Fréttablaðið - 29.08.2009, Blaðsíða 88
60 29. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Chelsea hefur farið vel af
stað undir stjórn Carlo Ancelotti
og unnið alla þrjá deildarleiki sína
til þessa. Lundúnafélagið mætir
svo Burnley á Stamford Bridge-
leikvanginum í dag. Nýliðar Burn-
ley hafa komið hressilega á óvart
til þessa og unnið bæði Manchest-
er United og Everton og það er
spurning hvað þeir gera gegn
Chelsea. Burnley komst í fréttirn-
ar á síðasta keppnistímabili þegar
félagið lék í b-deildinni eftir röð
góðra úrslita í deildarbikarnum
þar sem Chelsea var eitt fórnar-
lambið en Arsenal og Fulham lágu
þá einnig í valnum.
Þrátt fyrir góða byrjun á tíma-
bilinu er knattspyrnustjórinn
Owen Coyle hjá Burnley ekkert að
tapa sér í gleðinni.
„Markmið okkar fyrir tímabilið
er einfalt og það er að sjá til þess
að við séum ennþá í deildinni á
næsta tímabili. Markmið Chelsea
eru talsvert öðruvísi þar sem liðið
setur stefnuna á að vinna alla þá
titla sem í boði eru,“ segir Coyle.
Búist er við því að Jóhannes
Karl Guðjónsson verði á vara-
mannabekknum gegn Chelsea
en hann hefur komið við sögu í
einum leik af þremur til þessa í
deildinni. - óþ
Enska úrvalsdeildin:
Nær Burnley að
stoppa Chelsea?
JÓHANNES KARL Í baráttunni í bikarsigri
Burnley gegn Chelsea á síðasta tímabili.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Sjö leikir fara fram í ensku
úrvalsdeildinni í dag en allra augu
verða á Old Trafford-leikvangin-
um þar sem Englandsmeistarar
Manchester United taka á móti Ars-
enal. Leikurinn hefst kl. 16.15.
Eftir hæga byrjun á tímabilinu
hjá meisturum United, þar sem
liðið virkaði hægt og ósannfær-
andi í sigurleik gegn Birmingham
annars vegar og tapleik gegn Burn-
ley hins vegar, opnuðust allar flóð-
gáttir í 0-5 stórsigri gegn Wigan á
DW-leikvanginum. Mikið var rætt
fyrir tímabilið um hvernig sóknar-
leikur United yrði eftir að Cristiano
Ronaldo og Carlos Tevez yfirgáfu
félagið en knattspyrnustjórinn Sir
Alex Ferguson hlýtur að hafa verið
ánægður með að framherjarnir
Dimitar Berbatov, Wayne Rooney
og Michael Owen voru allir á meðal
markaskorara gegn Wigan.
Á síðasta tímabili vann United
aðeins einn af sex leikjum sínum
gegn hinum þremur af „stóru fjór-
um“ liðunum, Arsenal, Chel-
sea og Liverpool og Fergu-
son vonast til þess að geta
gert betur á þessu tíma-
bili.
„Við þurfum nauðsyn-
lega að gera betur
í þessum leikjum
gegn stóru liðun-
um. Við töpuðum
sex stigum til
Liverpool, fjór-
um stigum til
Arsenal og tveim-
ur stigum til Chel-
sea á síðasta tímabili
og það þarf að breytast. Við þurf-
um að draga línuna strax gegn
Arsenal um helgina. Arsen-
al hefur byrjað tímabilið af
krafti og við vitum að okkar
bíður erfiður leikur. Við erum
þegar búnir að tapa einum leik
til þessa og megum ekki við
því að tapa öðrum,“ segir
Ferguson.
Síðan knattspyrnu-
stjórinn Arsene Wenger
tók við hjá Arsenal fyrir
þrettán árum hafa hann
og Ferguson eldað saman
grátt silfur og bendir ekk-
ert til þess að þeir hætti
því í bráð. Wenger kveðst
hlakka mjög til þess að
mæta United.
„Ég er fullur tilhlökkunar að fara
á Old Trafford-leikvanginn
vegna þess að heimsókn-
in markar fyrsta alvöru
prófið fyrir okkur á
þessu keppnistíma-
bili. Það er mikilvægt
að vera með mikið sjálfs-
traust þegar komið er að
því að heimsækja Unit-
ed og við erum virkilega
vel stemmdir núna,“ segir
Wenger.
