Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Side 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Side 19
VÍKINGUR BLIKUR A LOFTII STJÓRN FISKVEIÐA GUÐJÓN A. KRISTJÁNSSON, FORSETI FFSÍ: Fátt er eins umdeilt og stjórn fisk- veiða hér á landi. Ég fullyrði að gild- andi stjórnkerfi fiskveiða sé rnein- gallað og almenn andstaða gegn því fari vaxandi. Mér hrýs hugur við þeim forréttindum og valdi, sem fengið er í hendur þeirn fámenna hópi manna, sem teljast til handhafa veiðiheimilda. ísland er fámennt land og byggir afkomu sína á sjávar- útvegi. Þess vegna má það aldrei henda að aðgangi að lífsbjörginni sé stjórnað af fámennum forréttinda- hópi, sem hefur tök á að ákveða af- komu almennings í landinu. Erindið fjallar um þær blikur á lofti í stjórn fiskveiða, sem framund- an eru. Ég mun fjalla um markmið gildandi stjórnkerfis fiskveiða og hvers vegna þau hafa ekki náð fram að ganga. Þá mun ég fjalla urn stefnumörkun og sérstöðu Far- manna- og fiskimannasambands Is- lands gagnvart kvótakerfinu og jafnframt um aukna samstöðu milli samtaka sjómanna í andstöðu gagn- vart kvótabraskinu. Einnig mun ég fjalla um fyrirhugaðar breytingar á lögum kvótakerfisins, sem stjórn- völd ráðgera á næsta þingi, en þar er helst að nefna svokallaðan Þróunar- sjóð sjávarútvegs. Að lokum verður fjallað um‘ drög að nýrri veiðistýr- ingu, sem samþykkt var á síðasta þingi FFSÍ. Óhætt er að segja að markmið stjórnar fiskveiða hlýtur að miðast við hámörkun á afrakstri fiskstofn- anna, ekki bara í dag heldur urn ókomna framtíð. Samkvæmt kvótalögunum er kveðið á um að tilgangurinn með stjórn fiskveiða sé að treysta atvinnu og byggð í landinu. Þessi markmiða- lýsing byggist á þeim grunni að nytjastofnar á Islandi séu sameign íslensku þjóðarinnar. En hvernig hefur tekist til við að ná settum markmiðum kvótalag- anna? Hver er reynslan af kvótanum? Eftir um það bil tíu ára reynslu- tírna kvótakerfisins kemur í ljós að þorskstofninn er í sögulegu lág- marki að mati fiskifræðinganna. Við búum við mesta atvinnuleysi í sögu lýðveldisins og sjávarbyggðir lands- ins standa víða höllum fæti, en sök- um kvótabrasksins hafa mörg sveit- arfélög neyðst til að auka skulda- stöðu sína til að geta tekið þátt í kvótakaupum svo tryggja megi afla- heimildir á staðnum. Auk þess hefur kvótakerfið skapað misvægi rnilli einstakra útgerðarflokka, þar sem bátum hefur stórlega fækkað í nafni hagræðingar. Kerfið er meingallað. Við endurskoðun á kvótalögun- um árið 1989, og nú síðast í höndum Tvíhöfðanefndarinnar, var lögð höfuðáhersla á að draga fram í dags- ljósið þann ávinning, sem búast mætti við af kvótakerfinu. Aftur á móti var algjörlega vikist undan þeirri ábyrgð í umræddri endur- skoðun að meta þann þjóðhagslega kostnað,sem fylgir kvótakerfinu, með óheftri sölu á óveiddum fiski. í þessu sambandi mætti t.d. spyrja: Hvað kostar það þjóðarbúið að hér fari í eyði 510 sjávarþorp víðsvegar um landið? Svar við slíkri spurningu á því miður ekki upp á pallborðið hjá þeim, sem hingað til hafa fengið að ráða ferðinni. Varnaðarorð FFSÍ Á undanförnum árum hefur Far- manna- og fiskimannasamband ís- lands margítrekað varnaðarorð og ályktanir, sem lúta að því að benda á alvarlega ágalla núverandi fiskveiði- stjórnkerfis. Nú virðist sem ýmsar uppákomur í sölu á fiskiskipum með seljanlegar aflaheimildir komi mönnurn í opna skjöldu og engu lík- ara en þeir hafi alls ekki gert sér grein fyrir hvað fælist í núgildandi lögum, sem kornu til framkvæmda 1. janúar 1991. Ekki geta þeir látið sem það ástand, sem er að skapast, komi þeirn á óvart, sagt að enginn hafi verið með varnaðarorð vegna þess sem framundan væri. Á Fiskiþingi haustið 1990 vöruðu fulltrúar FFSÍ alvarlega við því sem væri frantund- an, ef áfram yrði haldið á þeirri braut að selja óveiddan fisk í sjó. Farmanna- og fiskimannasamband Islands hafnaði frumvarpsdrögun- um á þeirri forsendu að allt kerfið gengi út á að sala skyldi vera óheft á óveiddum fiski í sjó. Helsta ástæðan fyrir þessari af- stöðu FFSI er sú að í frumvarps- drögunum er gert ráð fyrir sölu á óveiddum fiski, sem mun leiða af sér byggðaröskun, misvægi milli ein- stakra útgerðarflokka, t.d. báta og togara, og aukinn tekjumun milli sjómanna. Þá vill FFSl benda á það ósamræmi í frumvarpinu, og reynd- ar í gildandi lögum um stjórn fisk- Framhald á bls. 70 19

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.