Fréttablaðið - 29.08.2009, Blaðsíða 8
29. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
BANDARÍKIN, AP Jaycee Lee Dugard
var aðeins ellefu ára þegar henni
var rænt á leiðinni í skólann. Nú
átján árum síðar losnaði hún loks
úr prísundinni, eftir að hafa eignast
tvær dætur með mannræningjanum
sem nauðgaði henni ítrekað.
Mannræningjarnir voru reynd-
ar tveir, Phillip Garrido og eigin-
kona hans Nancy, sem bæði voru
á fertugsaldri þegar þau sátu fyrir
stúlkunni á götu í bænum South
Lake Tahoe í Kaliforníu árið 1991.
Þau hafa haldið henni fanginni í
bakgarðinum heima hjá sér í borg-
inni Antioch allar götur síðan,
ásamt börnunum tveimur, sem nú
eru ellefu og fjórtán ára.
„Börnin hafa aldrei komið í skóla,
þau hafa aldrei farið til læknis,“
segir Fred Collar lögreglumaður.
„Þeim var haldið í algerri einangr-
un inni á þessari lóð.“
Upp komst um Garrido eftir að
hann sást á ferð með tvö börn á
þriðjudaginn fyrir utan Kaliforníu-
háskóla í borginni Berkeley. Hann
hafði ætlað að fara inn í háskólann
til að dreifa þar trúarbæklingum.
Lögreglumönnum þótti hann haga
sér grunsamlega, og komust að því
að hann væri á skrá yfir barnaníð-
inga.
Hann mætti svo daginn eftir til
yfirheyrslu á lögreglustöð ásamt
eiginkonu sinni, börnunum tveim-
ur, og svo hinni 29 ára gömlu Jaycee
Lee Dugard, sem sagðist heita
Alissa. Þar viðurkenndi hann svo
mannránið.
Prísundin í bakgarðinum var
þannig úr garði gerð að hún sást
ekki, jafnvel ekki þótt gengið væri
um íbúðina og bakgarðinn. Skúr-
um og trjágróðri var komið fyrir
þannig að skyggði á íverustaðina.
Dugard hitti móður sína og
systur á fimmtudag og voru það
fagnaðarfundir. Ekki er vitað til
þess að hún hafi haft samband við
nokkra aðra en mannræningja sína
þessi átján ár.
Stjúpfaðir hennar, Carl Probyn,
sagðist fyrir löngu hafa gefið upp
alla von um að hún fyndist á lífi.
Hann varð vitni að mannráninu og
var lengi vel grunaður um að hafa
átt aðild að því.
„Þetta eyðilagði hjónabandið mitt.
Ég leið vítiskvalir vegna þessa,
enda var ég grunaður maður alveg
þangað til í gær,“ sagði Probyn, sem
nú er sextugur.
Mannræninginn Garrido seg-
ist hins vegar vera orðinn trúað-
ur maður og reyndi að gera gott úr
ódæði sínu. Í sjónvarpsviðtali sagði
hann fæðingu fyrstu dóttur sinnar
hafa gjörbreytt lífi sínu: „Það sem
gerðist var viðbjóðslegt alveg frá
byrjun til enda. En ég sneri lífi
mínu algerlega við.“
Hann á að baki langa sakaskrá
kynferðisbrota.
gudsteinn@frettabladid.is
Börnin fóru
aldrei í skóla
né til læknis
Jaycee Lee Dugard hitti móður sína og systur á
fimmtudag eftir átján ár í klóm mannræningja.
Ræninginn réttlætir gerðir sínar með því að segja
fæðingu fyrsta barns síns hafa gerbreytt lífi sínu.
JACEE LEE DUGARD Stjúpfaðir hennar
var lengi vel grunaður um aðild að
mannráninu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MANNRÆNINGJARNIR Phillip og Nancy Garrido. NORDICPHOTOS/AFP
SVEITARSTJÓRNIR Nú standa yfir við-
ræður bæjarfulltrúa á Álftanesi
um sameiginlega stjórn bæjar-
ins. Stjórnarkreppa hefur verið í
bænum eftir endurkomu Kristjáns
Sveinbjörnssonar í bæjarstjórn.
Kristján hafði í desember stigið
til hliðar sem bæjarfulltrúi og sagt
af sér sem forseti bæjarstjórnar.
Félagar hans í Á-listanum töldu
að hann ætti ekki að snúa aftur í
bæjarstjórnina á þessu kjörtíma-
bili. Margrét Jónsdóttir úr Á-lista
sleit viðræðum við félaga sína um
myndun meirihluta 18. ágúst og
hefur síðan reynt að mynda meiri-
hluta bæði Á-lista og D-lista með
„þjóðstjórnarfyrirkomulagi“. - gar
Viðræður bæjarfulltrúa:
Þjóðstjórn á Álftanesi?
ÁLFTANES Andstæðar fylkingar reyna að
mynda „þjóðstjórn“ í erfiðu ástandi.