Fréttablaðið - 29.08.2009, Blaðsíða 79
LAUGARDAGUR 29. ágúst 2009
Nemakortin eru
til sölu á strætó.is
Ef X =
15000/2x5x30x8
þá er X bestu
kaupin í strætó!*
*Ef þú notar vetrarkort tvisvar sinnum
á dag, fimm sinnum í viku, þá borgar þú
aðeins 37 kr. fyrir ferðina.
Vetrarkort: 15.000 kr.
Haustkort: 8.000 kr.
www.strætó.is
Auðveldasta leiðin til
að kaupa far með strætó
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
T
R
4
65
46
0
8.
20
09
strætó.is
Jón Kristján Kristinsson er ungur
teiknari sem býr í Kaupmannahöfn
og rekur þar fyrirtækið Frame-
bender auk fjögurra annarra.
„Fyrirtækið er aðeins tveggja
mánaða gamalt en við höfum haft
nóg að gera síðan við komum þessu
á laggirnar og höfum meðal annars
gert auglýsingar fyrir veitingastað-
inn Jensens bøfhus og fyrir Hró-
arskelduhátíðina. Núna erum við
einnig að vinna að tónlistarmynd-
bandi fyrir íslensku hljómsveit-
ina Valrós,“ segir Jón Kristján,
en hann og söngvari hljómsveitar-
innar eru gamlir vinir. „Þetta var
uppástunga frá hljómsveitarmeð-
limum og ég ákvað að slá til. Lagið
kallast Millionaire og mun mynd-
bandið fjalla um milljónarmæring
sem vill kaupa hvað sem er handa
konu sinni. Stíllinn verður svolítið
gamaldags og í anda teiknimynda á
borð við Tomma og Jenna og Bleika
pardusinn.“
Jón Kristján segir vinnuna við
myndbandið vera mjög tímafreka,
enda þurfi að teikna hvern ramma
fyrir sig. „Þar sem við gerum þetta
ekki í þrívídd þá þarf að teikna
ramma fyrir ramma, þannig að það
getur tekið okkur allt að tvo mánuði
að teikna einnar mínútu mynd.“
Aðspurður segist Jón Kristján
hafa mikinn áhuga á að gera teikni-
myndasögu í framtíðinni og gefa
út í bókarformi. Áður hefur hann
hlotið fyrstu verðlaun í mynda-
sögukeppni á vegum DR.dk, en
sú saga fjallaði um búsáhöld. „Ég
tók þátt í teiknimyndakeppni fyrir
tveimur árum síðan og hlaut fyrstu
verðlaun fyrir söguna sem ég
sendi inn. Ég hefði mikinn áhuga
á að fara lengra með þetta og jafn-
vel gefa út bók með teiknimynda-
seríum, en það er erfitt að finna
einhvern til að styrkja þess háttar
verkefni í þessu árferði,“ segir Jón
Kristján að lokum. - sm
Teiknari á uppleið í
Kaupmannahöfn
LANGAR AÐ GEFA ÚT BÓK Jón Kristján
rekur fyrirtæki í Kaupmannahöfn sem
býr til teiknimyndir.
Breski sjónvarpskokkurinn Gor-
don Ramsay virðist hafa orðið hug-
fanginn af dvöl sinni í Vestmann-
eyjum og ekkert síður af hinum
íslenska lunda. Hann getur
hreinlega ekki hætt að tala um
fuglinn og eyjarnar í erlend-
um fjölmiðlum. Ramsay
var þannig í viðtali við
spjallþáttastjórnand-
ann Jimmy Kimmel og
ræddi þar um hvernig
hann hefði veitt lund-
ann, rifið úr honum
hjartað og borðað það
hrátt. Fuglinn hefði
síðan verið grillaður
og borinn fram með fersku
gúrkusalati.
Ramsay hefur auglýst
Íslandsferð sína nokkuð
mikið og má varla mæta í
blaða- eða sjónvarpsviðtal án þess
að minnast á lundahjartað, þegar
hann datt fram af bjargi eða ældi
eftir að hafa smakkað íslensk-
an hákarl. Lundainnslagið í
þætti Ramsays, The F Word,
vakti enda hörð viðbrögð á
sínum tíma því fjöldi breskra
sjónvarpsáhorfenda kvart-
aði mikið undan aðförum
Ramsays og töldu meðal
annars að lundinn væri
í útrýmingarhættu.
- fgg
Gordon hættir ekki
að tala um lundann
TALAR GJARNAN UM
LUNDANN Gordon
Ramsay talar um lunda-
veiðarnar í Vestmannaeyjum
við hvert tækifæri, nú síðast
hjá spjallþáttastjórnandanum
Jimmy Kimmel.