Samvinnan - 01.03.1928, Side 23
SAMVINNAN
17
um 6138 km. síðan 1916. Sennilega heflr meiri hluti þess-
ara brauta verið lagður niður, vegna þess að hætt var að
starfrækja námur, en bílarnir eiga þar líka nokkurn hlut
að máli. Er fullvíst, að að m. k. 300 km. af brautum þess-
um hafa eingöngu lagst niður af því að þær biðu lægra
hlut í samkepninni við þá.
Það eru ekki eingöngu vöruflutningabílarnir, sem járn-
brautirnar þurfa að keppa við. Fólksflutningabílarnir eru
þeim líka hættulegir, og þeir eru notaðir í stórum stíl.
Erfltt er að áætla, hve mikinn fólksflutning „privat“ bíl-
ar taka frá járnbrautunum, en enginn efi er á, að það
er töluvert, því flestar fjölskyldur eiga sérstakan bíl. Hér
verður því aðallega getið hinna stóru fólksflutningabíla,
sem notaðir eru í þarfir almennings og hafa fastar áætl-
unarferðir.
I fólksflutningsbílunum stóru eru venjulega sæti fyrir
15—30 farþega; þó eru einstaka bílar töluvert stærri.
Annars eru bílarnir smíðaðir í mörgum mismunandi verk-
smiðjum og eru því af margskonar gerð. En þeir hafa,
sérstaklega á tveim síðustu árum, tekið feikna framförum
bæði um sterkleika, fegurð og þægindi handa ferðamönn-
um. Hver farþegi heflr sæti út af fyrir sig í dúnmjúkum
leðurfóðruðum stól. Sjálfir bílarnir eru skrautlegir að inn-
an, með hentugum hyllum fyrir farangur ferðamanna.
Þeir eru hitaðir og lýstir með rafmagni. Loftræsting er í
ágætu lagi. ökuhraðinn er 40—50 km., og jafnvel meira,
á klukkustund. Hjólin eru svo útbúin, að hristingur er
sama sem enginn. Ohætt er að segja, að þeir veiti ferða-
mönnum meiri þægindi, jafnvel í versta veðri, en dýr-
ustu klefar í bestu járnbrautarvögnum. Pyrir 10 árum var
þessi tegund bíla nærri óþekt í Bandaríkjunum, en nú
eru þeir rúinlega 70 þús.
Járnbrautarfélögunum hefir eigi dulist, að nýr keppi-
nautur er að taka fólkið frá þeim. Brautin Boston & Maine
flutti fyr á tímum fleira fólk en nokkur önnur járnbraut
í Bandaríkjunum. Á síðustu 5 árum hefir tala ferðamanna,
sem hana nota, minkað um 8 milj. eða með öðrum orð-
2