United verður án Edwin
van der Sar, Rio Ferdin-
and og Rafael da Silva
vegna meiðsla en Wes Brown er
leikfær að nýju eftir að hafa spil-
að með varaliði United fyrr í vik-
unni. Hjá Arsenal er fyrirlið-
inn Cesc Fabregas meiddur og
Aaron Ramsey tæpur en Robin
van Persie og Andrey Arshavin
verða líklega á byrjunarliðinu
að nýju eftir að hafa verið á
varamannabekknum gegn
Celtic í miðri viku.
Þó svo að titlar séu
hvorki unnir né tapaðir
í ágúst mun útkoman úr
stórleik United og Ars-
enal eflaust gefa tóninn
fyrir harða toppbaráttu á
nýhöfnu keppnistímabili
á Englandi.
omar@frettabladid.is
Fyrsti stórleikur tímabilsins í dag
Manchester United og Arsenal mætast í sannkölluðum stórleik á Old Trafford í ensku úrvalseildinni í dag.
Leikurinn markar fyrsta skiptið sem einhver af „stóru fjórum“ liðunum mætast á yfirstandandi tímabili.
ARSHAVIN Er mikilvæg-
ur hlekkur í sóknarleik
Arsenal. NORDIC PHOTOS/GETTY
ROONEY Hefur skorað þrjú
mörk í þremur deildarleikjum
til þessa. NORDIC PHOTOS/GETTY
STÓRLEIKUR Það er alltaf mikið í húfi þegar erkifjendurnir Manchester United og Arsenal mætast og leikurinn á Old Trafford í dag
er sannarlega engin undantekning frá því. NORDIC PHOTOS/GETTY
Föstudaginn 11. september kl 19.00 verður
glæsileg afmælishátíð á Broadway, þar
munu ungir sem aldnir Þróttarar fagna því
að 60 ár eru liðin frá stofnun félagsins.
Boðið verður upp á fordrykk, þriggja rétta
kvöldverð og glæsilega hátíðardagskrá þar
sem veittar verða heiðursviðurkenningar.
Aðalstjórn Þróttar hvetur alla sem koma að
starfi deilda Þróttar í dag auk þeirra sem
hafa með einhverjum hætti komið að starfi
Þróttar síðustu 60 ár að gera kvöldið að
eftirminnilegu Þróttarkvöldi.
Það er fátt mikilvægara fyrir starfi ð í
félaginu en að Þróttarar þekkist vel og hafi
gaman af því að koma saman.
Mætum öll !
Í tilefni 60 ára afmælis Þróttar
Hátíðarkvöldverður
11. september á broadway
Leikmenn • Eldri Þróttarar • Foreldrar Þróttara • Velunnarar • Stuðningsmenn
K
n
a
tt
sp
y
r
n
u
d
ei
ld
•
Te
n
n
is
d
ei
ld
•
K
r
u
ll
u
d
ei
ld
H
a
n
d
k
n
a
ttleik
sd
eild
• Sk
á
k
m
en
n
• B
la
k
d
eild
Verðið á þessa glæsilegu skemmtun er aðeins kr 5.000
Þeir sem vilja tryggja sér miða á hátíðarkvöldverðinn geta haft samband við Ásmund
(asiv@trottur.is) eða Eystein (eysteinn@trottur.is), eða pantið miða í síma 580-5900
fyrir þriðjudaginn 08. september.
Dagskrá
Kl 19.00 Húsið opnar með fordrykk.
Kl 20.00 Borðhald hefst.
Matseðill
Púrtvínstónuð skógarsveppasúpa
Lambavöðvi prime smurður balsamic
sinnepi og kryddjurtum
Eftirréttafantasía a la Chef
Veislustjórar
Halldór Gylfason, leikari
og Jón Ólafsson, tónlistarmaður.
Heiðurviðurskenningar
Skemmtiatriði
Viggó og Violetta, söng og skemmtiatriði
Karl Örvarsson, eftirherma og söngvari.
Dansleikur
Að lokinni dagskrá verður dansleikur
þar sem hljómsveitin Hunang leikur.