Fréttablaðið - 29.08.2009, Blaðsíða 96

Fréttablaðið - 29.08.2009, Blaðsíða 96
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Davíðs Þórs Jónssonar Í dag er laugardagurinn 29. ág- úst 2009, 241. dagur ársins. 6.01 13.29 20.54 5.40 13.13 20.45 Það er ljótt að vera fullur í vinn-unni. Drukknir menn skila alla jafna verra verki en allsgáðir og svindla þannig á vinnuveitendum sínum. Þó geta kringumstæður mildað alvarleika glæpsins, til dæmis ef vinnan er svo niður- drepandi og vinnufélagarnir slíkt pakk að smá brjóstbirta sé nauð- synleg til að þreyja kvöldvakt- ina. Sömuleiðis ef vinnan er þess eðlis að vart megi greina á afurð- inni hvort hún hafi verið unnin af fullum manni eða ófullum. Á hinn bóginn er það síðan auðvitað grát- leg sóun á fylliríi að vera á því á jafnömurlega leiðinlegum stað og Alþingi Íslendinga. LÖNG hefð er fyrir því að utan- bæjarmönnum verði hált á svell- inu í kaupstaðarferðum og fari offari í sollinum á mölinni. Þannig henti það til dæmis nýlega þing- mannsblók eina utan af landi að fá sér eilítið rækilegar neðan í því en góðu hófi gegndi áður en hún steig í ræðustól þingsins. Í kjölfarið reyndi hún síðan fyrst að þræta fyrir að hafa smakkað það og síðan fyrir að hafa fundið nokkurn skapaðan hlut á sér, rétt eins og alsiða sé að smakka það í öðrum tilgangi. Höfðu sumir á orði að við þetta hefði Alþingi sett niður og tók Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðis flokksins, jafnvel svo djúpt í árinni að segja þetta þing- inu ekki sæmandi. NÚ VEIT ég ekki alveg hvaða skilning þingmaðurinn leggur í orðið sæmd en benda verður á að hann er fulltrúi flokks sem réði lögum og lofum á Alþingi síð- astliðna tvo áratugi og notaði þá til að breyta þinginu í viljalausa afgreiðslu fyrir ríkisstjórn, gera löggjafarvaldið að gólfmottu framkvæmdarvaldsins. Á þeim tíma steyptu sjálfstæðismenn þjóðarbúinu í svo glórulausar skuldir að þegar allt er talið jafn- ast þær á við að hvert einasta hús á landinu hafi brunnið til kaldra kola. Og þetta gerðu þeir bláedrú! Þeir hafa enga afsökun. AUÐVITAÐ á maður ekki að vera fullur í vinnunni, en áður en farið er að gapa um sæmd Alþing- is væri kannski ekki úr vegi að skoða hana í óbrjáluðu samhengi. Sæmd Alþingis er nefnilega alls ekki í svaðinu. Hún er ofan í iðrum jarðar. Hafi einhverjum tekist að hífa hana þaðan upp í svaðið á hann þakkir skilið, en ekki skammir frá þeim sem not- uðu áratuga einræði sitt yfir stofnuninni til að gera Íslendinga að alheimsundri fyrir heimsku. Alþynnki Holtasmári 1 Kópavogur Kaupvangsstræti 1 Akureyri Sími: 577 2025 www.sparnadur.is www.sparnadur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.