Fréttablaðið - 29.08.2009, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 29. ágúst 2009 11
Starfsemin hefst
fimmtudaginn 3. september
skv. stundaskrá (sjá www.hlstodin.is).
Vinsamlega staðfestið þátttöku
í síma 561 8002
eða á hlstodin@simnet.is.
HL STÖÐIN
HL STÖÐIN
Endurhæfingarstöð hjarta- og lungnasjúklinga
Hátúni 14 – 105 Reykjavík – Sími 561 8002
Skagfi rska söngsveitin
Skagfi rska söngsveitin
Söngfólk óskast:
Skagfi rska Söngsveitin í Reykjavík
óskar eftir vönu söngfólki Í allar raddir.
Æft er á mánudagskvöldum,
spennandi verkefni á dagskrá vetrarins
eins og Requiem eftir Mozart sem fl utt
verður í vor.
Upplýsingar gefur söngstjóri:
Renata Ivan email:
renata.ivan@hotmail.com
Innköllun
Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur uppkveðnum þann
7. ágúst 2009 var félagið SPRON verðbréf hf., kt. 670505-
1970, tekið til slita í samræmi við 3. tl. 1. mgr. 101. gr.
laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki þar sem ekki var
talið sennilegt að greiðsluörðugleikar þess myndu líða hjá
innan skamms tíma.
Frestdagur er 31. júlí 2009, sbr. 5. mgr. 101. gr. laga nr.
161/2002.
Hér með er skorað á alla þá sem telja til hvers kyns skulda
eða annarra réttinda á hendur SPRON verðbréfum hf. eða
eigna í umráðum félagsins, að lýsa kröfum sínum skrifl ega
fyrir slitastjórn félagsins innan fjögurra mánaða frá fyrri
birtingu þessarar innköllunar. Kröfulýsingar skulu hafa borist
slitastjórn innan fyrrgreinds tímamarks og skal efni þeirra
vera í samræmi við fyrirmæli 2. og 3. mgr. 117. gr. laga um
gjaldþrotaskipti o.fl . nr. 21/1991.
Kröfulýsingar skulu sendar til:
Slitastjórn SPRON verðbréfa hf.
Lágmúla 6
108 Reykjavík
Því er beint til kröfuhafa að í kröfulýsingu komi fram
sundurliðuð fjárhæð kröfu þann 7. ágúst 2009.
Kröfum í erlendri mynt skal lýst í viðkomandi mynt.
Kröfuhöfum frá aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins
eða Fríverslunarsamtaka Evrópu er heimilt að lýsa kröfum á
tungumáli heimalands síns. Slíkum kröfulýsingum skal fylgja
íslensk þýðing en þó er heimilt að lýsa kröfu á ensku án
þess að þýðing fylgi. Aðrir kröfuhafar geta lýst kröfum sínum
á íslensku eða ensku.
Sé kröfum ekki lýst innan framangreinds frests gilda um það
sömu réttaráhrif og um vanlýsingu kröfu skv. 118. gr. laga
um gjaldþrotaskipti o.fl . nr. 21/1991 og telst hún því fallin
niður gagnvart SPRON verðbréfum hf. nema undantekningar
í 1. - 6. tölulið lagaákvæðisins eigi við.
Sérstaklega er áréttað að með því að lýsa kröfu sinni telst
kröfuhafi hafa fallist á brottfall þagnarskyldu (bankaleyndar)
að því er varðar viðkomandi kröfu.
Hér með er boðað til kröfuhafafundar og verður hann
haldinn fi mmtudaginn 12. febrúar 2010 kl. 14:00 að
Lágmúla 6, 108 Reykjavík. Rétt til setu á fundinum eiga þeir
sem lýst hafa kröfu á hendur félaginu. Á fundinum verður
fjallað um skrá yfi r lýstar kröfur og afstöðu slitastjórnar að
því leyti sem hún liggur fyrir. Skrá yfi r lýstar kröfur verður
aðgengileg þeim sem lýst hafa kröfum á hendur félaginu að
minnsta kosti viku fyrir framangreindan fund.
Nánari upplýsingar um kröfulýsingar og meðferð krafna
munu gerðar aðgengilegar á heimasíðu félagsins,
www.spron.is. Slitastjórn beinir eftirtöldum tilmælum til
kröfuhafa:
a) Að upplýsa um tölvupóstfang sitt eða umboðsmann sinn
í kröfulýsingu til að auðvelda miðlun upplýsinga.
b) Að tilgreina bankareikning til að auðvelda útgreiðslu,
þegar og ef til hennar kemur.
c) Að lýsa kröfum sem fyrst eftir birtingu innköllunar.
Reykjavík 24. ágúst 2009
Slitastjórn SPRON verðbréfa hf.,
Hildur Sólveig Pétursdóttir hrl.
Hlynur Jónsson hdl.
Jóhann Pétursson hdl.
Námsstyrki:
Fulbright stofnunin auglýsir námsstyrki að upphæð 12.000 dollara hver, til að hefja master- eða
doktorsnám í Bandaríkjunum skólaárið 2010 - 2011.
Tekið er við umsóknum í öllum greinum.
