fé en útgáfu þýddra ruslbóka (og frumsaminna), sem gera þá, er lesa, að heimskari og verri mönnum. Ljóð. Á íslandi, þar sem annar hver maður yrkir 1 jóð og tíundi hver gefur þau út á prenti, virðist ekki gróða- vænlegt fyrir útgefendur að leggja fjármagn sitt í kvæðasyrpur. Flestir yrkja nóg til heimilisnota og þykj- ast jafnvel aflögufærir. Útgáfa ljóða hefur heldur ekki mjög oft borið mikinn ávöxt í einum eða neinum skiln- ingi. Þess eru mörg dæmi, að sá ríflegi hluti þjóðar- innar, sem yrkir og vill ólmur gefa út Ijóð, hefur orðið að stríða í ströngu við að koma andríki sínu á prent. Á kreppuárunum var það algent, að höfundar gerðust sjálfir kostnaðarmenn Ijóða sinna, þegar aðrir vildu hvorki hætta fé né mannorði til þess. Og það mun sannast sagna, að fá urðu skáldin rík af þessa heims seimi, og löngum var smátt um frægðina og framann. En svo er hamingjunni fyrir að þakka, að stundum „gerast ævintýri með þjóð vorri.“ Eitthvert skemmti- legasta ævintýri síðari tíma, á sviði skáldskapar og lista, gerðist haustið 1933, þegar Fagra veröld kom út og seldist á skömmum tíma í þrem útgáfum. Þessi elskulega bók, full af skáldskap og þokka, gamansöm og glettin í aðra röndina, tær lyrik hinum þræði, hljóp, ef svo mætti segja, upp í fangið á þjóðinni. Síðan hefur skáldið aukið á vinsældir sínar og ágæti. Nú stendur honum enginn framar íslenzkra ljóðmanna, svo að ekki sé meira sagt. Héðan af búast allir við mikiu er þeir lesa kvæði, sem nafn Tómasar Guðmundssonar er tengt við. En Fagra veröld er og vei'ður ævintýrið í lífi skálds- ins, hversu ágæt kvæði sem hann hefur ort síðan og kann að yrkja á ókomnum árum. Og nú er hún komin í fjórðu útgáfu, veglegar prentuð en fyr, myndum prýdd. Já, bókin er myndum prýdd. Þannig er stund- um að orði komizt um „illustreraðar" bækur, þótt erfitt sé oft og einatt að koma auga á „prýði“ myndanna. En myndirnar í Fagra veröld eru margar hverjar snotrar og. skemmtilegar. Þetta skal því fremur tekið fram, þar sem einn af ágætustu listamönnum vorum, oft fagur- skyggn á mál og myndir, hefur hreytt furðulegum ónotum að teikningunum í Fögru veröld, jafnvel talið þær flestu eða öllu verri, sem sézt hefur hér af því tagi. Fæ ég ekki betur séð en að þetta séu furðuleg og staðlaus gífuryrði. Hverju eigum við að venjast um myndskreytingar bóka? Mjög oft ber þar mest á alvöru- leysi og svo algerum skilningsskorti á viðfangsefninu, að helzt mætti ætla teiknarann ólæsan. Teikningar Ás- geirs Júlíussonar í Fögru veröld fara margar hverjar vel ó fleti, falla oft að blæ og anda kvæðanna, eru skreytandi og ánægjulegar. Virðist mér Ásgeir eiga fremur lof en last skilið fyrir frammistöðu sína. Að baki myndanna liggur alvarleg vinna, sem vissulega hefur borið ávöxt. Allmargar nýjar Ijóðabækur hafa borizt á fjörur Víkings í sumar og haust. Heldur er þar fátt um fína drætti. Er hollt að minnast hins fornkveðna: Fæst orð hafa minnsta ábyrgð. Og svo ekki meira um það. 374 V í K I N G U R
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.