Fréttablaðið - 29.08.2009, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 29. ágúst 2009 25
FRÉTTABLAÐIÐ/KIDDI
„Þótt ég sé orðinn fullorðinn skammast ég mín
ekkert fyrir að segja að mömmu sakna ég mest,“
segir Guðfinnur Sigurvinsson, fyrrverandi frétta-
maður hjá RÚV, sem nú nýtur sumarsins í Düsseld-
orf, þrátt fyrir að sakna fjölskyldu sinnar og vina.
Þar býr hann nú ásamt kærasta sínum, Símoni
Ormarssyni. „Símon var flugþjónn hjá Icelandair en
missti vinnuna í hópuppsögn í fyrrasumar. Ég fylgdi
í kjölfarið hjá RÚV í lok nóvember. Þá urðum við að
endurmeta allt lífið. Símoni hafði boðist vinna sem
klippari á hárgreiðslustofu Vidal Sassoon. Þegar
boðið barst sýndum við því mátulegan áhuga en
þegar þessi staða var komin upp hjá okkur slógum
við til. Síðastliðið haust hefði mig ekki grunað að
ég yrði fluttur til Þýskalands innan árs, enda vorum
við nýbúnir að festa kaup á íbúð í Garðabænum og
ætluðum að skjóta þar rótum. Nú sjáum við fyrir
okkur að vera hér í nokkur ár.“
Guðfinnur ætlar að láta það verða sitt fyrsta
verkefni í nýja landinu að læra þýsku. „Ég er búinn
að finna málaskóla hér í næsta nágrenni við
heimili okkar. Þegar ég hef náð tökum á málinu
verða mér allir vegir færir og ég ætla að finna
mér vinnu hér. Ég er þegar með járn í eldinum
hvað það varðar.“
Álit heimsins á Íslandi er orðið að óþarf-
lega stóru skrímsli í hugum Íslendinga, að mati
Guðfinns. „Almennt er mér vel tekið sem
Íslendingi. Við fórum sem dæmi til
Hollands um daginn. Við fórum
þar út að borða og konan á
næsta borði fór að forvitnast
um hvaðan við værum. Við
svöruðum því og áttum von
á Icesave-skotum úr öllum
áttum. Konan brosti þá
sínu blíðasta og sagði: „Já,
alveg rétt, þið kusuð fyrstu
konuna til forseta, er það
ekki?“ Álitshnekkir hvað,
spyr ég nú bara.“
Honum finnst út í hött
að tala um að fólk sem flytur af landi
brott sé á flótta. „Jú, ef þetta hörmung-
arástand hefði ekki komið til þá væri ég
og margir aðrir sjálfsagt heima. Ég kýs
hins vegar að líta á þá sem fóru sem
útverði Íslands. Þar leita ég í smiðju
Jóns Sigurðssonar, forseta og langfrænda
míns. Jón hefði aldrei náð slíkum árangri
í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar ef
hann hefði fundað í hátíðarsal
MR lon og don. Hann náði
árangri af því hann flutti til
Kaupmannahafnar og talaði
máli þjóðar sinnar þar.“
Útverðir Íslands en ekki á flótta
GUÐFINNUR SIGURVINSSON
Guðfinnur flutti nýverið til
Düsseldorf ásamt kærasta
sínum, Símoni Ormarssyni. Þar
ætlar hann að læra þýsku og
finna sér vinnu.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Hún kann vel við sig í Danmörku.
„Kaupmannahöfn er yndisleg og ég
gæti vel hugsað mér að vera hérna
áfram. Fari ég ekki í doktorsnám
finnst mér líklegt að ég reyni að
finna mér vinnu hér. Ég ætla samt
ekki að taka neinar ákvarðanir strax
og sjá hvernig ég verð stemmd eftir
þetta ár. En ég verð að viðurkenna
að mér finnst ástandið heima mjög
óspennandi: Ráðstöfunartekjur hafa
lækkað mikið, verðbólga og almenn
leiðindi. Ég verð nú að segja að
það fer lítið fyrir hinni umtöluðu
skjaldborg heimilanna og hvet ríkis-
stjórnina til þess að standa við gefin
kosningaloforð. Finna þarf úrræði
fyrir fyrirtæki og heimilin í landinu
sem allra fyrst.“
Þrátt fyrir að kunna vel við sig í
Danmörku er ekki laust við að hún
fái að finna fyrir uppruna sínum
af og til. „Já, ég hef alveg fengið
nokkur skot, enda keyptu Íslending-
ar þjóðargersemar Dana og margir
þeirra skildu svo eftir sig sviðna
jörð. Núna finna Danirnir dálítið til
sín og eru óhræddir við að skjóta
á mann fyrir að vera Íslendingur.
En almennt held ég að Danir séu
með dálitla fordóma fyrir útlend-
ingum, og Íslendingar eru ekki þar
undanskildir.“
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N
ÓLAFUR OG EINAR BENEDIKT
Ólafur Haukur Gíslason hand-
boltamaður býr nú í Haugasundi
í Noregi ásamt eiginkonu sinni
og tveimur sonum.
Það sem námsmenn hugsa
- eða þannig
Kaupþing námsmenn -
þegar námið skiptir höfuðmáli
Kaupþings námsmenn láta hugann reika
vítt og breitt en þeir fá hins vegar:
- Afslátt af færslugjöldum
- Fyrsta árgjald af kreditkorti ókeypis
- Mánaðarleg framfærslulán
- Tölvukaupalán til allt að þriggja ára
- 1.500 kr. endurgreiðslu
nemendafélagsgjalda til háskólanema
- Yfirdráttarlán á hagstæðum kjörum
Meiri fróðleikur á kaupþing.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
K
A
U
4
67
83
0
8/
09