Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Síða 87

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1946, Síða 87
Ævisaga. Matthías Þórðarson frá Blóum er flestum íslending- um kunnur, einkum eldri kynslóðinni. Hann er nú kominn nokkuð yfir sjötugt og hefur dvalizt erlendis um langt skeið. Margt hefur á daga Matthíasar drifið, og er hann nú tekinn að x-ita ævisögu sína. Mun kenna þar mai’gra gi'asa, ef að líkum lætur. Fyrsta bindi ævisögunnar er þegar komið út, prentað í Kaupmanna- höfn. Heitir það Litiö til baka, og er allstór bók, 240 bls. að stærð. Þarna segir höfundur frá ættmönnum sínum, æsku og uppvexti, fyrstu sjóferðum, utanför, námi í siglingafræði og upphafi slcipstjóx’narferils síns. Fjöldi þekkti-a manna kemur við sögu. Er ekki að efa það, að margur hefur gaman af að líta til baka undir handai’jaðrinum á Matthíasi Þórðarsyni. Myndir eru mai-gar í bókinni. Erlend skáldrit. Mikill hluti þeirra bóka, sem út hafa verið gefnar undanfarna mánuði, eru þýdd skáldverk. Kennir þar ýmissa gx-asa, góðra og illra. Mun hér fátt eitt talið. Sigurboginn nefnjst mjög stór skáldsaga eftir þýzka skáldið Erich Maria Remarque, sem lengi hefur dvalizt landflótta í Ameríku. Remarque gat sér heimsfi-ægð fyrir hinar frábæru styi'jaldarsögur sínar, „Tíðinda- laust á vesturvígstöðvunum“ og „Vér héldum heim“. Síðan hefur hann í’itað allmai’gar bækur, sem þótt hafa stói-um rislægri, þótt selzt hafi þær í Vestur- heimi. Síðasta bók hans, Sigurboginn, fjallar um líf og örlög flóttafólks, lýsir rótleysi þess, baráttu við ytri erfiðleika og innri tvístrun. Bókin hefur selzt í geysistórum upplögum vestan hafs, þi'átt fyrir misjafna dóma fagurfræðinga. Hún fjallar um efni, sem mörgum er hugleikið. Höfundur kann „handverkið“, getur lýst fólki af ýmsum toga. Saga þessi er athyglisverð um margt, þótt mjög standi hún styrjaldarsögum höfundar að baki. — íslenzku þýðinguna gei’ði Maja Baldvins. Út- gefandi er Pálmi H. Jónsson. Ormwr rauði, eftir sænska skáldið Frans G. Bengtson hefur þótt mikill bókmenntaviðbui’ður í Skandinavíu. Þetta er skáldsaga í tveim bindum, er gerist á vík- ingaöldinni, og hefur fyrra bindið nú verið íslenzkað. Höfundurinn, sem er ágætt ljóðskáld og þykir rita sænsku mjög vel, virðist hafa tekið upp þann hátt í þessu skáldverki sínu, að stæla íslenzk fornrit, og þá ekki sízt Heimskringlu. Hefur þetta fallið Svíum og Dönum svo vel í geð, að sagan hefur „mokazt út“ í þeim löndum báðum. — Nú er fyrra bindið komið á íslenzku, fremur læsilegt og dável þýtt. En ekki skyldi mig undi-a, þótt hrifning Islendinga yrði minni en Svía og Dana. Við höfum fornritin til samanbux’ðar, stíl þeirra og snilld í samtölum. Vei’ður Oi'mur rauði víða heldur fátæklegur þegar hann er skoðaður í sama ljósi og veginn á svipaða vog. — En allt um það er hér dágóð skáldsaga á ferðinni. Má ætla, að hún sé einkum við hæfi tápmikilla, en nokkuð þroskaðra drengja. — Þýðing bókarinnar er eftir Friðrik Ásmunds- son Brekkan. Útgefandi er Bókfellsútgáfan. Fast þeir sóttu sjóinn, eftir Norðmanninn Lars Han- sen, er ein þeii’ra skáldsagna, sem Víkingi hefur verið send. Lars Hansen gerðist ungur sjómaður, varð síðar skipstjóri, stundaði lengi selveiðar í norðurhöfum, og komst í marga í’aun. Þegar hann var orðinn roskinn, tók hann að rita skáldsögur er herma frá atburðum úr lífi sjómanna í norðlægum höfum og veiðimanna í heimskautalöndum. Hann þekkir út í æsar líf það og baráttu, sem hann lýsir. Bælcur hans eru allar þrótt- miklar lýsingar á lífi hai’ðgerðra og hi’júfra manna. Þar er hvorki víl né vol að finna. Karlmennska og dreng- skapur eru þeir eiginleikar, sem Hansen dáir mest. Hann verður ekki talinn í hópi „stói’u spámannanna“ í bókmenntunum, en skipar jafnan rúm sitt með sæmd. Fast þeir sóttu sjóinn er einhver bezta saga Hansens, fjöi’lega sögð og viðburðarík. Þar er bi’ugðið upp möi’g- um ágætum myndum úr lífi sjómanna. Söguhetjan, Ki’istófer Kalvaag skipstjói’i, verður manni einkar minnisstæður. Er hánn í alla staði vel gerð persóna. — Jón Helgason blaðamaður hefur þýtt sögu þessa á einkar létt og lipurt mál. Útgefandj er Draupnisút- gáfan. Önnur skáldsaga í þýðingu Jóns Helgasonar, á for- lagi Draupnisútgáfunnar, er Dóttir jarðar, eftir enska skáldið A. J. Ci’onin. Ci’onin er í röð fi’emri höfunda og nýtur afar mikillar hylli víða um lönd. Sú bók, sem hér liggur fyrir í íslenzkri þýðingu er ein stytzta, en jafn- framt einhver bezta saga þessa höfundar. SKÁK Frá skákmótinu í Groningen ágúst—september 1946. Fanskt tafl. Hvítt: G. Stollz Svíþjóð. Svart: M. Botvinnik. U.S.S.R. 1. e2—e4 e7—e6 2. Ddl—e2 Tchigorin-afbi-igðið í fi’önsku tafli er fremur sjald- gæft, enda vai’la það bezta. Hið venjulega d4 er bezt. 2. —c7—c5. Talið bezt, en leiðin 2. —”— R—c6! 3. f4. (Ef 3. R_ f3 þá e5!). B—c5. 4. R—f3, d6, 5. R—c3 e5. (5. — Re7 og næst d5 er einnig gott áframhald) 6. R—a4, B— b6, 7. Rx b6, aXbö, 8. d3, R—e2, 9. a3, o—o. Tartakover —Reti Vín 1828, er vel verð athugunar. 3. g2—g3 Rb8—c6 4. Bfl—g2 Rg8—e7 Dr. Tarrach lék í þessari stöðu gegn Tchigorin: 4. —„— R—d4; 5. D—d3, B—e2; 6. R—c3,Bf6;7. R—b5, Rxb5; 8. DXb5; D—b6; 9. D—e2, d6 með góðri stöðu á svart, svo fróðlegt hefði verið að vita hvað Stoltz hafði í hyggju bjóðandi þessa leið. 5. Rbl—c3. Beti’a væi’i hér 5. c3 sem bíður möguleikann d4 síðar meir ef til vill. Með þessum leik fær vart mikil yfix-ráð á d4 reitnum. 5. —g7—gö 6. d2—d3 Bf8—g7 Hér kemur vel tilgreina R—d4, en þó er útspilið meira virði um þessar mundir. 7. Bcl—e3. V í K I N □ U R 375
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.