Fréttablaðið - 29.08.2009, Blaðsíða 60
10 matur
Lagt á haustborð
Innanhússarkitektinn Ólöf Jakob-ína hefur komið að ýmsu í gegn-um tíðina sem snertir hönnun,
hefur sjálf framleitt vörur og held-
ur nú úti skemmtilegu bloggi þar
sem hún deilir alls kyns hugmynd-
um fyrir heimilið - www.olofjakob-
ina.blogspot.com.
„Mér finnst alltaf betra að hafa
skreytingar ekki of flóknar í fram-
kvæmd og þessi skreyting snerist
í rauninni bara um það að fara út
í garð nágrannakonu minnar, sem
býr svo vel að eiga ylli, og tína
svo fram einhverjar krukkur úr
skápum, sem ég notaði bæði sem
blómavasa og undir kerti,“ segir
Ólöf Jakobína.
Ólöf Jakobína valdi ber yllisins
því um þessar mundir eru þau fag-
urrauð en ber reynitrjánna eru hins
vegar enn ekki búin að ná fullum lit.
„Svo má nota reynitrésberin þegar
lengra líður á haustið.“ Ólöf notaði
bæði kerti af nokkrum stærðum,
bæði há og lág og svo teljós.
Leirtauið er úr ýmsum áttum en
kökudiskurinn sem skreytir borðið
er það nýjasta sem innanhússarki-
tektinn hefur verið að fást við en
þá vinnur hún úr gömlu postulíni.
- jma
PH5 eftir Paul Henningsen er borð-
stofuljós Ólafar Jakobínu en ljósmyndin
yfir píanóinu er Þórsmerkurmynd tekin
af Ólafi Magnússyni árið 1942. Mynd-
ina fann Ólöf í Góða hirðinum en svo
skemmtilega vill til að sömu mynd má
sjá á sýningunni Úrvalið sem opnar um
þessar mundir á Listasafni Akureyrar.Hördúkur er á borðinu en stellið er alveg hvítt án nokkurra skreytinga.
Rautt og hvítt og rómantískt.
Hnífapörin eru falleg við hvítan grunn-
inn, kallast Grand Prix, og fást í Epal.
Tveggja hæða kökudiskurinn er gerður af húsfrúnni sjálfri en hún selur þá einnig.Ofan í hverja skál setti Ólöf Jakobína smávegis af ylliberjum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Ylliberin eru fullþroskuð í ágúst.
Ólöf Jakobína Ernudóttir innanhússarkitekt segist vilja dekka upp matarborðið
á einfaldan hátt þar sem ekki þarf að kosta miklu til. Hún notaði ber af ylli og
gamlar sultukrukkur sem uppistöðu í haustmatarboði sínu.