Fréttablaðið - 29.08.2009, Blaðsíða 76
48 29. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Ég hef hafið störf
á tannlæknastofunni
í Vesturturni Glæsibæjar
4.hæð, Álfheimum 74
Tímapantanir
í síma: 561 3130
Vilhelm Grétar Ólafsson, tannlæknir
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Áhöfnin á Halastjörnunni,
sem er skipuð þeim Gylfa
Ægissyni, Hemma Gunn og
Ara Jónssyni, hélt tónleika
á Kringlukránni í gær-
kvöldi og ætla þeir félag-
ar að endurtaka leikinn í
kvöld. Á efnisskránni eru
slagarar á borð við Stolt
siglir fleyið mitt og Ég
hvísla yfir hafið.
„Fyrir 25 árum komum við í eina
skiptið fram opinberlega í Búðar-
dal. Síðan gerðum við ekkert í
málinu fyrr en eftir minningar-
tónleikana hjá Rúnari Júl, sem
var útgerðarmaður og skipstjóri,“
segir Hemmi Gunn um endur-
komu Áhafnarinnar á Halastjörn-
unni á Kringlukránni í kvöld. „Við
tókum létta æfingu fyrir tveimur
mánuðum í Keflavík til að kanna
hvort endurkoma væri möguleg
og það reyndist vera. Þetta bygg-
ist allt á léttum anda. Gylfi er svo
ótrúlega skemmtileg týpa, svo
„orginal“.“
Áhöfnin æfði saman á fimmtu-
daginn og að sögn Hemma var
hlegið stanslaust í tvo tíma. „Þetta
eru lög sem allir þekkja. Það er
svo mikill aragrúi góðra laga sem
kallinn hefur samið,“ segir hann
og útilokar ekki að sveitin haldi
áfram að spila. „Ef þetta gengur
vel ætlum við að halda því opnu
því við höfum svo mest gaman af
þessu sjálfir.“
Stutt er síðan Áhöfnin atti kappi
við Sigur Rós í spurningaþættin-
um Popppunkti á RÚV þar sem
léttleikinn var að sjálfsögðu í
fyrirrúmi. „Þeir höfðu rosalega
gaman af þessu,“ segir Hemmi
um Sigur Rós. „Þetta er sá þáttur
sem hefur verið mest „dánlódað-
ur“ úr Ríkissjónvarpinu, úti um
allan heim. Við viljum meina að
það sé út af okkur,“ segir hann og
skellihlær.
freyr@frettabladid.is
Áhöfnin á Halastjörnunni
snýr aftur eftir 25 ára hlé
ÁHÖFNIN Á HALASTJÖRNUNNI Ari Jónsson, Gylfi Ægisson og Hemmi Gunn skipa
hljómsveitina Áhöfnina á Halastjörnunni sem leikur á Kringlukránni í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
> AFTUR Í MEÐFERÐ
Melanie Griffith hefur skráð sig í meðferð
á Cirque Lodge-meðferðarheimilinu í Utah.
Griffith, sem er gift leikaranum Antonio
Banderas, fór í meðferð árið 2000
við fíkn á lyfseðilsskyldum lyfjum
sem hún fékk í kjölfar meiðsla.
Talsmaður Griffith segir með-
ferðina núna hins vegar vera
hluta af heilsufarsplani sem
leikkonan gerði í samráði við
lækni og sé einungis ætluð til
að viðhalda heilbrigðum lífs-
stíl.
Vesturbæingar eru nú á endaspretti söfnunar fyrir
nýju fiskabúri í anddyri Vesturbæjarlaugarinnar.
Mímir − Vináttufélag Vesturbæjar stendur að söfnun-
inni sem lýkur með veglegri fjölskylduhátíð í lauginni
í dag.
„Við erum hópur Vesturbæinga sem störfum
undir nafninu Mímir − Vináttufélag Vesturbæjar.
Þegar Vesturbæjarlaugin var reist á sínum tíma þá
var byggt risastórt fiskabúr í anddyri laugarinnar.
