Fréttablaðið - 29.08.2009, Blaðsíða 18
18 29. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
Jóga
í Garðabæ
Byrjar í Kirkjuhvoli 8. september
Framhaldstímar mánud. og fimmtud. kl. 18.00–19.15
Byrjendatímar mánud. og fimmtud. kl. 19.30–20.45
Kennari er Anna Ingólfsdóttir,
Kripalu jógakennari.
Upplýsingar og skráning í símum
565 9722 og 893 9723 eftir kl 17.00
og einnig á annaing@centrum.is. Anna Ingólfsdóttir
Byrjar í ir j li 7. september
Smárit Ferðafélags Íslands
Handhægar gönguleiða-
lýsingar til að hafa með
í bakpokanum
Fást á skrifstofu FÍ
og í næstu bókabúð
SKRÁÐU ÞIG INN – DRÍFÐU ÞIG ÚT!
www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | Sími: 568 2533 | Fax: 568 2535 | Netfang: fi@fi.is
Í nýjasta fræðsluriti FÍ, sem er það
fimmtánda í röðinni, er umfjöllunar-
efnið fjalllendið milli Snæfellsness
og Borgarfjarðar. Ritinu er ætlað
að bæta úr skorti á aðgengilegum
leiðarlýsingum og kortum, bæði
varðandi Vatnaleiðina milli Hnappa-
dals og Norðurárdals og eins um
önnur áhugaverð göngusvæði á
þessum slóðum.
Auglýsingasími
– Mest lesið
Íslensk prentlög eru úrelt
UMRÆÐAN
Elín G. Ragnarsdóttir skrifar um
dómsmál
Allt frá því að Sigríður Rut Júlíus-dóttir vann meiðyrðamál á
hendur ritsjórum tímaritsins Hér
og nú fyrir hönd Bubba Morthens
hafa flóðgáttir lögsókna á prent-
miðla opnast. Lögfræðingurinn Vil-
hjálmur Hans Vilhjálmsson hefur
nýtt sér veikleika prentlaganna sem
Sigríður fann í Bubba-málinu og
límt hennar rökflutning á hin margvíslegustu
mál en þó oft án árangurs.
Veikleiki prentlaganna er í grunninn túlkað-
ur í dag með þessum hætti:
Hver maður er frjáls skoðana sinna og sann-
færingar og á rétt á að láta í ljós hugsanir sínar,
en ábyrgjast verður blaðamaður þær fyrir
dómi.
Skv. stjórnarskrá Íslands er þetta með öðrum
hætti, eða:
Allir eru frjálsir skoðana sinna og sannfær-
ingar.
Hver maður á rétt á að láta í ljós hugsanir
sínar, en ábyrgjast verður hann þær fyrir dómi.
Prentlögin samræmast því ekki 73. gr.
stjórnar skrár.
Laugardaginn 22. ágúst sl. birtist svo grein
eftir lögmanninn Vilhjálm Hans Vilhjálmsson.
Sá sem stýrir pennanum virðist fullur reiði og
heilagrar vandlætingar í garð Birtíngs útgáfu-
félags og starfsmanna þess. Þó er það svo að
fátt kemst nærri sannleikanum í greininni og
lítið sem ekkert fer fyrir málefnalegum rökum.
Of langt mál væri að leiðrétta allar þær rang-
færslur sem lögmaðurinn fer með og skal því
látið sitja við þær alvarlegustu.
Í fyrsta lagi fullyrðir lögmaðurinn að á sl.
mánuðum hafi gengið sjö dómar í héraðsdómi
eða Hæstarétti, þar sem Birtingur eða blaða-
menn þess og/eða tengdra félaga hafi verið
dæmdir fyrir hegningarlagabrot. Þó að skil-
greiningin sé víð er þetta þó rangt hjá lögmann-
inum. Tvö þessara mála varða ákvæði höfundar-
laga en fjalla ekki um hegningarlagabrot. Því
er um að ræða fimm dóma og er í öllum þeim
tilvikum um að ræða einkarefsimál.
Þó að tölfræðin, sem Vilhjálmur styðst mjög
við í grein sinni, sé rakin rökvilla í þessum
efnum, mætti allt eins draga fram þá staðreynd
að í átta málunum hefur verið krafist ómerk-
ingar á alls 103 ummælum. Niðurstaðan er að
ómerkt hafa verið alls 32 ummæli eða innan við
þriðjungur af því sem lagt var upp með. Slík
uppskera myndi þykja rýr á flestum bæjum, í
það minnsta ekki eitthvað til að stæra sig af,
líkt og lögmaðurinn gerir í nefndri grein. Þá er
hverjum sem les heimilt að draga eigin ályktan-
ir af þeirri tölfræði að Vilhjálmur hefur verið
lögmaður stefnenda í sex af þessum átta málum
gegn Birtingi og starfsmönnum þess. Sé ein-
göngu litið til þessara sex mála verður uppsker-
an, er lýtur að ómerktum ummælum, enn rýr-
ari.
