Fréttablaðið - 29.08.2009, Blaðsíða 32
32 29. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
Á
Þingeyri hefur kaffihúsið
Simbahöll verið starfrækt í
sumar. Kaffihúsið er í húsi
sem reist var árið 1916 en
þar var lengi verslun. Húsið
hafði staðið mannlaust lengi
þegar parið Wouter Van Hoeymissen og
Janne Kristensen fékk það og gerði upp. „Ég
hafði verið að ferðast um Ísland og vinna á
bóndabæjum um landið þegar ég rakst óvart
inn á Þingeyri. Mér bauðst að kaupa húsið
fyrir 2.500 krónur og ákvað að slá til,“ segir
Wouter.
Um helgina verður haldið lokahóf í Simba-
höll en kaffihúsinu verður lokað í vetur. „Við
fengum bara rekstrarleyfi til bráðabirgða í
sumar,“ segir Wouter. „Það gekk mjög vel í
sumar og við áætlum að hafa opið á veturna
líka í framtíðinni.“
Wouter segir að í upphafi hafi þau Janne
hugsað Simbahöllina sem almenningsstofu.
„Okkur langaði að gæða Þingeyri lífi og búa
til stað þar sem fólk gæti hist,“ upplýsir
Wouter og bætir við að þau hafi aldrei ætlað
sér að setjast að á Þingeyri.
Wouter og Janne gerðu húsið sjálf upp á
og sköpuðu gamaldags stemningu þar. „Mér
hefur alltaf líkað stemningin á Árbæjarsafni
og það var rökrétt að nýta sjarma hússins í
Simbahöll,“ segir Wouter en þau innréttuðu
kaffihúsið með búslóð sinni að utan, sóttu
markaði með notaða vöru í Belgíu, fóru á
ruslahauga og eldri Íslendingar gáfu þeim
hluti sem skapa gamaldags stemningu.
Nýta sjarma Simbahallarinnar
Wouter Van Hoeymissen og Janne Kristensen eignuðust Simbahöllina svokölluðu fyrir 2.500 krónur. Þau hafa gert það upp og
opnað kaffihús. Ljósmyndari Fréttablaðsins, Anton Brink, leit í heimsókn í sumar og Marta M. Friðriksdóttir sló á þráðinn.
KAFFIHÚSIÐ Simbahöllin á Þingeyri er á leið í vetrarfrí en aftur verður opnað næsta sumar.
HORFINN TÍMI Reynt var að skapa gamaldags stemningu í Simbahöll.
EIGENDURNIR Janne Kristensen og Wouter Van Hoeymissen hafa unnið að því síðastliðin þrjú ár að gera
kaffihúsið upp. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SKÍFUSÍMI Wouter og Janne fengu ýmsa hluti gefins frá eldri Íslend-
ingum í kaffihúsið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SJARMERANDI Parið sótti markaði í Belgíu með notaða vöru til að
setja í Simbahöllina.
GAMALDAGS Janne og Wouter hefur alltaf líkað stemningin í Árbæjarsafni og fannst rökrétt að nýta sjarma
hússins í Simbahöll. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON