Fréttablaðið - 29.08.2009, Blaðsíða 6
6 29. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
UMHVERFISMÁL „Það geta allir verið
rólegir því að þetta gerist ekki
aftur,“ segir Ásgeir Pétursson,
minkabóndi í Mosfellssveit, sem
á von á áminningu frá heilbrigðis-
nefnd eftir að minkaskítur barst út
í vatnakerfið í Helgadal.
Heilbrigðiseftirliti Kjósarsvæð-
is bárust kvartanir 28. júlí síðast-
liðinn um að mikið magn af skít
hefði borist í Katlagilslæk og
þaðan í Suðurá. „Það voru mikil
ummerki mengunar þegar sam-
starfsmaður minn kom á staðinn.
Við tókum sýni og niðurstaðan var
sú að þarna mældist mikið magn
saurgerla,“ segir Þorsteinn Narfa-
son heilbrigðisfulltrúi.
Ásgeir Pétursson segir að um
algert óhapp hafi verið að ræða.
Það megi skrifa á kunnáttuleysi
erlends starfsmanns sem hafi
hreinsað skít út úr röngu minka-
húsi. Sú leðja hafi borist út í skurð
sem gerður hafi verið til að leiða
vatn sem kemur úr fjalli ofan
við búið framhjá húsunum. Allt
hafi síðan borist niður í Kálfagil-
slæk. Ásgeiri verður gert að loka
umræddum skurði.
„Vonandi skilja menn að þetta
var bara klaufaskapur,“ segir
Ásgeir. „Við viljum vera í góðri
sátt við okkar nágranna og síðan
er það þeirra að sjá um sitt,“ bætir
hann við.
Þorsteinn segir að jafnvel þótt
mengunin hafi skolast niður Kat-
lagilslæk og þaðan um Suðurá
og Köldukvísl alla leið til sjávar
í Leirvogi á tiltölulega stuttum
tíma hafi verið um afar alvarleg-
an atburð að ræða. „Saurgerlar eru
vísbending um sjúkdómsvaldandi
bakteríur. Þarna eru krakkar að
leika sér og skepnur að drekka og
hefði getað farið illa ef fólk hefði
veikst,“ bendir heilbrigðisfulltrú-
inn á.
Íbúar í nágrenni við Dalsbú
sögðu við Fréttablaðið að börn-
um væri haldið frá Katlagilslæk.
Það væri erfitt því Laugarnesskóli
væri með sumarbústað skammt
undan og lækurinn hefði mikið
aðdráttarafl fyrir þau.
Undir venjulegum kringum-
stæðum er minkaskíturinn borinn
á tún og haga Ásgeirs og ýmissa
nágranna hans í sveitinni. „Það
fæst varla betri áburður enda er
allt hér iðjagrænt,“ segir minka-
bóndinn á Dalsbúi og bendir í
kringum sig.
Þorsteinn heilbrigðisfulltrúi
tekur undir með Ásgeiri. „Þetta er
gríðarlega góður skítur og upplagt
að dreifa þessu á tún og úthaga.
Það þarf aðeins að gæta þess að
dreifa ekki of miklu magni.“
gar@frettabladid.is
Saurgerlar bárust frá
minkabúi í Helgadal
Dalsbú í Helgadal fær áminningu fyrir að veita minkaskít í bæjarlækinn. Saur-
gerlamengunin hefði getað valdið veikindum hjá fólki, segir heilbrigðisfulltrúi.
Minkabóndinn segir um að kenna klaufaskap sem ekki muni endurtaka sig.
ÁSGEIR PÉTURSSON Eigandi Dalsbús segir klaufaskap hafa orðið til þess að minka-
skítur barst frá búi hans í vatnakerfi Helgadals og lofar að það gerist ekki aftur.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þarna eru krakkar að
leika sér og skepnur að
drekka og hefði getað farið illa ef
fólk hefði veikst.
ÞORSTEINN NARFASON
HEILBRIGÐISFULLTRÚI KJÓSARSVÆÐIS
Skeifan 11B • 108 Reykjavík • Sími 511-3080 • isoft@isoft.is • www.isoft.is
OPIÐ HÚS
í dag kl. 13-16
Komdu og kynntu þér náms-
framboðið með kennurum.
MENNING Kolbrún Halldórsdóttir, leikstjóri
og fyrrverandi umhverfisráðherra, hefur
bæst í hóp þeirra umsækjenda um stöðu
þjóðleikhússtjóra sem andmæla umsögn
þjóðleikhúsráðs.
Ráðinu ber samkvæmt lögum að meta
hæfni umsækjenda og leggja mat sitt
fyrir menntamálaráðherra, sem skip-
ar í stöðuna.
Gagnrýni umsækjendanna fjögurra,
sem vitað er til að andmæli umsögn-
inni, snýst meðal annars um að ráðið
sé vanhæft til umsagnarinnar, enda
hafi náinn samstarfsmaður ráðsins,
sitjandi þjóðleikhússtjóri, sótt um.
Einnig hafi ráðið hvorki rökstutt
umsögn sína né boðað fólk í við-
töl.
Kolbrún fer fram á það að ráð-
herra ógildi umsögnina, svo ekki
skapist fordæmi fyrir því að það
að hafa stýrt „stofnanaleikhúsi“
verði eina starfsreynslan sem
hefur verulegt vægi í mati ráðsins.
„Það gæti þýtt að næst þegar staðan losnar
yrði bara einn Íslendingur, fyrir utan Tinnu
Gunnlaugsdóttur, raunverulega hæfur í
stöðuna og það er Magnús Geir Þórðarson
[Borgarleikhússtjóri],“ segir hún.
