Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Síða 80

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1993, Síða 80
VÍKINGUR línu-og togveiðum. Petta tel ég mis- ráðið og byggt á þekkingarskorti þeirra sem lokaákvarðanir taka í stjórnsýslustofnunum um fram- kvæmd reglugerðarlokana. Það vita flestir fiskiskipstjórar að mjög sjaldan fer saman veiði á línu og í troll. Það hefur margsýnt sig úti fyrir Vestfjörðum að línubátar geta verið að fá góðan fisk þótt ekkert fáist í troll á sarna sjó og öfugt. Þó svo að togaramönnum finnist það snúið að aðrir geti veitt á þeim svæðum sem lokuð eru fyrir trolli, þá verða menn að líta á báðar hliðar málsins. Þó nokkuð oft hefur það komið fyrir að lokað hefur verið vegna smáfisks á línu t.d. á Breiðafjarðarfláka. A sama tírna og svæði hafa togarar verið að veiðum og uppistaða aflans verið ýsa og koli. Ég er ansi hræddur um að togaraskipstjórum fyndist það skrítið ef þá væri jafnframt lok- að á þeirra veiðar á allt öðrum fors- endum en aflinn í veiðarfæri þeirra gefur tilefni til. Skipstjórum á togurum fannst hart að sér vegið nýlega þegar feng- sælum fiskimiðum var lokað með reglugerð og ég er þeirrar skoðunar að ná hefði mátt betri sátt um málið en raun varð á. Hörðustu talsmenn þeirrar sóknarstýringar var að finna í stjórn LÍÚ. Það er í sjálfu sér góðs viti að LÍÚ-menn skuli nú, eftir tíu ár í því dásamlega kvótakerfí sem þeir mæltu harðast fyrir, vilja auka og bæta kerfið með stýringu sóknar. Það liggur þess vegna í augum uppi að sóknarstýring er það hálmstrá sem jafnvel forysta LÍÚ leggur til þegar trúin minnkar á kvóta á skip, sem boðað var að gæti þýtt að skip mættu veiða hvar sem er það magn sem þeim væri á annað borð heimilt að veiða úr sjónum. Ekki neitt af þeirri draumsýn virðist í nánd að menn megi veiða kvóta sinn hvar sem er við Island. Við erum með mikla svæðaskiptingu í gangi eftir skipastærð og veiðarfærum. Þau skilyrði til veiða eru bundin að mestu í lögum um veiðar í fiskveiði- landhelgi íslands og ýmsum lögum þeim tengdum ásamt ijölda reglu- gerða. Allt eru þetta sóknartak- markanir og sóknarstýring sem við erum að mestu sammála um. Við erum einnig með ýmis ákvæði í gildi varðandi möskvastærðir og gerð og notkun veiðarfæra. Sumt af því er hreint rugl að mínu mati, t.d. var engin þörf á að stækka trollmöskv- ann í belg og vængjum vörpunnar úr 135 í 155 mm, þar nægði alveg að hafa 155 mm í poka. Þetta atriði við- urkenna menn í dag og stærri möskvi veldur skemmdum á fiski, sem síðan er hent aftur í sjóinn. Allt það sem hér hefur verið vikið að er sóknarstýring. Menn geta lam- ið hausnum við steininn ef þeir vilja, en því verður ekki á móti mælt að sóknarstýring hafur aukist sl. ár þar sem kvótakerfið vekur ekki tiltrú þess að markmið þeirra laga náist. Er fískifræðin hárnákvæm vísindi? Deilan sem allt snýst um er byggð á því að fiskifræðin sé hárnákvæm vísindagrein, sem sagt getur fyrir um atvinnustig í landinu frá einu ári til annars. Þá ættu menn að hafa í huga að í næsta nágrenni við okkur var verið að viðurkenna a.m.k. 70% skekkju á því herrans ári 1993 í stærð þorskstofns. Þið megið taka það að ykkur að sannfæra þjóðina um að við skulum setjaundirstöðuatvinnu- grein okkar Islendinga á hausinn út á þessi vísindi, ég tel mig ekki hafa rök til þess né sannfæringu. Ég geri mér fulla grein fyrir því að það er búið að ráðstafa miklum fjár- munum í því kerfi sem verið hefur í gildi sl. tíu ár. Það breytir ekki því að ástandið lagast ekki með því að festa gallað stjórnkerfi í sessi. Það kann að vera að það þurfi aðlögunartíma lil að fara á milli kerfa. En því miður eru kvótagreifar ekki á þeim buxun- um að missa af þeim möguleika sem allt stefnir í, að 1020 stórfyrirtæki eigi stærstan hluta fisksins í sjónum. Ég tel hins vegar að þetta sjónar- mið sé algjör skammsýni og hugs- anavilla, vegna þess að ef svo illa skyldi fara að fáeinir aðilar korni til með að eiga fiskinn í sjónum, undir- stöðu þjóðfélags okkar, þá mun síð- ar koma upp sú staða að sá stjór- málaflokkur, sem tekur það upp sem forgangsmál í kosningum að af- leggja greifahópinn sem ræður landinu í raun efnahagslega séð, mun fá fjöldafylgi hins almenna ís- lendings sem ekki á eignarhald, erfðafesturétt eða mægðir í eignar- haldsfélagi físksins í sjónum. Eðli- lega verður hægt að snúa við afstöðu kvótagreifanna með því að taka upp auðlindaskatta á þá aðila sem eiga fiskinn í sjónurn og láta þá sjálfa rífa kvótakerfið í rúst. Lokaorð Það er í rnínum huga alveg klárt að færist kvótinn á fáar hendur eða að eignarhald hans festist í sessi frekar en orðið er, þá eru íslenskir útgerð- armenn, sem í orði kveðnu mót- rnæla auðlindaskatti, að vinna að skattlagningu á óveiddan fisk í sjó. Fyrir því kerfi eru útgerðarmenn að berjast með framhaldi núverandi laga um stjórn fiskveiða við Island. Farmanna- og fiskimannasambandi íslands hefur um nokkurt skeið verið legið á hálsi fyrir að fylgja ekki eftir meginstraumi hagsmunasam- taka í sjávarútvegi í stuðningi sfnum við kvótakerfíð. Þetta hlutskipti samtakanna hefur ekki aflað þeirn mikilla vinsælda hjá þeim, sem fara með yfírstjórn sjávarútvegsmála hér á landi. A hinn bóginn staðhæfi ég að afstaða FFSI til stjórnar fiskveiða sé grundvölluð á heilbrigðri skyn- semi skipstjórnarmanna, sem hafa séð tímana tvenna á þessum vett- vangi. Mér segir einnig hugur um að Farmanna og fískimannasambandi Islands muni bætast liðsauki áður en langt um líður, eftir því sem gallar kvótakerfisins koma skýrar í ljós. ■ Herjólfur: VERKFALLS- BOÐUN Sjómannafélagið Jötunn í Vestmannaeyjum hefur boðað verkfall á Herjólfi. Ef samningar takast ekki fyrir áramót, hefst verkfall 1. janúar 1994. Verkfallsboðunin hefur verið send Vinnuveitendasambandi Is- lands og ríkissáttasemjara. 80
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.