Rannsóknarstyrki:
Fulbright stofnunin veitir 2 rannsóknarstyrki að upphæð 8.000 dollarar hvor. Styrkirnir eru ætlaðir vísinda- og fræðimönnum til
að stunda rannsóknir í Bandaríkjunum skólaárið 2010 - 2011. Skilyrði er að viðkomandi hafi ð lokið doktorsnámi. Miðað er við að
rannsóknardvöl sé a.m.k. þrír mánuðir. Með umsókn skal fylgja staðfesting á aðstöðu við rannsóknarstofnun í Bandaríkjunum.
Frank Boas styrk við Harvard Law School
Fulbright stofnunin tilnefnir umsækjendur um Frank Boas styrk til framhaldsnáms í alþjóðalögum við Harvard háskóla haustið
2010. Styrkinn hlýtur einn þeirra umsækjenda sem Fulbright stofnanir í nokkrum löndum, þ.á.m. Íslandi, mæla með. Styrkurinn
stendur straum af kostnaði vegna eins árs náms við lagadeild Harvard háskóla. Lögfræðingum með a.m.k. eins árs starfsreynslu og
laganemum, sem eru að ljúka laganámi er bent á að sækja um styrkinn.
Skilafrestur umsókna er til kl.16, föstudaginn 16. október nk.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar um styrkina má nálgast hjá Fulbright stofnuninni,
Laugavegi 59 og á vefsíðu hennar: www.fulbright.is.
Fulbright stofnunin var stofnsett með samningi milli ríkisstjórna Íslands og Bandaríkjanna árið 1957.
Stofnunin starfar með fjárveitingum beggja samningsaðila að því efl a samskipti Íslands og Bandaríkjanna á sviði mennta og rannsókna.
WWW.FULBRIGHT.IS
Fulbright stofnunin auglýsir:
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar auglýsir hér með tillögu að
deiliskipulagi svæðis hestamanna að Melgerðis melum
í Eyjafjarðarsveit samkvæmt 1. mgr. 25. gr. skipulags-
og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.
Með tillögunni er staðfest það skipulag útivistarsvæðis
hestamanna sem unnið hefur verið eftir auk þess sem gert
er ráð fyrir uppbygginu hesthúsa á melunum.
Tillagan ásamt greinargerð verður til sýnis á skrifstofu
Eyjafjarðarsveitar og á heimasíðu sveitarfélagsins
www.eyjafjardarsveit.is frá og með 27. ágúst 2009.
Hverjum þeim aðila sem sem telur sig eiga hagsmuna
að gæta er gefi nn kostur á að gera athugasemdir við
tillögurnar. Frestur til að gera athugasemdir við tillögurnar
er til og með 12. október 2009. Athugasemdir skulu vera
skrifl egar og berast skrifstofu Eyjafjarðarsveitar. Hver sá sem
ekki gerir athugasemd við tillögunar fyrir auglýstan frest
telst samþykkur þeim.
27. ágúst 2009
Sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar
Deiliskipulag svæðis
hestamanna á Melgerðismelum
Styrkir úr Íþróttasjóði
Menntamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um
styrki úr Íþróttasjóði sem starfar samkvæmt íþrótta-
lögum nr. 64/1998, sbr. reglugerð nr. 803/2008.
Veita má framlög til eftirfarandi verkefna á sviði
íþrótta:
1. Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga
og samtaka þeirra sem miða að því að
bæta aðstöðu til íþróttaiðkana.
2. Útbreiðslu- og fræðsluverkefna.
3. Íþróttarannsókna.
4. Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga.
Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er
gert að sækja um á rafrænu formi.
Eyðublöð má fi nna á http://umsoknir.mennta-
malaraduneyti.is/
Sækja þarf um aðgang að umsóknavef ráðuneytis-
ins. Aðgengi er einungis gefi ð á kennitölur og er
lykilorð sent til viðkomandi á netfang sem gefi ð er
upp við nýskráningu.
Nánari upplýsingar veitir Valgerður Þórunn Bjarna-
dóttir í síma 545 9500 eða í tölvupósti á valgerdur.
thorunn.bjarnadottir@mrn.stjr.is.
Umsóknarfrestur er til 1. október 2009.
www.kopavogur.is
Jafnréttisviðurkenning Kópavogsbæjar 2009
Árleg afhending jafnréttisviðurkenningar fer fram þann 31. ágúst í Salnum, Kópavogi.
Dagskrá:
Kl. 16:00 Setning: Una María Óskarsdóttir, formaður jafnréttisnefndar Kópavogsbæjar.
Kl. 16:05 Tryggvi Hallgrímsson frá Jafnréttisstofu: „Jöfnum leikinn – Handbók um kynjasamþættingu“.
Kl. 16:20 Maríanna G. Einarsdóttir, leikskólastjóri: „Getur strákur verið Rauðhetta?“ – kynjajafnréttisverkefni
leikskólans Smárahvamms.
Kl. 16:35 Íris Arnardóttir, náms- og starfsráðgjafi: „Þar sem tvö tré koma saman, þar er skógur“ – jafnréttisverkefni
Hörðuvallaskóla.
Kl. 16:45 Afhending árlegrar jafnréttisviðurkenningar.
Léttar veitingar
Jafnréttisnefnd
Kópavogsbæjar
Auglýsingasími
– Mest lesið