Ekki náðist í Ingimund Sigfússon, for-
mann þjóðleikhúsráðs og fyrrverandi
sendiherra, en Halldór Guðmundsson,
varaformaður ráðsins, sagði í gær að
eðlilegast væri að bíða með viðbrögð
við andmælunum þar til andmæla-
frestur líður.
Síðustu andmælin gætu borist í
pósti á mánudag. - kóþ
Þjóðleikhúsráð bregst ekki við kvörtunum umsækjenda að svo stöddu:
Kolbrún andmælir einnig
ANDMÆLIR Kolbrún er ein af mörgum
umsækjendum um stöðu þjóðleik-
hússtjóra sem hafa sent mennta-
málaráðherra andmæli. MYND/ÚR SAFNI
EFNAHAGSMÁL Hagsmunasam-
tök heimilanna hafa boðað til
greiðsluverkfalls hinn 1. október.
Greiðsluverkfallið á að standa í
tvær vikur, eða til 15. október.
Samtökin funduðu í gær með
ríkissáttasemjara og héldu að því
loknu blaðamannafund þar sem
málið var kynnt. Samtökin óskuðu
eftir því við ríkissáttasemjara að
hann miðlaði málum í samninga-
viðræðum milli samtakanna og
ríkisins, samtaka fjármálafyrir-
tækja og Landssambandi lífeyris-
sjóða. Að sögn samtakanna tók
Magnús Pétursson ríkissáttasemj-
ari vel í erindi þeirra.
Á fundinum voru áform um
greiðsluverkfallið og ályktun
samtakanna kynnt. Í ályktuninni
kemur fram að þúsundir Íslend-
inga séu nú þegar í óskipulögðu
greiðsluverkfalli, og samtök-
in ætli að veita þeim aðgerðum
stuðning. Í greiðsluverkfallinu
felast nokkrar aðgerðir. Meðal
þeirra er að draga afborganir
af öllum lánum í þessa fimmtán
daga, takmarka greiðslu af lánum
við greiðslu áætlun, taka út inni-
stæður frá ríkisbönkunum og
segja upp kortaviðskiptum og
greiðsluþjónustu. Samtökin von-
ast með þessu til að telja ríkið og
aðra aðila á að ganga til samninga
við sig. - þeb
Hagsmunasamtök heimilanna funduðu með ríkissáttasemjara:
Boða til greiðsluverkfalls
REYKJAVÍK Hagsmunasamtök heimil-
anna hafa boðað til greiðsluverkfalls
og vonast til að nokkur þúsund manns
muni taka þátt. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
SAMGÖNGUMÁL Vegamálastjóri,
fulltrúar tryggingarfélaganna
og fulltrúar bílaleiganna undir-
rituðu nýlega samstarfssamning
um kostun, gerð og uppsetningu
upplýsingaskilta. Á skiltunum
verða upplýsingar fyrir ökumenn
um reglur þær og ástæður fyrir
því að utanvegakstur á Íslandi er
bannaður.
Frá bílaleigunum og trygg-
ingarfélögunum eru jafnframt
þau skilaboð að akstur fólksbíla
frá bílaleigum inn á hálendið er
bannaður. Skiltin verða sett upp
við innkomur á helstu leiðir inn á
hálendi landsins.
- shá
Merkingar bættar:
Setja upp skilti
fyrir ferðafólk
Amfetamín gert upptækt
Lögreglan á Selfossi gerði fjórtán
grömm af amfetamíni upptæk í gær.
Efnið fannst við húsleit hjá manni á
þrítugsaldri. Lögreglu grunar að efnin
hafi verið ætluð til sölu. Maðurinn var
yfirheyrður en sleppt að því loknu.
ÁRBORG
Kannabis gert upptækt
Lögreglan í Reykjanesbæ handtók
í gær karlmann eftir að 25 kanna-
bisplöntur fundust á heimili hans.
Manninum var sleppt að yfirheyrsl-
um loknum en lögregla lagði hald á
plönturnar sem verður eytt.
LÖGREGLUMÁL
ÍSAFJÖRÐUR Ísfirska fyrirtækið
3X Technology sagði upp níu
starfsmönnum í gærmorgun.
Uppsagnirnar eru tilkomnar
vegna samdráttar í sölu á vörum
fyrirtækisins.
Fyrirtækið býður upp á lausn-
ir fyrir matvælaiðnað, einkum
í tengslum við sjávarútveg.
Það starfar mikið í Bretlandi, á
Spáni og í Kanada, og á þessum
stöðum hefur verið samdráttur
á mörkuðum.
Alls hefur ellefu manns verið
sagt upp hjá fyrirtækinu á
árinu, en einhverjar uppsagn-
anna verða endurskoðaðar ef
breytingar verða á næstu mán-
uðum. 45 manns störfuðu hjá
fyrirtækinu.
- þeb
Fyrirtækið 3X Technology:
Níu manns sagt
upp á Ísafirði
Tafir á Breiðamerkursandi
Vegna málningarvinnu verða umferðar-
tafir yfir brúna yfir Jökulsá á Breiða-
merkursandi í dag og á morgun frá
klukkan 8 til 20. Búast má við allt að
fimmtán mínútna töf hverju sinni.
SAMGÖNGUR
Ætti að selja Kanadamönnum
hlut Orkuveitunnar í HS Orku?
Já 21,7
Nei 78,3
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ferð þú oft í Þjóðleikhúsið?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
KJÖRKASSINN