Fréttablaðið - 29.08.2009, Blaðsíða 42
29. ágúst 2009 LAUGARDAGUR2
Hátíðin fer fram í Jósepsdal, Bola-
öldu hjá Litlu kaffistofunni. Hefj-
ast leikar klukkan 12 og standa
fram eftir degi. Alexander Kára-
son, einmitt kallaður Lexi, er sá
sem skipuleggur leikana.
„Viðburðurinn er gerður að
bandarískri og evrópskri fyrir-
mynd en ég held að jafn stór við-
burður af þessu tagi hafi ekki
verið haldinn hér á landi áður.
Þetta er samvinnuverkefni allra
klúbba viðkomandi mótorsporta og
með þessu viljum við bæði kynna
þessa skemmtilegu íþrótt fyrir
almenningi sem og að virkja þá
sem iðka mótorsport af ýmsu tagi
og gera þeim hátt undir höfði.“
Meðal þeirra greina sem þarna
verður keppt í eru fjórhjóla-
kross, mótókross, BMX-hjólreið-
ar, rallýkross og torfæra en auk
þess munu listfélagar fljúga um
svæðið. Peningaverðlaun eru fyrir
fyrsta sætið í hverjum flokki.
„Margar þessara greina hefur
fólk séð áður en önnur hafa ekki
verið sýnd á svona hátíð áður.
BMX-hjólin munu þarna sýna list-
ir sínar og það ættu allir að finna
eitthvað við sitt hæfi. Svo er hug-
myndin að gera þessa veislu það
skemmtilega að á næsta ári verði
þetta að enn stærri viðburði:
Tveggja daga veislu,“ segir Alex-
ander en um 100 keppendur eru
skráðir til leiks.
„Þetta verður eins konar sleitu-
laus flugeldasýning með fjöri og
gaman en X-ið mun spila tónlist
á svæðinu.“
Miða á hátíðina er hægt að
nálgast hjá N1 Ártúnshöfða og
hjá Nítró, mótorhjólaversluninni
á Bíldshöfða.
- jma
Mótorsportið
kynnt í dag
Stórt samvinnuverkefni margra klúbba mótorsports lítur dagsins ljós
á Lexi Games sem fram fer í dag. Hátíðin er tileinkuð mörgum helstu
jaðar- og mótorsportsgreinum sem æfðar eru á Íslandi.
Keppt verður í mörgum greinum í dag, allt frá torfæru til BMX-hjólreiða.
Alexander Kárason, skipuleggjandi mótorsporthátíðarinnar Lexi Games, býst við
margmenni í Jósepsdal í dag þar sem keppt verður í alls kyns greinum mótorsports.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BURSTABÆRINN KRÓKUR á Garðaholti í Garðabæ verður opinn
á sunnudaginn frá klukkan 13 til 17. Í Króki eru varðveitt gömul húsgögn
og munir sem voru í eigu hjónanna Þorbjargar Stefaníu Guðjónsdóttur og
Vilmundar Gíslasonar. Aðgangur er ókeypis.
„Vinkona okkar, Hjördís Hugrún Sig-
urðardóttir, er að fara að flytja til Sví-
þjóðar, með kærastanum sínum og er
í raun að tæma alla íbúðina sína því
hún má taka svo lítið með sér,“ segir
Margrét Jústa Pétursdóttir. Hún og
Jóhanna Ragnheiður Lárusdóttir hafa
haldið úti bloggsíðum þar sem þær
selja fötin sín. Auk þeirra og Hjördís-
ar verða systur Jóhönnu, Gerða Kristín
og Þórdís Harpa Lárusdætur með föt
á markaðnum.
„Við erum að selja föt fyrir stelpur,
stráka og börn. Flest af þessu eru
mjög fín föt, sérstaklega af Hjördísi,
hún er að selja föt sem hún er nýbúin
að kaupa, merkjavöru og allt, þannig
að þetta er ekkert drasl. Þetta er á
mjög hagstæðu verði. Það eru allir
að græða, sérstaklega kaupendurnir,“
segir Margrét. Hún hélt eigin fata-
markað í byrjun sumars við góðar
undirtektir. „Þetta er voða skemmti-
legt og allir mjög ánægðir með þetta.“
Markaðurinn verður opinn frá hádegi
til sex á Laugarnesvegi 110. Þeir
sem vilja kynna sér bloggsíður stelp-
nanna er bent á að slá inn blog.cent-
ral.is/odyr-flott-fot og blog.central.is/
kreppufot. - kbs
Selur og flytur
FIMM STELPUR ÆTLA AÐ HALDA
FATAMARKAÐ Í HEIMAHÚSI Á
LAUGARDAGINN.
Hjördís, til vinstri, selur allt og fer úr
landi. Með henni á myndinni eru Gerða
og Þórdís. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Opið hús
DREKINN
WUSHU FÉLAG REYKJAVÍK
Skeifunni 3j · Sími 553 8282
www.heilsudrekinn.is
S k e i f u n n i 3 j · S í m i 5 5 3 8 2 8 2 · w w w. h e i l s u d r e k i n n . i s
Kínverskur
heilsudagur
• Frí Ráðgjöf á kínverskri heilsumeðferð
• Kynning á hugrænni teigjuleikfimi
• Tai-Chi og Kung-Fu fyrir börn og fullorðna
• Kynning á kínversku heilsu tei og
heisubætandi áhrif te drykkju
Skeifunni 3j. Laugardaginn 29. ágúst kl. 9-16.
Heilsudrekinn og Wu-Shu félag Reykjavíkur kynna:
Skráning
er hafin
Frístundakort
Kennari: Meistari Zhang
einkatímar og hópatímar
Tao lu
og
Tai chi
MATUR
Ásta Arnardóttir • 862 6098 • asta@this.is
Lótus jógasetur • www.this.is/asta
YOGA HEFST 7. SEPT
MORGUN HÁDEGI SÍÐDEGI
BYRJENDANÁMSKEIÐ HEFST 7. SEPT
HEILSUFRÆÐSLA HEFST 14. SEPT
HUGLEIÐSLA HEFST 16. SEPT
KRAKKAYOGA HEFST 7. OKT
FJÖLSKYLDUYOGA HEFST 12. SEPT