Það búr var tekið niður fyrir tæpum þrjátíu árum
síðan því það var orðið of mikið umstang í kringum
umhirðu þess. Á fundum okkar Mímismanna fór for-
tíðarþráin að gera vart við sig og við ákváðum að
endurreisa þetta fiskabúr með aðstoð Vesturbæinga,“
segir Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmaður
Mímis.
Söfnunin hefur staðið síðan í júlí og er markmið
hennar að safna nægu fé til að reisa nýtt og fullbúið
fiskabúr. Að sögn Einars Gunnars hefur þó nokkuð
fé safnast nú þegar. „Stefnan er að safna einni millj-
ón og við erum næstum hálfnuð með það. Söfnunin er
líka ákveðið afturhvarf til þess tíma þegar íbúar létu
sjálfir af hendi rakna til að auðga umhverfi sitt því
upprunalega fiskabúrið var byggt fyrir samskotafé
íbúa hverfisins.
Listamennirnir sem taka þátt í hátíðarhöldunum
á morgun eru allir að gefa vinnu sína og eru allir
Vesturbæingar eða fastagestir laugarinnar,“ segir
Einar Gunnar. Meðal þeirra sem munu stíga á stokk
og skemmta gestum eru hluti hljómsveitarinnar Ný
danskrar, Lay Low og Ólöf Arnalds auk annarra.
„Við hvetjum auðvitað alla til að koma og mæta í
sund og njóta dagsins með okkur. Þeir sem ekki vilja
fara ofan í laugina geta tyllt sér á svæðið í kringum
laugina og notið umhverfisins og tónlistarinnar.“ Dag-
skráin hefst klukkan 14 og stendur til klukkan 16. - sm
Sundlaugarpartí í Vesturbæ
„Íslenskir skattgreiðendur borga ekki
krónu heldur borgar norræna ráðherra-
nefndin brúsann,“ segir Katrín Jakobs-
dóttir menntamálaráðherra. Hún er á
leið til Toronto á kvikmyndahátíðina
þar í borg til að kynna og veita nor-
rænni kvikmyndagerð brautargengi.
Íslendingar eru í forsæti fyrir nor-
rænu ráðherranefndina í ár og var
Katrín beðin um að mæta á vegum
hennar til Toronto. „Já, til að sýna
að stjórnvöld styddu nú rækilega við
bakið á norrænni kvikmyndagerð.
Enda skilst mér að það sé mjög mikið
af merkilegum myndum frá Norður-
löndunum þetta árið,“ segir Katrín. Og
það má til sanns vegar færa; Anti-Christ
eftir Lars von Trier, The Good Heart
eftir Dag Kára og svo auðvitað Sólskins-
drengurinn í leikstjórn Friðriks
Þórs þar sem Kate Winslet
verður sögumaður.
Katrín viðurkennir að
hún hafi aldrei komið
vestur um haf, verandi
vinstra megin í hinu
pólitíska litrófi hefur
Norður-Ameríka ekkert
heillað neitt sérstaklega.
Þetta sé því í raun tíma-
mótaferð í hennar lífi.
Og svo skemmtilega
vill til að mennta-
málaráðherra verður
að öllum líkindum í
loftinu 11. september,
þegar öryggisgæsla
verður í hámarki enda
dagsetningin meitluð í stein vegna árás-
anna á Tvíburaturnana fyrir átta árum.
„Já, þetta verður hressandi,“ segir
Katrín, sem viðurkennir þó að hún sé
spennt fyrir Kanadaferðinni. „Mér
skilst að þarna séu sóknarfæri fyrir
norræna kvikmyndagerð, að koma
henni á framfæri við hinn vest-
ræna heim og það er bara gaman
að fá að taka þátt í því.“
Menntamálaráðherra til Toronto
SAFNA FYRIR FISKABÚRI Einar Gunnar er einn þeirra sem
standa fyrir söfnun á nýju fiskabúri í anddyri Vesturbæjar-
laugar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Á LEIÐ TIL NORÐUR-AMER-
ÍKU Katrín Jakobsdóttir
menntamálaráðherra
mun kynna íslenskar og
norrænar kvikmyndir á
vegum norrænu ráð-
herranefndarinnar.