Tjáningarfrelsi skert á Íslandi
Þegar spurningu Vilhjálms um það hvort við
dómstóla sé að sakast er svarað, verður vart
komist fjær málefnalegum rökum en að leggja
til grundvallar hversu margir meiðyrðadómar
hafi gengið gegn einu stærsta útgáfufyrirtæki
landsins. Nær er að líta til forsendna dómanna
og bera t.d. saman við forsendur mannréttinda-
dómstóls Evrópu í málum er lúta að tjáningar-
frelsi. Að því virtu má með góðum rökum halda
því fram að íslenskir dómstólar líti á tjáning-
arfrelsi sem undanþágu hér á landi, frekar en
meginreglu öfugt við mannréttindadómstól
Evrópu. Þegar þetta er haft í huga þarf engan
að undra að ákveðið hafi verið að vísa svo-
nefndu Vikumáli til meðferðar hjá mannrétt-
indadómstólnum. Það er forsenda fyrir því að
vísa Vikumálinu svokallaða til Strassborgar
að íslenskir dómstólar hafi farið út af sporinu
við að fylgja eftir lögfestum ákvæðum
mannréttindasáttmála Evrópu og þeim
sjónarmiðum sem beitt er af mann-
réttindadómstólnum sjálfum í málum
er varða tjáningarfrelsi. Hver einasti
dómur þar sem ummæli eru ómerkt
reisir tjáningarfrelsinu skorður.
Það er mat þeirra sem að kærunni til
Strassborgar standa að íslenskir dóm-
stólar hafi gengið of langt í að setja
tjáningarfrelsi og fjölmiðlafrelsi skorð-
ur. Fróðlegt væri t.d. að vita hvort
blaðamanninum Eiríki Jónssyni yrði
í dag aftur gert að þola ómerkingar-
dóm og greiða miskabætur með þeim rökum
að „Stefnandi er fjárfestir og orðspor hennar í
viðskiptalífinu því mikilvægt. Telja verður að
framangreind ummæli, sem eiga ekki við rök
að styðjast, séu óviðurkvæmileg, ærumeiðandi
og til þess fallin að sverta ímynd stefnanda sem
persónu og fjárfestis.“ Ummælin hafði blaða-
maðurinn eftir viðmælanda sínum og voru þau
þess efnis að tiltekin efnamanneskja hefði ekki
staðið í skilum við skuldbindingar sínar. Það er í
það minnsta mat undirritaðs að eitthvað virðist
hafa slaknað á kröfum samfélagsins um að ekki
megi tala með þessum hætti síðan þessi dómur
féll, hvað sem líður afstöðu dómstóla. Loks er í
þessu samhengi fróðlegt að rifja upp dóm yfir
tveimur blaðamönnum frá miðjum síðasta ára-
tug, sem fullyrtu að fölsuð málverk væru seld í
fyrirtækinu Gallerí Borg. Þeim var gert að þola
ómerkingardóm og greiða bætur, þrátt fyrir að
hafa viðamiklar heimildir fyrir skrifum sínum.
Ekki leið þó á löngu eftir þennan dóm þar til
starfsmaður gallerísins var dæmdur fyrir mál-
verkafölsun.
Hvernig gæti Thelma Ásdísardóttir sagt frá?
Þá er loks ótalin sú staðreynd að blaðamönnum
prentmiðla er með lögum gert að bera ábyrgð
á sannfæringu, öllum skoðunum og hugsunum
viðmælenda sinna.
Prentlögin virðast þannig að mati dómstóla
ganga framar 73. gr. stjórnarskrár Íslands, sem
kveður á um að allir séu frjálsir skoðana sinna
og sannfæringar og hver maður eigi rétt á að
láta í ljós hugsanir sínar, en ábyrgjast verði
hann þær sjálfur fyrir dómi. Slíkum hlutlægum
ábyrgðarreglum, þar sem fólki er gert að bera
ábyrgð án sakar, hefur fækkað undanfarið,
enda þykja þær óréttlátar. Ábyrgðarreglur
íslenskra prentlaga enduróma hugsunarhátt
löngu genginna kynslóða.
Með Vikudómnum, þar sem blaðamaður var
sakfelldur fyrir ummæli viðmælanda síns sem
sagði frá sárri reynslu sinni af því að vinna á
Goldfinger, er búið að setja miklar skorður við
því að prentmiðlar fjalli um viðkvæm málefni,
sem oftar en ekki snúa að konum. Hvernig gæti
Thelma Ásdísardóttir sagt frá sárri reynslu
sinni i því umhverfi sem ríkir í dag? Ákafur
lögmaður hefði sjálfsagt fundið einhvern til
að fara í mál við hana. Með slíkum dómum
sem Vikudómnum hafa dómstólar heft veru-
lega tjáningarfrelsi í landinu og lamað að hluta
prentmiðla til að uppfylla hlutverk sitt. Ekki
bætir úr skák þegar fólk, sem þarf að bera slíka
ábyrgð án sakar, er kallað síbrotamenn af lög-
mönnum, sem eiga að vita betur.
Af framangreindu ætti öllum að vera ljóst
að greinarskrif Vilhjálms eru byggð á röngum
forsendum og fullyrðingum. Í raun fer Vil-
hjálmur fram með rangar fullyrðingar sem
hæglega væri hægt að kæra. Og með fram-
ferði sínu og fullyrðingum gerist Vilhjálmur
að öllum líkindum brotlegur við siðareglur
Lögmanna félagsins. Að framansögðu er ómögu-
legt annað en að komast að þeirri niðurstöðu að
lögmaðurinn setji vísvitandi fram rangfærslur,
þar sem honum er kunnugt um allar framan-
greindar staðreyndir. Tilgangurinn virðist vera
sá að nýta sér gölluð prentlög og auglýsa nýjar
málssóknir á hendur starfsmönnum Birtíngs.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Birtíngs útgáfufélags.
ELÍN G RAGNARSDÓTTIR
Hjálpaðu umhverfinu með
Blaðberanum
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...